Aker Carbon Capture í miklum vexti

Tekjur norska fyr­ir­tæk­is­ins Aker Carbon Capture, sem er í sam­starfi við Carbfix um föngun kolefnis, hafa 40-fald­ast á einu ári, sam­kvæmt nýbirtu upp­gjöri. Þó skilar fyr­ir­tækið enn miklu tapi.

Aker stefnir á að geta fangað milljónum tonna af koltvísýringi á næstu árum.
Aker stefnir á að geta fangað millj­ónum tonna af koltví­sýr­ingi á næstu árum. Mynd: Aker Carbon Capture

Tekjur norska kolefn­is­föng­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Aker Carbon Capture námu 234 millj­ónum norskra króna, eða um 3,6 millj­örðun íslenskra króna, á nýliðnum árs­fjórð­ungi. Það eru rúm­lega 40 sinnum meiri tekjur en fyr­ir­tækið fékk á sama tíma í fyrra.

Aftur á móti skilar fyr­ir­tækið enn tapi af resktri sínum, en afkoma þess á árs­fjórð­ungnum var nei­kvæð um 854 millj­ónir íslenskra króna. Þetta kemur fram á norska frétta­miðl­inum E24.

Í sumar skrif­aði Aker Carbon Capture undir yfir­lýs­ingu við íslenska kolefn­is­förg­un­ar­fyr­ir­tækið Carbfix um að sam­eina tækni­lausnir þess­ara tveggja fyr­ir­tækja. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Carbfix gerir sam­starfið fyr­ir­tækj­unum kleift að bjóða við­skipta­vinum sínum hag­stæða heild­ar­lausn við föngum og förgun á koltví­sýr­ingi.

Fjárfestar bjartsýnir

Í nýbirtu árs­fjórð­ungs­upp­gjöri Aker Carbon Capture kemur fram að fyr­ir­tækið hefur tapað alls 128 millj­ónum norskra króna, eða tæpum tveimur millj­örðum íslenskra króna, það sem af er ári. Hins vegar hafa fjár­festar orðið bjart­sýnni á fram­tíð fyr­ir­tæk­is­ins, en hluta­bréfa­verð þess hefur sexfa­d­ast frá skrán­ingu Aker á hluta­bréfa­mark­að­inn í Osló í ágúst í fyrra.

Aker hefur nýtt sér þessa bjart­sýni með því að sækja sér 840 millj­ónir norskra króna, eða um 13 millj­arða íslenskra króna, í aukið hlutafé í ágúst. Fyrst átti hluta­fjár­aukn­ingin ein­ungis að nema 700 millj­ónum norskra króna, en ákveðið var að stækka umfang hennar þar sem „umtals­verð eft­ir­spurn“ var eftir þeim.

Stefnir á föngun milljóna tonna

Aker Carbon Capture hefur meðal ann­ars skrifað undir samn­ing um kolefn­is­föngun við sem­ents­verk­smiðju í eigu Norcem í Brevik í Noregi, en þar stefnir fyr­ir­tækið á að fanga 400 þús­und tonn af koltví­sýr­ingi frá 2024.

Fyr­ir­tækið stefnir svo á að stór­fjölga slíkum samn­ingum á næstu árum, en sam­kvæmt áætl­unum þess er búist við það muni semja um föngun allt að tíu millj­óna tonna af koltví­sýr­ingi innan árs­ins 2025.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár