Hækka leigu félagsíbúða á Seltjarnarnesi um 45 prósent

Sel­tjarn­ar­nes­bær hefur sam­þykkt að hækka húsa­leigu félags­legra leigu­í­búða í bænum um 45 pró­sent í áföngum á næstu mán­uðum. Leiga á tveggja her­bergja félags­í­búð hækkar í rúm­lega 117 þús­und krónur.

Seltjarnarnesbær
Sel­tjarn­ar­nes­bær Mynd: Birgir Þór Harðarson

Húsa­leiga félags­legra leigu­í­búða á Sel­tjarn­ar­nesi mun hækka um 45 pró­sent í áföngum á næstu sex mán­uðum. Þetta var sam­þykkt á bæj­ar­stjórn­ar­fundi í gær en 160 millj­óna króna halli var á rekstri bæj­ar­ins á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Bæj­ar­full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar gerðu athuga­semdir við breyt­ing­una og sögðu það vera und­ar­lega for­gangs­röðun að hækka húsa­leigu félags­í­búða og hafna kjara­bótum leik­skóla­kenn­ara á sama tíma og kjara­samn­ingur bæj­ar­stjóra er upp­færður.

Dæmi um 60 prósenta hækkun á einu bretti

Bæj­ar­stjórn Sel­tjarn­ar­nes­bæjar sam­þykkti í gær með fimm atkvæðum til­lögu fjár­mála­stjóra bæj­ar­ins um breyt­ingar á húsa­leigu félags­legra leigu­í­búða. Breyt­ingin tekur gildi þann 1. októ­ber næst­kom­andi en leigan mun hækka í áföngum á næstu sex mán­uðum.

Leiga á eins og tveggja her­bergja íbúðum mun hækka fyrst í byrjun októ­ber og síðan aftur jan­úar á næsta ári. Leiga á þriggja og fjög­urra her­bergja íbúðum mun hækka í þremur áföngum, 1. októ­ber, 1. jan­úar á næsta ári og 1. mars.

Þegar þessar hækk­anir hafa komið til fram­kvæmda verður leigan á eins her­bergja íbúð 75.833 krónur. Leiga á tveggja her­bergja íbúð verður 117.537 krónur, leiga á þriggja her­bergja 148.375 og fjög­urra her­bergja á 173.625 þús­und.

Sig­ur­þóra Bergs­dóttir og Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, bæj­ar­full­trúar Sam­fylk­ingar Seltirn­inga, lögðu til að til­lög­unni yrði frestað þar sem engar mót­væg­is­að­gerðir væru kynntar til að minnka fjár­hags­legu áhrif hækk­an­anna. Þau bentu jafn­framt á að dæmi sé um að með breyt­ing­unni muni leiga hækka um 60 pró­sent á einu bretti sem sé mikið högg fyrir tekju­lága.

„Ástæður þess eru að þó að við styðjum við að félags­legar íbúðir séu ekki reknar með halla þá teljum við að 45% heild­ar­hækkun á leigu félags­legra íbúða eigi ekki að koma til án mót­væg­is­að­gerða til að minnka fjár­hags­leg áhrif fyrir við­kvæman hóp,“ segir í bók­un­inni.

Undarleg forgangsröðun að uppfæra kjarasamning bæjarstjóra á sama tíma

Jafn­framt láta bæj­ar­full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar færa til bók­unar að þeim þyki það und­ar­leg for­gangs­röðun hjá meiri­hlut­anum að á sama fundi og kynntur er 160 millj­óna króna halla­rekstur í hálfs­árs­upp­gjöri bæj­ar­ins þá sé ósk leik­skóla­kenn­ara um fram­hald á tíma­bundnum kjara­bótum hafnað og húsa­leiga á félags­legum íbúðum bæj­ar­ins hækkuð um 45 pró­sent en kjara­samn­ingur bæj­ar­stjóra upp­færður.

Bæj­ar­full­trú­arnir vísa þar til sam­þykktar bæj­ar­ráðs Sel­tjarnes­bæjar á fundi ráðs­ins þann 22. ágúst síð­ast­lið­inn um að laun bæj­ar­stjóra fylgi breyt­ingum í sam­ræmi við kjara­samn­inga Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, sam­an­ber sviðs­stjóra bæj­ar­ins.

„Þessi breyt­ing sem felur í sér að tengja launa­þróun bæj­ar­stjóra við sviðs­stjóra bæj­ar­ins er í eðli sínu ágæt en tíma­setn­ingin afleit. Bæj­ar­stjóri fékk 40% launa­hækkun árið 2016 og væri eðli­legra að þessi teng­ing myndi vera sam­þykkt þegar búið verður að und­ir­rita kjara­samn­inga sviðs­stjóra sem nú eru lausir. Bæj­ar­stjóri gæti þá fylgt þeirri launa­þróun sem tekur við eftir það,“ segir í bókun bæj­ar­full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar.

4 félagslegar íbúðir á hverja 1000 íbúa

[links]Félags­legar íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru alls 3.320 tals­ins í fyrra. Um 76 pró­sent þeirra eru í Reykja­vík eða alls þrjár af hverjum fjórum íbúðum. Til félags­legs hús­næðis telj­ast félags­lega leigu­í­búðir, leigu­í­búðir fyrir aldr­aða í eigu sveit­ar­fé­laga, leigu­í­búðir fyrir fatl­aða í eigu sveit­ar­fé­laga og aðrar íbúðir sem ætl­aðar eru til nýt­ingar í félags­legum til­gangi.

Alls eru nú um 17 félags­legar íbúðir á Sel­tjarn­ar­nesi auk tveggja fram­leigu­í­búða, sam­kvæmt félags­mála­stjóra Sel­tjarn­ar­nes­bæjar. Því eru nú um fjórar félags­legar íbúðir á hverja þús­und íbúa á Sel­tjarn­ar­nesi. Til sam­an­burðar eru tæp­lega 20 félags­legar íbúðir á hverja þús­und íbúa í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár