Kaþólska kirkjan vill hafa meiri áhrif á stjórnmál á Íslandi

Prestur innan kaþ­ólsku kirkj­unnar segir að kaþ­ólska kirkjan myndi vissu­lega vilja hafa meiri áhrif á stjórn­mál á Íslandi. Hann segir að rödd kaþ­ólsku kirkj­unnar hafi þó fengið lít­inn hljóm­grunn hjá stjórn­völdum á Íslandi hingað til.

Séra Jakob Rolland, prestur kaþólsku kirkjunnar í Reykjavík.
Séra Jakob Rolland, prestur kaþ­ólsku kirkj­unnar í Reykja­vík. Mynd: Kjarninn

Skoðanir kaþ­ólsku kirkj­unni hljóta ekki mik­inn hljóm­grunn hjá stjórn­völdum hér á landi og myndi kirkjan vilja hafa meiri áhrif á íslensk stjórn­mál. „Sjón­ar­mið okkar, sér­stak­lega hvað varðar mál þjóð­fé­lags­ins eru ekki endi­lega trú­mál heldur bara almenn þjóð­fé­lags­mál sem skipta kirkj­una máli. Því við viljum vernda lífið og standa fyrir mann­rétt­indum. Þá skiptir máli að röddin okkar heyr­ist,“ segir Séra Jakob Rolland, prestur kaþ­ólsku kirkj­unnar í Reykja­vík, í sam­tali við Kjarnann.

Afstaða kirkjunnar gagnvart hjónaböndum samkynja para ekki breyst

[links]Íhalds­söm og rót­gróin við­horf kaþ­ólsku kirkj­unnar gagn­vart sam­kyn­hneigðum og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti kvenna yfir eigin lík­ama eru vel þekkt og er íslenskur angi kaþ­ólsku kirkj­unnar engin und­an­tekn­ing. Kaþólska kirkjan mót­mælti bæði frum­varpi stjórn­valda um hjóna­bönd sam­kynja para árið 2010 og þung­un­ar­rofs­frum­varpi stjórn­valda í vor.

Aðspurður hvort að afstaða kirkj­unnar gagn­vart hjóna­böndum sam­kynja para hafi breyst frá því að lögin voru sam­þykkt svarar Jakob að svo væri ekki. Hann segir að í raun­inni skipti íslensk lög engu máli þegar kemur að hjóna­bandi sam­kynja para þar sem trú kaþ­ólsku kirkj­unnar segir þeim að þannig hjóna­band sé ein­fald­lega ekki mögu­legt. [adspot]

„Ef tvær konur koma til okkar og vilja gift­ast þá segi ég: Því miður það gengur ekki hjá okkur. Ef þær segja þá ætlum við að kæra ykkur, þá segi ég: Gerðu það. Ef ég fer fang­elsi, þá fer ég í fang­elsi en það breytir engu um mína afstöðu,“ segir Jakob.

Fá lítinn hljómgrunn hjá íslenskum stjórnvöldum

Aðspurður um hvort að bisk­ups­dæmin aðlag­ist að ein­hverju leyti að þeim löndum sem þau hafi aðsetur í svarar Jakob: „Já og nei. Ef maður talar um þjóð­fé­lags­mál sem eru á yfir­ráða­svæði stjórn­valda þá er kirkjan auð­vitað með í ráðum og reynir að fylgj­ast með og styðja. Til dæmis núna um vernd umhverfis, þá er kirkjan mjög mikið með. Aftur móti ef það snýst um brot á mann­rétt­indum og grund­vallar gildum mann­legs lífs, þá stendur kirkjan bara eins og einn klettur sama hvar það ger­ist í heim­inum. Þá er það sjálfur páf­inn sem tjáir sig fyrir hönd kirkj­unnar í þessum málum og við tökum undir.“

Jakob segir skoð­anir kirkj­unnar aftur á móti ekki fá mik­inn hljóm­grunn hjá stjórn­völdum hér á landi og aðspurður um hvort að kaþ­ólska kirkjan myndi vilja hafa meiri áhrif á stjórn­mál á Íslandi nú þegar kaþ­ólikkar eru að verða sífellt fjöl­menn­ara afl á Íslandi segir Jakob svo vera.

„Sjón­ar­mið okkar, sér­stak­lega hvað varðar mál þjóð­fé­lags­ins eru ekki endi­lega trú­mál heldur bara almenn þjóð­fé­lags­mál sem skipta kirkj­una máli. Því við viljum vernda lífið og standa fyrir mann­rétt­indum. Þá skiptir máli að röddin okkar heyr­ist,“ segir Jakob.

Hér er hægt að lesa frétta­skýr­ingu Kjarnans um kaþ­ólsku kirkj­una í heild sinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár