Félagslegum íbúðum í Hafnarfirði hefur fjölgað

Hafn­ar­fjarð­ar­bær sendi ekki full­nægj­andi upp­lýs­ingar inn til Vara­sjóðs hús­næð­is­mála, og því var fjöldi félags­legs hús­næðis í sveit­ar­fé­lag­inu í fyrra van­metið um ell­efu íbúðir. Um 76 pró­sent alls félags­legs hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er í Reykja­vík.

Í lok árs 2017 voru félags­legar íbúðir í Hafn­ar­firði 255 tals­ins, en ekki 244 líkt og kom fram í tölum frá Vara­sjóði hús­næð­is­mála sem Kjarninn greindi frá 7. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Vara­sjóð­ur­inn telur árlega allt félags­legt hús­næði sem er í boði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

[links]Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Hafn­ar­fjarð­arbæ má rekja vill­una í tölum Vara­sjóðs­ins til þeirra gagna sem sveit­ar­fé­lagið sendi til hans. Nú sé hins vegar verið að vinna í því að upp­færa þau gögn.

Þá seg­ist Hafn­ar­fjarð­ar­bær hafa keypt 13 íbúðir það sem af er ári og stefni að því að kaupa tvær til við­bótar fyrir árs­lok. Búið sé að ákveðna að leggja 500 millj­ónir króna á ári allt til árs­ins 2021 til kaupa á félags­legum íbúðum. Þeir fjár­munir eigi að nýt­ast til að kaupa fleiri minni íbúðir, eða allt að 16 á ári næstu árin.

Upp­lýs­inga­full­trúi Garða­bæjar hafði áður gert athuga­semd við tölur Vara­sjóðs­ins, sem sögðu að sveit­ar­fé­lagið ætti 23 félags­legar íbúðir. Það segir þó sjálft að félags­legu íbúð­irnar séu 29 tals­ins.

Mikill munur milli sveitarfélaga

Til félags­legs hús­næðis telj­ast félags­lega leigu­í­búðir, leigu­í­búðir fyrir aldr­aða í eigu sveit­ar­fé­laga, leigu­í­búðir fyrir fatl­aða í eigu sveit­ar­fé­laga og aðrar íbúðir sem ætl­aðar eru til nýt­ingar í félags­legum til­gangi.

[adpsot]Í frétta­skýr­ingu Kjarnans, sem byggði á tölum Vara­sjóðs hús­næð­is­mála, kom fram að félags­legum íbúðum hefði fjölgað um 96 í fyrra og hefðu verið 3.303 í lok árs. Þegar búið er að taka til­lit til athuga­semda Hafn­ar­fjarðar og Garða­bæjar þá hækkar sú tala í 3.320 alls. Af þeim voru 2.513 í Reykja­vík í byrjun árs 2018, eða 76 pró­sent allra slíkra.

Í Reykja­vík eru því tæp­lega 20 félags­legar íbúðir á hverja þús­und íbúa og í Kópavogi eru þær tæp­lega 13. Í Hafn­ar­firði eru þær um átta.

Þrjú sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu taka mun minni þátt í því að sjá þurf­andi fólki fyrir félags­legu hús­næði. Í Garðabæ eru tæp­lega tvær félags­legar íbúðir á hverja þús­und íbúa, í Mos­fellsbæ voru tæp­lega þrjár á hverja þús­und íbúa og á Sel­tjarn­ar­nesi um 3,5 félags­legar íbúðir á hverja þús­und íbúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár