Katrín segir þjóðina munu skera úr um hæfi sitt í embætti forseta

Katrín Jak­obs­dóttir segir í sam­tali við blaða­mann Heim­ild­ar­innar að hún treysti sér til þess að gæta hlut­leysis í sínum ákvörð­unum gagn­vart per­sónum og leik­endum í stjórn­málum sem hún þekkir vel eftir langan stjórn­mála­feril. Þá telur hún að þjóðin muni koma til með að skera úr um hæfi hennar til að gegna emb­ætti for­seta í kom­andi kosn­ing­unum.

Katrín Jakobsdóttir ,efndi til blaðamannafundar í Hörpu eftir hafa tilkynnt landsmönnum um ákvörðun sína um að segja sig frá stjórnmálum og bjóða sig fram í embætti forseta Íslands.

Á blaða­manna­fundi sem Katrín Jak­obs­dóttir hélt í Hörpu í dag, sagð­ist hún telja sig hæfa til þess að gegna emb­ætti for­seta Íslands, þrátt fyrir náin tengsl sín við sitj­andi ráð­herra og þing­menn. 

„Það er hins vegar þannig að for­set­inn er auð­vitað ekki van­hæfur gagn­vart lögum og verður að gæta þess í sínum ákvörð­unum að hann gæti hlut­leysis og taki ígrund­aðar ákvarð­anir.“

Hún segir spurn­ing­una snú­ast um hvort hún treysti sér til þess þrátt fyrir að þekkja per­sónur og leik­endur á sviði stjórn­mál­anna. „Svar mitt við því er já.“ 

Segir skoðanakannanir ekki hafa upplýst ákvörðun sína

Aðspurð hvort það sé sann­gjarnt að túlka það sem svo að hún sé með ákvörðun sinni að flýja sökkvandi skip segir Katrín að það megi alveg stilla því upp þannig. 

„Það er hins vegar ekki útaf skoð­ana­könn­unum sem ég tek þessa ákvörðun.“ 

Þá seg­ist Katrín ekki vera full eft­ir­sjár að stjórn­mála­ferli sínum loknum. „Ég hef staðið í þess­ari bar­áttu stjórn­málana í ríf­lega 20 ár, gert margt gott, ekki náð öllu fram. Svo bara stundum er tím­inn kom­inn og þá verður maður bara að segja það gott.“    

Rákust á annan frambjóðanda á leið á blaðamannafund

Á leið af blaða­manna­fundi Katrínar hittu blað­menn Heim­ild­ar­innar einn margra mót­fram­bjóð­enda Katrínar í kom­andi kosn­ingum. Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir lýsti á dög­unum yfir fram­boði til for­seta. Í við­tali á Hafn­ar­torgi sagð­ist hún verða góður for­seti og að henni lít­ist vel á að flytja í Garðabæ, fari svo að hún verði kosin.

Heim­ildin / Davíð Þór
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakjör 2024

InnlentForsetakjör 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakjör 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár