Birgitta boðuð á Bessastaði klukkan 16

Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, hefur verið boðuð á fund Guðna Th. Jóhann­es­sonar, for­seta Íslands, á Bessa­stöðum klukkan 16 í dag. Ekki hefur verið gefið upp hver ástæða fund­ar­ins er, en mögu­legt er að for­set­inn hygg­ist fela Pírötum umboð til stjórn­ar­mynd­unar.

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur í dag fundað með leið­togum allra flokka sem eiga sæti á Alþingi. Eftir fund hennar og ann­arra í við­ræðu­nefnd Pírata með for­set­anum sagði hún að Pírötum þætti algjör­lega ótíma­bært að ræða um þjóð­stjórn á þessum tíma­punkti.

Hún hefur lýst því yfir að hún vilji reyna aftur við myndun fimm flokka stjórnar Pírata, Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar, Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna. Flokk­arnir, utan Vinstri grænna, ræddu saman á meðan VG voru að ræða við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Eftir að ljóst varð að ekk­ert yrði úr við­ræðum þeirra buðu flokk­arnir fjórir Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni VG, og hennar flokki aftur að óform­legum við­ræðum.

Forseti Íslands hefur þegar veitt stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið tvisvar án árang­urs. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fékk umboðið fyrstur, meðal ann­ars á grund­velli þess að flokkur hans er stærstur. Þegar honum tókst ekki að mynda stjórn fékk Katrín Jak­obs­dóttir stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið, en VG er annar stærsti flokk­ur­inn á þingi. Píratar eru þriðji stærsti flokk­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár