Sjálfstæðisflokkur aftur stærstur

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist á ný stærsti flokkur lands­ins og stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist meiri en síð­ustu vikur.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú á ný stærstur stjórn­mála­flokka á Íslandi í nýrri könnun MMR. Flokk­ur­inn mælist með 26,9 pró­senta fylgi en var með 24,4 pró­sent í síð­ustu könnun. Vinstri græn mæld­ust með næst mest fylgi, eða 23,9 pró­sent, sem er lækkun um 3,1 pró­sentu­stig frá því í síð­ustu könnun. Allar fylg­is­breyt­ingar flokk­anna eru þó innan vik­marka.

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mælist nú 12,2 pró­sent, 1,5% meira en í síð­ustu könnun. Fylgi Pírata mælist nán­ast það sama og síð­ast, 11,6 pró­sent sam­an­borið við 11,9 pró­sent síð­ast. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist átta pró­sent, en mæld­ist tíu pró­sent í síð­ustu viku, sem var í fyrsta skipti frá því um mitt síð­asta ár sem flokk­ur­inn mæld­ist í tveggja stafa tölu.

Viðreisn mælist með 6,3 pró­senta stuðn­ing, en það var 6,2 pró­sent í síð­ustu könnun, og Björt fram­tíð mælist með 5,2 pró­sent en mæld­ist með 5,4 pró­sent í síð­ustu könnun.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist þremur pró­sentu­stigum hærri nú en í síð­ustu viku, og segj­ast nú 37,9 pró­sent styðja rík­is­stjórn­ina. Í byrjun febr­úar mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 32,6 pró­sent.

Könnunin var gerð dag­ana 17. til 24. febr­úar, og heild­ar­fjöldi svar­enda var 928 ein­stak­lingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár