Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir í skriflegu svari við fyrirspurn Helgu Völu Helgadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, að nýleg brottvísun óléttrar albanskrar konu, sem var gengin 36 vikur, hafi verið í samræmi við áherslur stjórnvalda um mannúðlega meðferð.
Í svarinu segir orðrétt: „Að mati dómsmálaráðherra var umrædd framkvæmd í samræmi við markmið laga um útlendinga[...], verklag Útlendingastofnunar og stoðdeildar embættis ríkislögreglustjóra og áherslur stjórnvalda um mannúðlega og skilvirka meðferð í málefnum útlendinga hér á landi.“
[adspot]Helga Vala spurði ráðherrann einnig um það hver hefði tekið ákvörðun um brottvísunina. Í svari Áslaugar segir að konar hafi komið hingað til lands ásamt manni sínum og barni og sótt um alþjóðlega vernd í byrjun október. „Málið var sett í forgangsmeðferð af Útlendingastofnun og afgreitt með ákvörðun 11. október þar sem umsókn hennar var synjað. Í framhaldinu var málinu vísað til stoðdeildar embættis ríkislögreglustjóra sem ber ábyrgð á því að framkvæma ákvarðanir um flutning umsækjenda til síns heima.“
Var vísað úr landi með lögregluvaldi
Mál albönsku fjölskyldunnar komst í hámæli í 5. nóvember síðastliðinn þegar það birtist færsla á Facebook-síðu Réttur barna á flótta þar sem kom fram að henni hefði verið vísað úr landi um klukkan 18 þann sama dag þrátt fyrir að vera í miðju málaferli við Útlendingastofnun. Þeim var vísað frá Íslandi með lögregluvaldi.

Þeim var svo vísað frá Íslandi með lögregluvaldi þrátt fyrir að konan væri gengin 36 vikur á leið með annað barn þeirra og hefði þurft að fara í bráðakeisaraskurð þegar það fyrra fæddist.
Flogið var með fjölskylduna til Berlín og þaðan áfram til Albaníu. Ferðalagið tók 19 tíma.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir