Salsasamfélagið í Reykjavík

„Í dans­inum týni ég mér í tón­list­inni,“ segir Edda Blöndal, fram­kvæmda­stýra Salsa Iceland. Í sam­tali við Stundina segir hún að horfa megi á salsa sem eitt form núvit­undar. „Í þær þrjár mín­útur sem dans­inn stendur yfir hverfa allar áhyggjur og vanda­mál og eina sem hægt er að gera er að fylgja tón­list­inni og dans­fé­lag­anum.“

Und­an­farin ár hefur áhugi á salsa auk­ist í Reykja­vík og viku­leg salsa­kvöld Salsa Iceland verða stöðugt vin­sælli. Edda segir dans­inn ekki síst góða leið til að nálg­ast fólk og á sama tíma njóta augna­bliks­ins.

„Ég stund­aði karate lengi og kynnt­ist dans­inum þegar ég var að keppa erlendis. Ég hélt svo áfram að dansa þegar ég bjó erlendis og á ferða­lögum mínum. Það sem er svo frá­bært við salsa er að hvar sem þú ert í heim­inum get­urðu alltaf fundið salsa. Þegar ég kom svo aftur til Íslands voru engin salsa­kvöld í Reykja­vík svo ég ákvað bara að búa það til,“ segir Edda, sem í kjöl­farið stofn­aði Salsa Iceland árið 2003. „Ég gerði þetta í sjálfselskum til­gangi, mig lang­aði bara að dansa. Ég hafði mikið dansað sjálf en byrj­aði á því að flytja inn salsa­kenn­ara. Þegar ég var svo búin að læra nóg fór ég að kenna. Frá því að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár