Hundruð milljarða til að verjast sjónum

Vegna hækk­andi sjáv­ar­borðs þurfa Danir að eyða millj­örðum til að koma í veg fyrir að sjór­inn leggi undir sig stórt land­svæði.

Margar þjóðir standa á næstu ára­tugum frammi fyrir miklum vanda vegna hækk­andi sjáv­ar­borðs. Danir þurfa að eyða millj­örðum til að koma í veg fyrir að sjór­inn leggi undir sig stór land­svæði.

Umræður um hlýnun and­rúms­lofts­ins og sá mikli vandi sem steðjar að mann­kyni hafa verið fyr­ir­ferð­ar­miklar á allra síð­ustu árum. Inn í þá umræðu bland­ast margt: bráðnun jökla og plastið, sem eng­inn veit hvernig á að losna við og er ógnun við líf­rík sjáv­ar­ins, ber kannski hæst í þeirri umræðu en áhyggju­efnin eru mörg. Þar á meðal hækk­andi sjáv­ar­borð.

Síendurtekin flóð

Danmörk er eitt þeirra landa sem liggja mjög lágt og þar hafa svokölluð storm­flóð, valdið miklu tjóni á síð­ustu árum. Mestu flóðin verða þegar saman fer stór­streymi (mesti munur flóðs og fjöru), lágur loft­þrýst­ingur og rok. Mörg dæmi eru um slík storm­flóð í Danmörku en á síð­ustu ára­tugum hefur þeim fjölgað til muna og mest á allra síð­ustu árum. 3. des­em­ber 1999 gerði mik­inn storm sunn­ar­lega á vest­ur­strönd Jótlands. Þar hækk­aði sjáv­ar­borð um rúma fimm metra og olli miklu tjóni. Þá var lág­sjávað en í stór­streymi hefði sjáv­ar­borðið hækkað um að minnsta kosti sex metra.

Í byrjun nóv­em­ber 2006 olli slíkt flóð miklu tjóni, um það bil 4 þús­und hús skemmd­ust mikið og mörg til við­bótar skemmd­ust minna. Þá hafði verið hvöss vest­an­átt dögum saman sem þrýsti sjónum suður Kattegat og alla leið í Eystra­salt. Þegar storm­inn lægði gekk sjór­inn til baka og olli flóði á svæð­unum fyrir sunnan Litla- og Stóra­belti (badekarseffekt).

Stíf norð­an­átt hefur sömu­leiðis iðu­lega orðið til að þrýsta sjó inn í Hró­arskeldu­fjörð­inn og valdið miklu tjóni. Danska vík­inga­skipa­safnið er fyrir botni fjarð­ar­ins og nær í sjó fram. Þar hefur margoft orðið tjón af völdum sjávar og margir ótt­ast að sjór geti valdið skemmdum á vík­inga­skip­unum sem safnið hýsir. Hug­myndir voru uppi um að flytja safnið, jafn­vel rífa húsið. Nýjustu tíð­indi í þeim efnum eru að til standi að flytja vík­inga­skipin í dóm­kirkj­una í Hró­arskeldu, skammt frá safn­inu. Hús safns­ins yrði hins­vegar áfram á sínum stað og hluti starf­sem­innar sömu­leiðis.

Kostnaðarsamar varnir

Í árs­byrjun 2017 gerði mikið flóð á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu og við Køgebugt, tjónið var metið á 150 millj­ónir danskra króna ( 2.8 millj­arða íslenska). Í fram­haldi af því ákvað stjórn sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að fá danska verk­taka­fyr­ir­tækið Cowi til að meta þörf og kostnað við flóða­varnir í Kaup­manna­höfn og nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum. Þetta var í fyrsta skipti í Danmörku sem reynt hefur verið að meta slíkt.

Sér­fræð­ingar Cowi kynntu skýrsl­una, sem er mjög ítar­leg, fyrir nokkrum dögum. Jeppe Sikker Jensen, einn sér­fræð­ing­anna, sagði að gengið hefði verið út frá því að þeir varn­ar­garðar sem þegar eru komnir, til dæmis á Amager og sunnan við Kaup­manna­höfn, yrðu styrktir og jafn­framt gerðir margir nýir. Hann sagði að við gerð flóða­varna væru ýmis sjón­ar­mið sem taka þyrfti til­lit til. Því hærri og öfl­ug­ari sem varn­ar­garð­arnir væru, því örugg­ari væru þeir. Kostn­að­ur­inn yrði jafn­framt meiri og „háir varn­ar­garðar eru sjaldn­ast augna­yndi“.

Jeppe Sikker Jensen sagði að miðað við hund­rað ára reikni­líkanið (stór­flóð einu sinni á öld) væri gert ráð fyrir að kostn­að­ur­inn við gerð varn­ar­garða yrði um það bil 22 millj­arðar danskra króna (417 millj­arðar íslenskir). Sú tala væri mjög var­lega áætluð og miðað við þær breyt­ingar sem eiga sér stað þessi árin (eins og kom­ist var að orði) yrði kostn­að­ur­inn lík­lega miklu meiri.

Hann nefndi líka hvað myndi ger­ast ef miðað væri við stærsta flóð á þús­und árum. Þá færi suð­ur­hluti Kaup­manna­hafn­ar­svæð­is­ins á kaf, flug­völl­ur­inn á Kastrup myndi lok­ast, lesta­kerfið, þar með talið metro­kerfið, myndi lam­ast, Eyr­ar­sunds­brúin myndi lok­ast. „Ef þetta ger­ist erum við að tala um stjarn­fræði­legar upp­hæðir,“ sagði Jeppe Sikker Jensen.

Ekki ráð nema í tíma sé tekið

Sér­fræð­ingar sem danskir fjöl­miðlar hafa talað við, eftir að skýrslan var birt, fagna útkomu hennar. Thomas Lykke Andersen lektor í bygg­inga­fræðum við Ála­borg­ar­há­skóla og sér­fróður um flóða­varnir sagði í við­tali við dag­blaðið Politi­ken að oft væri reyndin sú að farið væri að hugsa um fyr­ir­byggj­andi aðgerðir eftir að skað­inn væri skeður en betra væri að byrgja brunn­inn fyr­ir­fram.

Hver á að borga?

Flóða­varnir kosta mikla pen­inga og það gerir tjón af völdum flóða sömu­leiðis. Allir sem eru með danska bruna­trygg­ingu borga til­tekna upp­hæð, sem ekki er há, í svo­kall­aðan þjóð­ar­flóða­sjóð. Yfir sjóðnum er stjórn, sem ákveður hvort til­teknar aðstæður kall­ist „storm­flóð“. Ef stjórnin metur það svo getur fólk sótt um bætur.

Eftir flóðin árið 2017 ákvað bæj­ar­stjórnin í Køge að leggja sér­stakan árlegan skatt á íbúð­ar­hús­næði á til­teknum svæðum „ flóða­hættu­svæðum“ eins og það er kallað. Skatt­ur­inn er þús­und krónur danskar per íbúð (tæp­lega 19 þús­und íslenskar). Þótt slíkt gjald hrökkvi ekki til ef til kast­anna kemur er það þó að mati bæj­ar­stjórn­ar­innar í Køge til marks um meiri ábyrgð þeirra sem búa á slíkum svæðum.

Lea Wemelin, umhverf­is­ráð­herra Dana, segir að þetta flóða­varna­mál (eins og hún orð­aði það) sé svo stórt að allir verði að taka höndum saman og vatnið virði ekki bæj­ar­mörk.

Þótt þessi umfjöllun sé ein­skorðuð við Kaup­manna­höfn og nágrenni tak­markast flóða­hættan ekki við dönsku höf­uð­borg­ina. Hættan nær líka til ann­arra svæða í Danmörku og margra ann­arra landa. Í Evrópu er Holland það land sem lengst er komið í flóða­vörnum, enda tals­verður hluti lands­ins undir sjáv­ar­máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár