Sigmundur vill afsökunarbeiðni frá RÚV

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, vill að Rík­is­út­varpið biðji hann afsök­unar og konu hans afsök­unar á þeirri með­ferð sem þau hafi hlotið af hálfu RÚV á árinu 2016. Hann spyr Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóra að þessu í opnu bréfi sem hann birtir í Morg­un­blað­inu í morgun.

Sig­mundur Davíð fer þar í mjög löngu máli yfir sam­skipti sín við RÚV og segir m.a. að það hafi ekki farið fram­hjá neinum sem með málum hafi fylgst að „frá því að ég hóf þátt­töku í stjórn­málum fyrir átta árum síðan hefur hópur starfs­manna og verk­taka í Efsta­leiti 1 haft eitt og annað við mig og Fram­sókn­ar­flokk­inn að athuga umfram flesta (alla) aðra stjórn­mála­menn og -flokka.“ Hann segir um hóp að ræða sem hafi miklar skoð­anir á sam­fé­lags­málum en ekki mikla samúð með hans mál­stað, og kallar hóp­inn SDG-RÚV hóp­inn.

Sig­mundur nefnir engin nöfn og talar svo aðeins um RÚV í grein sinni, en ekki þennan ótil­greinda hóp. Hann heldur því meðal ann­ars fram að frétta­maður á RÚV hafi kallað hann skít­hæl þegar Icesave nið­ur­staðan hafi verið ljós og að hann hafi verið skammaður og gagn­rýndur af frétta­mönnum þar í gegnum tíð­ina, m.a. í Icesave og fyrir kosn­ing­arnar 2013. „Við þau bæt­ast meðal ann­ars ótal pistlar fast­ráð­inna starfs­manna og verk­taka, umfjöllun í umræðu- þáttum og jafn­vel barna­efni. Í við­tals­þáttum í útvarpi og sjón­varpi hef ég svo fengið sér­stakar trakt­er­ingar, jafn­vel frá þeim sem að öllu jöfnu gera út á að vera „lauf­léttir“ og lausir við póli­tík.“

Hann segir það ríkj­andi við­horf á RÚV að játa aldrei mis­tök, og fer í löngu máli yfir við­horf sitt gagn­vart umfjöllun RÚV um Panama­skjölin. „Fram­ganga Rík­is­út­varps­ins var öll með mestu ólík­indum og á engan hátt skyld því sem mér var á sínum tímum kennt að væru grund­vall­ar­reglur frétta­mennsku,“ skrifar hann meðal ann­ars. Hann fjallar um umfjöllun erlendra fjöl­miðla um Panama­skjölin og mál hans, en segir að RÚV og sam­verka­menn þess hafi ekki verið að fylgja for­dæmi erlendra miðla „heldur að mata þá til að reyna að beita þeim fyrir sig í íslenskri póli­tík.“

„Eftir því sem frá leið þurfti eng­inn að efast um hvert væri megin skot­markið. Þegar ég hafði stigið til hliðar hvarf skyndi­lega allur áhugi á Panama-skjölum og því hvaða nöfn hefðu birst þar og hvers vegna. Við tóku áhyggjur nokk­urra RÚV-aktí­vista af því að ég kynni að halda áfram í stjórn­málum. Þær áhyggjur leyndu sér ekki á manna­mótum og sam­fé­lags­miðlum. Eftir fylgdu afar sér­stæð afskipti af mál­efnum Fram­sókn­ar­flokks­ins, köllum það ein­lægan áhuga. Sá áhugi birt­ist m.a. í beinum útsend­ingum frá hverjum Fram­sókn­ar­fund­inum á eftir öðrum auk reglu­bund­inna við­tala við fólk sem menn vissu hvar þeir hefðu.“ 

Sig­mundur end­ur­tekur svo það sem hann hefur oft sagt, að félag þeirra hjóna, sem eig­in­kona hans á í dag, hafi aldrei verið notað til að draga úr skatt­greiðslum, að aldrei hafi verið reynt að fela til­vist félags­ins Wintris og hún hafi ekki nýtt tæki­færi til að hagn­ast á íslenskum aðstæðum. Þau hjón hafi ekki bara verið sam­visku­söm heldur fórn­fús. „Réttlæti RÚV felst í að níða þá í svaðið sem eru til­búnir að fórna eigin hags­munum en líta fram hjá því þegar menn verja eigin hags­muni. Það er sitt hvað rétt­læti og RÚVlæti.“

Hér má lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu Kjarnans um Wintris-málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár