Charlie Hebdo: Merkel góð í fjögur ár með nýju pústi

Þjóð­verjar fá nú kalda matið frá franska skop­rit­inu Charlie Hebdo. Á þýsku.

Útgáfa eftirlifenda árásanna á ritstjórnarskrifstofur Charlie Hebdo seldist í meira en 70.000 eintökum í Þýskalandi. Nú kemur Charlie Hebdo í fyrsta sinn út á þýsku.
Útgáfa eft­ir­lif­enda árásanna á rit­stjórn­ar­skrif­stofur Charlie Hebdo seld­ist í meira en 70.000 ein­tökum í Þýska­landi. Nú kemur Charlie Hebdo í fyrsta sinn út á þýsku.

Fyrsta þýska útgáfa Charlie Hebdo hæð­ist að Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, og sýnir hana bæði sitj­andi á kló­sett­inu og á bíla­lyftu þýska bíla­fram­leið­and­ans Volkswagen. Franska skopteikn­inga­daglaðið Charlie Hebdo kom út í þýskri útgáfu í fyrsta sinn í morgun og er það jafn­framt fyrsta útgáfa blaðs­ins á öðru tungu­máli en frönsku.

Á for­síðu þýsku útgáf­unnar er Merkel sýnd liggja á bíla­lyftu bif­reiða­fram­leið­and­ans Volkswagen undir fyr­ir­sögn­inni „VW stendur með Merkel“. Bif­véla­virki fyr­ir­tæk­is­ins heldur á púströri og segir „Með nýju pústi verður hún fær í fjögur ár í við­bót“. Er það vísun í útblást­urs­svindl Volkswagen og erf­iða póli­tíska stöðu Merkel og flokks hennar, Kristi­legra demókrata, í Þýska­landi.

[adspot]

Fyrsta útgáfa Charlie Hebdo í Þýska­landi var prentuð í 200.000 ein­tökum og spannar 16 síður. Blaðið varð heims­þekkt eftir að hryðju­verka­menn gerðu árás á rit­stjórn­ar­skrif­stofur blaðs­ins í París í jan­úar 2015 þar sem tólf manns voru myrtir. Charlie Hebdo er nú fram­leitt á leyni­stað í Frakk­landi, í bæði franskri og þýskri útgáfu. Rit­stjóri þýsku útgáf­unnar er 33 ára kona frá Berlín. Hún hefur farið að ráði kollega sinna og gengur undir dul­nefn­inu Minka Schneider.

Aðal­teikn­ari þess­arar fyrstu útgáfu er Laurent Sourisseau sem gengur undir lista­manns­nafn­inu Riss. Hann varpar raun­særri mynd af fólki sem hann hefur kynnst á ferðum sínum eftir árás­irnar, ferða­manna­straumnum til Evrópu og öðrum sam­fé­lags­málum.

Riss særð­ist alvar­lega í árásum hryðju­verka­mann­anna í París. Hann sagði í sam­tali við ARD að húmor væri alls staðar, meira að segja í Þýska­landi. „Þetta er til­raun hjá okkur að gefa Charlie Hebdo út á öðru tungu­máli og reyna að hafa uppi á nýjum aðdá­endum tíma­rits­ins sem geta hjálpað okkur að vernda það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár