Tillögur um ríkisstuðning við fréttafjölmiðla lögð fyrir ráðherra í júní

Unnið er að söfnun gagna og því að leggja mat á til­lögur til að styrkja rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi. Til­lög­urnar verða lagðar fyrir ráð­herra í byrjun næsta mán­aðar.

Björgvin Guðmundsson, formaður nefndar um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla, afhendir Lilju Dögg Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, skýrslu nefndarinnar í lok janúar. Hún fær útfærðar tillögur um aðgerðir inn á borð til sín á næstunni.
Björgvin Guð­munds­son, for­maður nefndar um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla, afhendir Lilju Dögg Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, skýrslu nefnd­ar­innar í lok jan­úar. Hún fær útfærðar til­lögur um aðgerðir inn á borð til sín á næst­unni. Mynd: Aðsend mynd

Hug­myndir um hvernig styrkja eigi rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla verða lagðar fyrir Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, í byrjun júní. Á meðal þeirra til­lagna sem eru til umfjöll­unar eru til­lögur varð­andi greiðslur vegna tal­setn­ingar og text­unar og til­lögur til að fjár­magna starf­semi rit­stjórna sem vinna frétta­tengt efni. Þetta kom fram í máli Elfu Ýrar Gylfa­dóttur, fram­kvæmda­stjóra fjöl­miðla­nefndar, á opnum fundi sem Vinstri græn í Reykja­vík héldu í gær undir yfir­skrift­inni „Aðför að lýð­ræði, fals­fréttir og kosn­ingar“.

Þann 26. apríl síð­ast­lið­inn var til­kynnt um að Gylfi Ólafsson, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefði verið ráð­inn í tíma­bundið starf verk­efna­stjóra hjá fjöl­miðla­nefnd. Samkvæmt frétt á vef nefnd­ar­innar er Gylfa ætlað að „afla gagna og leggja mat á til­lögur nefndar um bætt rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla, sem birtar voru í jan­úar sl. Byggt verður á afrakstri þeirrar vinnu við und­ir­bún­ing að ákvörð­un­ar­töku stjórn­valda um hvernig hægt er að styrkja rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla. Meðal ann­ars verður byggt á mik­il­vægum upp­lýs­ingum í skýrslum fjöl­miðla sem þeir afhenda fjöl­miðla­nefnd árlega, sam­kvæmt lögum um fjöl­miðla. Gert er ráð fyrir að fyrstu hug­myndir liggi fyrir í byrjun sum­ars en það veltur á því hversu vel mun ganga að afla nauð­syn­legra upp­lýs­inga frá fjöl­miðl­unum sjálfum.“

Í dag, föstu­dag­inn 11. maí, rennur út frestur skráðra fjöl­miðla á Íslandi til að skila inn árlegri skýrslu til fjöl­miðla­nefndar. Í þetta sinn er óskað eftir við­bót­ar­upp­lýs­ingum um hver kostn­aður fjöl­miðla sé við fram­leiðslu frétta og frétta­tengds efnis. Til­gangur þess að afla þeirra gagna er sá að áreið­an­legar upp­lýs­ingar liggi fyrir um stöðu fjöl­miðla þegar stjórn­völd taka ákvörðun um hvort og þá hvernig ráð­ist yrði í end­ur­greiðslur vegna fram­leiðslu á fréttum og frétta­tengdu efni.

Nefndin skilaði sjö tillögum

Nefnd um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla, sem Illugi Gunn­ars­son skip­aði í lok árs 2016, skil­aði skýrslu með til­lögum um umbætur í lok jan­úar síð­ast­liðnum. Nefndin gerði til­lögur um aðgerðir í sjö liðum sem gætu bætt rekstr­ar­skil­yrði fjöl­miðla.

Þær snéri meðal ann­ars að stöðu Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði, skatta­legu umhverfi, textun og tal­setn­ingu og end­ur­greiðslu fram­leiðslu­kostn­aðar á fréttum og frétta­tengdu efni. Þá var einnig ítar­leg sam­an­tekt um opin­beran stuðn­ing við fjöl­miðla í helstu nágranna­ríkjum auk sér­á­lits tveggja nefnd­ar­manna.

Í nefnd­inni sátu Björg­vin Guð­munds­son, for­mað­ur, með­eig­andi KOM ráð­gjaf­ar, Elfa Ýr Gylfa­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefnd­ar, Hlynur Inga­son, starfs­maður í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­i, Soffía Har­alds­dótt­ir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri mbl.is, og Svan­björn Thorodd­sen, með­eig­andi KPMG.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár