Hergagnaflug fyrir 125 milljónir

Íslensk stjórn­völd hafa frá því í lok febrúar greitt 125 milljónir króna fyrir hergagna­flutning. Stærstur hluti greiðslunnar hefur farið til flug­félagsins Bláfugls. Hluthafi í móður­félagi þess og hermála­fulltrúi Íslands hjá NATO hefur haft milli­göngu um viðskiptin. Tvær flugvélar rússneska ríkisins eru skráðar á íslenska loftfara­skrá. Bláfugl leigði vélarnar stuttu fyrir innrásina í Úkraínu en varð að skila þeim vegna viðskipta­banns gegn Rússum.

Utan­ríkis­ráðherra hafði í þrígang óskað eftir fresti til að svara fyrir­spurn Rósu Bjarkar Brynjólfs­dóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, um hergagna­flutninga íslenskra stjórn­valda til Úkraínu. Svarið barst loks í vikunni án þess þó að það varpaði frekara ljósi á umfang, tíðni eða hvað hefði verið flutt af hergögnum. Hins vegar svaraði utan­ríkis­ráðherra spurningu um heildar­kostnað við flugið.

Rósa BjörkSpurði utan­rík­is­ráð­herra um her­gagna­flutn­inga íslenskra stjórn­valda til Úkraínu.

„Um miðjan maí 2022 hafði íslenska ríkið greitt rúmlega 125 millj. kr. fyrir flutning á búnaði, fyrst og fremst hergögnum, til notkunar í Úkraínu,“ segir í svari ráðuneytisins. Um það hvers kyns hergögn hafi verið flutt segir að „fyrst og fremst hafi verið um að ræða skotfæri, en einnig annan búnað,“ en vísað er til þess að trúnaður ríki um nákvæma farmskrá með vísan til ákvæða upplýsinga­laga um samskipti við erlend ríki eða fjölþjóða­stofnanir.

…
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár