Vill að Fréttablaðið biðjist afsökunar og borgi 20 milljónir

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son segir að hann hafi ítrekað kröfu sína um 20 millj­óna króna miska­bætur frá Frétta­blað­inu og afsök­un­ar­beiðni. Verði blaðið ekki við kröf­unni verði því stefnt. Áhuga­vert verði að sjá for­síðu blaðs­ins á morgun.

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður mannanna tveggja.
Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður mann­anna tveggja. Mynd: RÚV/Skjáskot.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður tveggja manna sem kærðir voru fyrir nauðgun í fjöl­býl­is­húsi í Hlíðunum í októ­ber síð­ast­liðnum, hefur ítrekað kröfur sínar um að Frétta­blaðið greiði umbjóð­endum hans sam­tals 20 millj­ónir króna í miska­bætur og biðj­ist afsök­unar vegna umfjöll­unar blaðs­ins um málið. RÚV greindi frá því að hér­að­sak­sókn­ari hefði fellt niður mál mann­anna tveggja.

Önnur kona kærði annan mann­anna einnig fyrir nauðgun í sömu íbúð. Það mál er enn til rann­sóknar. 

Í frétt Frétta­blaðs­ins var sagt frá rann­sókn lög­reglu á tveimur aðskildum kyn­ferð­is­brota­málum vegna meintra árása sem átt hefðu sér stað í fjöl­býl­is­húsi í Hlíða­hverfi í Reykja­vík í októ­ber. Tvær konur kærðu tvo karl­menn fyrir kyn­ferð­is­brot í mál­inu og í frétt Frétta­blaðs­ins sagði að „Samkvæmt heim­ildum blaðs­ins voru árás­irnar hrotta­legar og íbúðin búin tækjum til ofbeld­isiðk­unar“. Í fyr­ir­sögn for­síðu­fréttar blaðs­ins mánu­dag­inn 9. nóv­em­ber stóð „Íbúð í Hlíðunum var útbúin til nauð­gana“ og fram kom í frétt­inni að mönn­unum hafði svo verið sleppt að lok­inni skýrslu­töku.

Fréttin vakti mikla athygli og varð meðal ann­ars til­efni fjöl­menna mót­mæla við lög­reglu­stöð­ina seinna sama dag.

Vil­hjálmur, sem er eins og áður segir lög­maður mann­anna, vís­aði frétt­inni á bug. Hann sendi í nóv­em­ber 2015 kröfu­bréf til Krist­ínar Þor­steins­dóttur, útgef­anda og aðal­rit­stjóra 365, sem Frétta­blaðið til­heyrir, þar sem hann fór fram á leið­rétt­ingu á frétt­inni, afsök­un­ar­beiðni og miska­bætur upp á tíu millj­ónir króna fyrir hvorn mann­anna. Þeirri kröfu var hafnað.

Tveimur dögum síðar skrif­aði Kristín leið­ara þar sem sagði að ekk­ert í fréttum Frétta­blaðs­ins af mál­inu hafi gefið til­efni til þess að blaðið biðj­ist afsök­unar á frétta­flutn­ingnum. Fréttin hafi bara verið „góð blaða­mennska.“ Frétta­blaðið hafi forð­ast að lýsa atvikum sem til umfjöll­unar voru með of nákvæmum hætti. Ber­orð­ustu lýs­ing­arnar hafi komið fram hjá RÚV.

Vil­hjálmur segir að nú sé komin upp ný staða í mál­inu. „Frétta­blaðið og 365 hlýtur að horfast í augu við þann veru­leika að þau hafa farið offari í umfjöllum um umbjóð­endur mína, sak­fellt þá á síðum Frétta­blaðs­ins og kveikt í þeirri galdra­brennu sem síðar fór fram hjá almenn­ingi á sam­fé­lags­miðlum. Ég hef ítrekað fyrri kröfur mínar við lög­mann 365 og upp­lýst að umbjóð­endur mínir séu reiðu­búnir að hlusta á við­brögð þeirra. Ég vona að 365 og Frétta­blaðið sjái að sér og komi til móts við kröfur umbjóð­enda mína með ein­hverjum hætti. Annars verður þeim stefnt. Það verður því for­vitni­legt að sjá for­síðu Frétta­blaðs­ins á morgun og hvort þau biðj­ist afsök­unar. Það væri æski­legt.“ Hann full­yrðir að ekk­ert í rann­sókn lög­reglu hafi stutt við þá full­yrð­ingu Frétta­blaðs­ins að íbúðin hafi verið útbúin til nauð­gana.

Kristín Þor­steins­dóttir vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Hún sagð­ist mundu senda út yfir­lýs­ingu til fjöl­miðla síðar í dag.

Uppfært klukkan 18:14:

Kristín Þor­steins­dóttir hefur hætt við að senda frá sér yfir­lýs­ingu og ætlar ekk­ert að tjá sig um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár