Yfirvöld í Malasíu reyna að bæta ímynd pálmaolíu

„Pálma­olía er guðs­gjöf“ er slag­orð sem yfir­völd í Malasíu ætla að nota til að reyna að lappa upp á ímynd pálma­ol­í­unnar. Ræktun pálma­olíu ógnar líf­ríki í regn­skógum víða um heim og hefur varan mætt and­stöðu til að mynda í Evrópu.

Ávöxtur olíupálma. Úr kjarnanum er unnin ljós, gegnsæ pálmaolía en einnig er hægt að vinna svokallaða rauða pálmaolíu úr ávextinum sjálfum.
Ávöxtur olíu­pálma. Úr kjarn­anum er unnin ljós, gegnsæ pálma­olía en einnig er hægt að vinna svo­kall­aða rauða pálma­olíu úr ávext­inum sjálfum. Mynd: EPA

Yfirvöld í Malasíu berj­ast nú við að fegra ímynd pálma­ol­í­unnar en landið er næst­stærsti fram­leið­andi vör­unnar, á eftir Indónesíu. Þeirra nýjasta vopn í bar­átt­unni er slag­orðið „Pálma­olía er guðs­gjöf“ sem yfir­völd hyggj­ast nota í mark­aðs­setn­ingu.

Pálma­olía hefur mætt and­stöðu víða um heim vegna þeirra áhrifa sem rækt­unin hefur á umhverfið og er mark­aðs­setn­ing­unni ætlað að stemma stigu við þeirri and­stöðu. Í frétt Reuters er haft eftir Willie Mongin, ráð­herra plantekru- og hrá­vöru­mála í Malasíu, að mala­sísk stjórn­völd séu stað­ráðin í að nota slag­orðið í mark­aðs­setn­ingu bæði í Malasíu og alþjóð­lega.

[adspot]

Nýja slag­orðið kemur í stað eldra slag­orðs sem gæti útleggst sem „Elska pálma­ol­í­una mína“ sem notað var í mark­aðs­setn­ingu innan Malasíu. Slag­orð­inu var ætlað að efla stolt íbúa Malasíu fyrir þar­lendum pálma­ol­íu­iðn­aði en mátti þá sæta gagn­rýni víða að.

Alls er 28 pró­sent af allri pálma­olíu fram­leidd í Malasíu og fer landið með þriðj­ungs­hlut­deild í milli­ríkja­við­skiptum með vör­una. Ríki Evr­ópu­sam­bands­ins flytja inn mikið magn pálma­olíu en nú hefur hug­ar­far Evr­ópu­búa til vör­unnar breyst og sífellt fleiri mála­fylgju­menn tala gegn olí­unni.

Pálmaolía bönnuð í lífdísli

Á síð­asta ári sam­þykktu ríki Evr­ópu­sam­bands­ins að banna í skrefum elds­neyti sem unnið er úr pálma­olíu, svo­kall­aðan líf­dísil. Líf­dís­ill sem unnin er úr pálma­olíu verður því horf­inn af mark­aði í Evrópu árið 2030. En pálma­olíu er víðar að finna heldur en í elds­neyti. Alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki nota olí­una í fram­leiðslu sinni á ólíkum vörum. Svo dæmi séu tekin má hana finna í snyrti­vörum, þvotta­efni og í alls kyns mat­vælum, svo sem í kexi, ís, brauði og súkkulaði.

Á síð­asta ári var lögð fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga sem mið­aði að því að banna líf­dísil sem unnin er úr pálma­olíu hér á landi. Málið komst ekki lengra en til atvinnu­vega­nefndar en nefndin lagði til að til­lagan yrði sam­þykkt án breyt­inga í nefnd­ar­á­liti sínu. Í nefnd­ar­á­lit­inu segir að komið hafi fram hjá gestum sem komu fyrir nefnd­ina að ekki væri þörf á að flytja inn pálma­olíu til að setja í líf­dísil á Íslandi. Unnt væri að fram­leiða nægan líf­dísil á Íslandi, meðal ann­ars úr úrgangi og með ræktun repju­olíu.

Ræktun pálmaolíu ógnar lífríki

Á vef Alþjóð­lega nátt­úru­vernd­ar­sjóðs­ins (WWF) er fjallað um pálma­olíu og áhrif fram­leiðsl­unnar á umhverfi og líf­ríki. Þar segir að eft­ir­spurn eftir henni fari vax­andi og fram­leiðsla þar af leið­andi líka. Í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku stækki plantekrur ört á kostnað regn­skóga sem séu mik­il­væg híbýli fjöl­margra dýra­teg­unda. Teg­und­irnar sem um ræðir eru margar hverjar í útrým­ing­ar­hættu, til að mynda nas­hyrn­ingar, fílar og tígris­dýr. Þannig er dýr­unum ýtt til hliðar þegar skógur er felldur og svæðið sem þau hafa til umráða fer sífellt minnk­andi.

Þá segir á vef WWF að um 90 pró­sent af olíu­pálma heims­ins sé að finna á nokkrum eyjum Malasíu og Indónesíu. Í regn­skógum þess­ara eyja sé að finna eitt fjöl­breyttasta líf­ríki á jörð­inni. Bein tengsl eru á milli rækt­unar olíu­pálma og útrým­ingu regn­skóga á svæð­inu.

Malasar íhuga að kæra ákvörðun ESB

Pálma­olía er sem fyrr segir mik­il­væg útflutn­ings­af­urð í Malasíu. Pálma­olía er í fjórða sæti yfir útflutn­ings­vörur Malasíu sem skila mestu í þjóð­ar­búið en á fyrri hluta árs­ins feng­ust 4,4 pró­sent af útflutn­ings­tekjum Malasíu frá olí­unni. Á heims­vísu er pálma­ol­íu­iðn­að­ur­inn met­inn á 60 millj­arða dala og eru Malasía og Indónesía umsvifa­mest ríkja í fram­leiðsl­unni en tæp­lega 90 pró­sent af allri pálma­olíu er fram­leidd þar líkt og áður segir.

Malasísk yfir­völd íhuga nú að feta í fót­spor Indónesískra yfir­valda og kæra ákvörðun Evr­ópu­sam­bands­ins um að banna pálma­olíu í elds­neyti til Alþjóða við­skipta­stofn­un­ar­innar, WTO.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár