Mynd: Pexels

Nöturlegur aðbúnaður barna fanga – „Þetta er allt rekið á horriminni“

Ryðgaður gámur sem er opinn milli kl. 12.30 og 15.30 á virkum dögum. Engar upp­lýs­ingar eða fróð­leikur fyrir börn, engir barna­full­trúar og engar gisti­heim­sóknir. Illa er búið að börnum fanga á Íslandi í sam­an­burði við hin Norð­ur­löndin.

Ísland er mik­ill eft­ir­bátur ann­arra Norð­ur­landa þegar kemur að aðstæðum barna sem eiga for­eldra í fang­elsi. Enginn veit hvað þessi börn eru mörg því upp­lýs­ingum um þau er ekki safnað. Í fang­els­unum starfa engir barna­full­trúar, engin sam­tök gæta hags­muna þeirra sér­stak­lega og aðstaða til að taka á móti þeim í fang­els­unum er almennt fábrotin, ef hún er til staðar yfir höfuð.

Margir fangar á Sogni vilja ekki fá börnin sín í heim­sókn, m.a. vegna þess að þar er „allt mor­andi“ í mönnum sem sitja inni fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega á börnum. Fangar í hinu nýja fang­elsi á Hólms­heiði vilja sumir ekki hitta börnin vegna þess að heim­sóknar­í­búðin er inni í sjálfu fang­els­inu. Föngum á Litla-Hrauni býðst að hitta sín börn í svoköll­uðu Barna­koti milli klukkan 12.30 og 15.30 á virkum dögum. Kotið er ryðg­aður gámur en hann þó skömminni skárri en heim­sókn­ar­að­staðan inni á Litla-Hrauni þar sem „skít­hrædd“ börn þurftu að hlusta á fólk í næsta her­bergi „lifa hjóna­lífi“.

Börn fanga eru „við­kvæmur og mjög gleymdur“ hópur á Íslandi, sagði Salvör Nordal, umboðs­maður barna, á fundi í Odda í gær þar sem kynntar voru slá­andi nið­ur­stöður tveggja rann­sókna á stöðu barna sem eiga for­eldri í fang­elsi hér á landi. Þessi hópur býr við lak­ari aðstæður að öllu leyti en jafn­aldrar þeirra á Norð­ur­lönd­unum, hvort sem það varðar aðstöðu til heim­sókna í fang­els­unum sjálfum, upp­lýs­inga­gjöf sem hentar þeirra þroska, stuðn­ing eða jafn­ingja­fræðslu.

Allt saman rétt

Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar, sagði ástæð­una vera síend­ur­tekna kröfu stjórn­valda um nið­ur­skurð. „Það er óþægi­legt að heyra þetta,“ sagði hann um nið­ur­stöð­urnar, „en þetta er allt saman rétt.“ Hann við­ur­kenndi að fang­els­is­mál hefðu hingað til lítið verið hugsuð út frá hags­munum barna. „Þannig að þetta vekur mann.“ Hins vegar benti ekk­ert í máli hans til þess að hægt væri að bregð­ast við og bæta aðstæður fyrir börnin. Til þess skorti pen­inga.

Hann benti á að þrír félags­ráð­gjafar sinntu um þús­und manna hópi fólks innan fang­els­is­kerf­is­ins, sagði yfir­völdum í gegnum tíð­ina hafa verið „nákvæm­lega sama“ um inni­hald fang­els­is­vistar, fang­elsin væru yfir­full af gæslu­varð­halds­föngum og „burð­ar­dýrum sem ein­hverra hluta vegna fara í fang­elsi og eru þar enda­laust“ en á sama tíma væri gerð krafa um enn frek­ari hag­ræð­ingu.

Engar upplýsingar eru til um hversu mörg börn á Íslandi eiga foreldri sem er í fangelsi.
Engar upp­lýs­ingar eru til um hversu mörg börn á Íslandi eiga for­eldri sem er í fang­elsi.

„Börn fanga eru jað­ar­settur hópur í við­kvæmri stöðu sem þarfn­ast sér­stakrar verndar,“ sagði Lilja Katrín Ólafs­dóttir, lög­fræð­ingur sem kynnti á fund­inum laga­lega grein­ingu sína á rétt­indum og stöðu barna sem eiga for­eldra í fang­elsum. Hún minnti á að skyldur for­eldra gagn­vart börnum falla ekki niður í fang­elsum þótt afplán­unin geri þeim vissu­lega erf­ið­ara um vik að sinna þeim. „Þess vegna er mik­il­vægt að það sé gripið til sér­stakra aðgerða til að gera for­eldrum kleift að rækja þessar skyldur sínar eftir fremsta megni.“

Barn á ekki að þjást vegna gjörða fullorðinna

Í barna­lögum, barna­sátt­mál­unum og til­mælum Evr­ópu­ráðs­ins er kveðið á um rétt barna til að umgang­ast for­eldri sem það býr ekki hjá og vikið að skyldum yfir­valda til að virða rétt barns til sam­bands við fang­elsað for­eldri. „Það á að hvetja og gera for­eldrum kleift að við­halda reglu­legu og þýð­ing­ar­miklu sam­bandi við börn sín,“ sagði Lilja Katrín, „og barn ætti ekki að þjást eða vera refsað vegna tak­mark­ana eða aga­við­ur­laga sem sett eru á for­eldra þess.“

Fangelsi ættu, sam­kvæmt til­mælum Evr­ópu­ráðs­ins frá árinu 2018, að hafa sér­staka barna- eða fjöl­skyldu­full­trúa. Slíkir full­trúar starfa við flest fang­elsi á hinum Norð­ur­lönd­unum og gegna mik­il­vægu hlut­verki við að skipu­leggja heim­sóknir, styðja við sam­band barns og for­eldris og gæta hags­muna barns á ýmsum fleiri sviðum. Engan slíkan er að finna í íslenskum fang­elsum.

Þá hefur Evr­ópu­ráðið einnig áréttað að heim­sóknir barna í fang­elsi eigi ekki að trufla aðra þætti í lífi þess, s.s. mæt­ingu í skóla. Þessu er ekki fram­fylgt í öllum fang­elsum á Íslandi.

Samanburður á aðstöðu fyrir börn fanga á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum.
Sam­an­burður á aðstöðu fyrir börn fanga á Íslandi og á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finn­landi eru starf­rækt hags­muna­sam­tök fyrir börn fanga með hjálp­ar­línum og spjall­borðum, boðið upp á sér­stök heim­sókn­ar­her­bergi sér­sniðin að þörfum barna og jafn­vel heim­sókn­ar­hús þar sem börn geta gist ásamt for­eldri sínu. Í öllum þessum löndum hafa fang­els­is­mála­yf­ir­völd gefið út upp­lýs­ingar og fróð­leik fyrir börn fanga, t.d. hvernig það er að koma í heim­sókn í fang­elsið og þar fram eftir göt­unum.

Staða barna fanga veikust á Íslandi

„Löggjöf og fram­kvæmd Norð­ur­land­anna á sviði fulln­ustu refs­inga er sam­bæri­leg að mörgu leyti,“ sagði Lilja Katrín. Misjafnt er vissu­lega hversu mikil áhersla er lögð á rétt­indi barna fanga „en það er þó ljóst að staða þessa hóps er hvað veik­ust á Íslandi“.

Mik­il­vægt sé að yfir­völd skrái þegar við upp­haf afplán­unar hvort fangi eigi barn. „Það er nauð­syn­legt að bera kennsl á umfangið til að hægt sé að veita börnum þá vernd og gæta hags­muna þeirra eins og barna­sátt­mál­inn krefst af okkur.“

Börn fanga eru hin þöglu fórn­ar­lömb fang­els­is­vist­unar, sagði Daníel Guð­jóns­son, nemi í menn­ing­ar­tengdi afbrota­fræði við háskól­ann í Lundi, sem heim­sótti fang­elsin á Íslandi í sumar, lagði spurn­inga­lista fyrir fanga og tók við­töl við þá og starfs­menn.

Börn fanga finna fyrir sorg og missi, skömm og for­dómum, sagði Daníel. Þar af leið­andi finna þau sig oft knúin til að fela eða ljúga til um aðstæður for­eldra sinna. Rann­sóknir sýndu hins vegar að góð tengsl og umgengni barns við for­eldri í fang­elsi komi báðum til góða og minnki líkur á and­legum veik­indum og ein­mana­leika.

Hann fór því næst yfir aðstöðu í fang­els­unum.

Sogn og Kvíabryggja

Engin sér­út­búin aðstaða til að taka á móti börnum er í opnu fang­els­unum að Kvía­bryggju og Sogni. Við Kvía­bryggju er þó hús sem kallað er „ein­býlið“ og það er oft nýtt til heim­sókna og á Sogni er „Hjá­leigan“ gjarnan nýtt í sama til­gangi. „En það eru dæmi, alveg nokkur, að fangar vilji ekki fá börnin sín í heim­sókn á Sogn vegna við­veru kyn­ferð­is­af­brota­manna þar,“ sagði Daníel, eða líkt og einn fang­inn orð­aði það við hann: Þar væri „allt mor­andi“ í mönnum sem hefðu brotið á börnum.

Í júlí voru fjórir af 22 föngum að afplána dóma vegna slíkra brota að Sogni. Fangar, makar þeirra og fjöl­skyldur tóku fram að þau væru ekki sátt við að börn þyrftu að deila sama rými og slíkir fangar og dæmi um að makar hafi tekið fyrir frek­ari heim­sóknir barna sinna þangað af þessum sökum. „Þegar ég var inni á Litla-Hrauni komu börnin mín viku­lega,“ sagði einn fang­anna. „Svo fór ég á Sogn. Þegar barns­móðir mín vissi af fjölda manna á Sogni sem voru þar fyrir að brjóta á börnum hættu heim­sóknir alveg. Eftir það hitti ég bara börnin í dags­leyfum einu sinni í mán­uði.“

Líkt og á Sogni vantar sér­tækt heim­sókn­ar­rými fyrir börn á Kvía­bryggju. Þá töl­uðu fang­arnir um skort á leik­tækjum í og við fang­elsið, að þar mættu líka vera til taks snjó­þotur og fleiri leik­föng.

Litla-Hraun

„Hérna sjáið þið Barnakot. Þetta er kannski ekki fal­leg­asti gámur í heimi,“ sagði Daníel er hann varp­aði mynd af heim­sókn­ar­gámi við Litla-Hraun upp á tjaldið í Odda. Gámurinn er þó skárri en hið hefð­bundna heim­sókn­ar­rými sem er inni í fang­els­is­bygg­ing­unni sjálfri, bætti hann við. Sumir fangar vilji hrein­lega ekki fá börn sín í heim­sókn vegna þess rýmis.

Hann hafði eftir einum fang­anna: „Það er ekk­ert gaman að vera með barn lokað inni í her­bergi í 2-3 tíma. Það er ekk­ert úti­svæði, leik­svæði, eða neitt fyrir þau. Þetta er bara hálf­gerð auka­refs­ing.“

Barnakot kom til sög­unnar árið 2015. Vissu­lega betri aðstaða en var fyrir, hún er ekki innan veggja fang­els­is­ins, en hins vegar aðeins opin milli kl. 12.30 og 15.30 á virkum dögum. „Þetta ætti að vera þver­öf­ugt,“ sagði einn fang­anna við Daníel. „Fólk þarf að taka sér frí í vinnu og börnin úr skóla til að koma í heim­sókn.“

Opn­un­ar­tími hentar hvorki börnum né þeim sem fylgja þeim í fang­elsin „og það kemur bara niður á börn­unum,“ sagði Daníel. „Einn sem ég tal­aði við hafði ekki hitt börnin sín í átta mán­uði bara vegna þess að þau voru búsett úti á landi.“

Hólmsheiði

Í hinu nýja fang­elsi á Hólms­heiði er sér­stök íbúð fyrir fanga til að taka á móti gestum. Fangar segja rýmið gott og að þar sé næði. Í íbúð­inni eru kojur og rúm en Daníel benti á að það skortir heim­ild til þess að gista þar líkt og staðið hefði til og boðið er upp á í fang­elsum á öðrum Norð­ur­löndum.

Gagn­rýnin á fyr­ir­komu­lagið er einnig sú að íbúðin er inni í fang­els­inu og dæmi eru um að fólk vilji ekki koma með eða fá börn þangað inn. Fanga­verðir segja íbúð­ina ekki hafa verið not­aða jafn mikið og vonir stóðu til.

„Eina fang­elsið á Íslandi sem er í notkun í dag og er byggt sem fang­elsi er einmitt fang­elsið á Hólms­heiði sem kemur skást út úr þessum sam­an­burði,“ sagði Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar, sem sat í pall­borði eftir fram­sögur Lilju Katrínar og Daníels. „Hin fang­elsin voru aldrei hönnuð sem fang­elsi. Þetta er bónda­bær. Þetta er gam­alt sjúkra­hús og svo fram­vegis. Yfir­völdum hefur verið nákvæm­lega sama almennt í gegnum tíð­ina hvert inni­hald vist­ar­innar er. Það er bara flöt nið­ur­skurð­ar­krafa á þennan mála­flokk.“

Hann sagði allt sem bent væri á í rann­sókn­unum rétt „algjör­lega hár­rétt. Við viljum gera betur, það er ótrú­lega margt að hjá okkur“.

En hann vildi einnig að tekið yrði inn inn í mynd­ina hver staðan var fyrir aðeins fáum árum. „Við vorum að reka fang­elsi á und­an­þágu heil­brigð­is­yf­ir­valda. Hegn­ing­ar­húsið var hand­ó­nýtt. Fólk var með sveppa­sýk­ingar. Fang­elsið fyrir konur í Kópavogi var við hlið­ina á leik­skóla. Allir fang­arnir voru til sýnis þar. Þetta var hræði­leg staða sem við vorum í, bara fyrir 10-15 árum síðan.“

Hann telur líka að gæta verði raun­sæis í því hvaða breyt­ingum hægt sé að ná fram. Bráðum verði ráð­ist í breyt­ingar á Litla-Hrauni og í þeim tekið til­lit til þess að „fangar eiga börn sem eiga rétt á því að koma í fang­elsið án þess að verða skít­hrædd“.

Hann sagði ástæð­una fyrir því að Barnakot – „þessi gámur“ eins og hann orð­aði það – væri á Litla-Hrauni þá að börn hafi áður þurft fara fara inn í heim­sókn­ar­að­stöðu og „hlusta á annað fólk lifa hjóna­lífi. Það var stað­reynd. Það glymur þarna á milli. Þetta var ekk­ert hannað fyrir börn. Þetta kerfi, eins og það er upp­byggt síð­ustu ára­tug­ina er til skammar en við erum að vinda ofan af því“.

Evrópuráðið mælir með því að útbúin sé aðstaða sérsniðin að börnum þar sem þau geta hitt foreldri sitt.
Evr­ópu­ráðið mælir með því að útbúin sé aðstaða sér­sniðin að börnum þar sem þau geta hitt for­eldri sitt.

Salvör sagði að svo virt­ist sem fang­els­is­mál á Íslandi væri ekki hugsuð út frá rétt­indum barna í neinu til­liti. Helgi Gunn­laugs­son, pró­fessor í afbrota­fræði, rifj­aði upp þegar hann kom heim úr námi skömmu fyrir 1990 og spurði yfir­völd fang­els­is­mála um aðgang barna að föngum. „Og vit­iði hvert svarið var? Að fang­arnir hefðu átt að hugsa um það fyrr. Þetta var sem sagt bara hluti af refs­ing­unni. Þarna var barnið ekki til. Það var bara fang­inn og refs­ingin.“

Og meiri niðurskurður

Salvör spurði hvers vegna gögnum um börn fanga væri ekki safnað. Páll sagði að áður fyrr hafi verið teknar svo­kall­aðar inn­komu­skýrslur af öllum föngum þar sem slíkar upp­lýs­ingar komu fram. „Það var hrein­lega út af nið­ur­skurði sem við lögðum það af,“ sagði hann.

Hann sér ekki fyrir sér að hægt verði að ráða barna­full­trúa eða setja upp­lýs­ingar sniðnar að börnum á vef Fang­els­is­mála­stofn­unar líkt og nágranna­löndin hafa gert. „Þetta er bara spurn­ing um fjár­magn. Ekkert annað.“

Er þetta ekk­ert sem þið sjáið breyt­ast í náinni fram­tíð? spurði Salvör.

„Nei,“ svar­aði Páll, „ef ég á að segja alveg eins og er.“ Ár eftir ár sé gerð nið­ur­skurð­ar­krafa. „Þetta er harka­legt en svona er þetta.“

Það er flókið ferli að fá börn í heimsókn í fangelsi, segir formaður félags fanga.
Það er flókið ferli að fá börn í heim­sókn í fang­elsi, segir for­maður félags fanga.

Fund­ar­gestir vildu vita af hverju opn­un­ar­tími Barna­kots væri svo stuttur sem raun ber vitni. „Bara nið­ur­skurður, ekk­ert annað,“ svar­aði Páll.

Til umræðu hefði verið að fangar á Litla-Hrauni gætu líka nýtt íbúð­ina á Hólms­heiði. „En málið er bara, eins og staðan er núna, að það er allt að verða vit­laust. Hér er enda­laust af gæslu­varð­haldi. Fang­elsin eru alveg troð­full, miklu meira heldur en áætl­anir gerðu ráð fyrir. Það er allt að fyll­ast af burð­ar­dýrum hérna sem ein­hverra hluta vegna fara í fang­elsi og eru þar enda­laust. Þú þarft smá svig­rúm til að færa ein­stak­ling af Litla-Hrauni yfir á Hólms­heiði.“ Því sé ekki að fagna.

„Hefur þú vilja til að breyta þessu?“ spurði einn fund­ar­gesta.

„Já,“ svar­aði Páll ákveð­inn að bragði. „Ég væri mjög hrif­inn af því að hafa til dæmis barna­full­trúa. En ég myndi líka vilja hafa iðju­þjálfa. Ég myndi vilja hafa félags­ráð­gjafa sem væru að sinna öllum föngum, sál­fræð­inga og svo fram­vegis. Staðan er bara svona.“

Vanræksla?

Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur var meðal fund­ar­gesta og spurði í ljósi yfir­lýs­inga Páls um lít­inn póli­tískan vilja hvort um van­rækslu gagn­vart börnum væri að ræða af hálfu rík­is­ins.

„Ég er ekki alveg viss um að þetta sé með­vitað,“ svar­aði Páll. Stjórn­völd virð­ist ekki gera sér grein fyrir því eða gleyma að þegar eitt­hvað athæfi er gert refsi­vert, s.s. að leggja tveggja ára fang­els­is­refs­ingu við því að aka raf­skútu undir áhrifum áfengis, bæta svo við lög­gæslu­deildum og dóm­stólum að „þetta endar allt í ein­hverri afurð og afurðin er hjá Fang­els­is­mála­stofnun“.

Nið­ur­skurð­ar­krafan bein­ist ekki ein­göngu gegn börnum líkt og ein­hverjir fund­ar­gesta veltu fyrir sér. „Það er allt rekið á horrim­inni,“ sagði hann.

Áhersla stjórn­valda væri mjög skýr: Nýtingin á að vera 100 pró­sent í fang­els­unum, refs­ingar ekki að fyrn­ast og bið­tími eftir afplánun stuttur. „Við eigum á sama tíma að skera niður. Við höfum verið að loka fang­elsum, fækka fanga­vörðum, fækka sér­fræð­ingum, fækka í yfir­stjórn. Þetta kemur alls staðar niður. Ekkert af því er gott. Þetta hefur endað með ofbeldi og árásum innan fang­elsanna og svo fram­vegis. Þetta er bara slæmt.“

Styrking fjölskyldubanda lykillinn

Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu, sat einnig í pall­borði og sagði að gera þyrfti grund­vall­ar­breyt­ingu í fang­els­is­mál­unum. „Við þurfum að hætta með refsi­stefn­una og taka upp end­ur­hæf­ing­ar­stefn­una. Og einn af aðal­lyklunum er styrk­ing fjöl­skyldu­banda. Börn og fjöl­skyldur fanga. Þetta mun draga úr kostn­aði, ekki auka hann. En þetta er bara spurn­ing um þennan póli­tíska vilja. Og þar af leið­andi ger­ist ekki neitt.“

Salvör Nordal, umboðs­maður barna, sem átti frum­kvæði að rann­sókn­unum og fund­inum, sagð­ist sann­ar­lega vona að eitt­hvað færi að ger­ast í kjöl­far útgáfu skýrsl­unnar. Að hún vekti fólk til umhugs­unar og væri upp­hafið að „ein­hverri góðri veg­ferð“. Hennar emb­ætti ætl­aði sann­ar­lega ekki að láta sitt eftir liggja og halda áfram að vinna að mál­efn­inu því „börn fanga eru hópur sem virki­lega þarf að taka utan um“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið undanfarið ár