Mynd: AFP

Súpa hugsjóna, eiginhagsmuna og ótta: Hvað er Evrópusambandið?

Evrópu­sambandið nær yfir um fjórar milljónir ferkílómetra. Rúmlega 450 milljónir manna búa í ríkjum þess. ESB er eitt stærsta hagkerfi heims. Starfsmanna­fjöldi sambandsins nemur tugþúsundum.

Fræjum Evrópu­sambandsins var sáð í sviðna jörð eftir seinni heims­styrjöld, þegar sex lönd stofnuðu Kola- og stál­bandalag Evrópu árið 1951. Löndin voru Belgía, Frakkland, Holland, Ítalía, Lúxemborg og Vestur-Þýskaland.

Þótt banda­lagið væri efnahags­bandalag var ásetningur þess pólitískur.

Stál og kol voru mikil­vægustu hráefni hergagna­framleiðslu þess tíma. „Samruni kola- og stál­framleiðslu ... mun ekki aðeins gera stríð milli Frakk­lands og Þýska­lands óhugsandi heldur efnislega ómögulegt,“ sagði þáverandi utan­ríkis­ráðherra Frakk­lands, Robert Schuman, í frægri ræðu.

Kola- og stál­bandalaginu var ætlað að hemja alræmdan fransk-þýskan ríg og tryggja frið í álfunni. Ekki leið þó á löngu uns fræið tók að spíra.

Auðar blaðsíður í fornri höll

Svo vel þótti takast til með samvinnu um kol og stál að löndin sex ákváðu að styrkja böndin enn frekar.

Hinn 25. mars árið 1957 komu fulltrúar þjóðanna saman í Róm til að undirrita samning um víðtækara efnahags­bandalag. Í fornri …

Kjósa
67
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Allt það sem Sif Sigmarsdóttir lætur frá sér fara er vandað og vel íhugað sem margir mættu taka sér til fyrirmyndar.
    Að þessu sinni drepur hún niður í sögunni að venju og að þessu sinni á upphaf Evrópuambandsins.
    Bestu þakkir fyrir málefnalega og upplýsandi greinarskrif!
    6
  • Gisli Palsson skrifaði
    Mjög gott!
    4
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Mjög fróðleg grein takk fyrir
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið undanfarið ár