Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn funda áfram í dag

Einn mán­uður er lið­inn frá Alþing­is­kosn­ing­unum 29. októ­ber og enn hefur ekki tek­ist að mynda rík­is­stjórn. Bjarni Bene­dikts­son og Katrín Jak­obs­dóttir ræða saman í dag en þeim tókst ekki að ljúka fundi sínum í gær.

Bjarni Benediktsson leiðir Sjálfstæðsflokkinn en það er stærsti þingflokkurinn á Alþingi eftir kosningarnar í lok október. Vinstri græn eru með næst stærsta þingflokkinn.
Bjarni Bene­dikts­son leiðir Sjálf­stæðs­flokk­inn en það er stærsti þing­flokk­ur­inn á Alþingi eftir kosn­ing­arnar í lok októ­ber. Vinstri græn eru með næst stærsta þing­flokk­inn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna halda áfram í dag. Fundur þeirra Bjarna Bene­dikts­sonar og Katrínar Jak­obs­dóttur í gær klárað­ist ekki og verður fram haldið í dag. Bæði verj­ast þau fregna af fundum sínum og segj­ast enn vera að „ræða stóru lín­urnar.“ Sam­an­lagt hafa þessir flokkar 31 þing­mann og vantar því einn enn til þess að geta myndað meiri­hluta.

Bjarni sagð­ist í sam­tali við RÚV í fyrsta skipti í gær hafi haf­ist sam­tal á milli þess­ara flokka um hvort hægt verði að brúa mál­efna­bilið á milli Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann var á leið á rík­is­stjórn­ar­fund þegar frétta­stofa RÚV náði tali af honum.

„Í fyrsta skipti í gær áttum við dýpra sam­tal um mál­efnin og stefnu flokk­anna á ein­stökum sviðum og hvort það er hægt að brúa bil þar á milli,“ sagði Bjarni. Hann segir að und­an­farna daga hafi skýrst hvaða mögu­leikar séu í boði og jafn­vel þó það sé eng­inn form­legur tímara­mmi á við­ræðum Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna þá sé það vitað að allir vinni undir tíma­pressu. „[...] hún er ekki óbæri­leg en það er mjög mik­il­vægt að ljúka þessu eins hratt og hægt er.“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, fund­aði með þing­flokki sínum í dag. Vísir.is náði tali af henni á leið inn á fund­inn sagði hún að það væri „mjög lítið títt“ og að nú væri fund­ar­hlé á fundum þeirra Bjarna. „Við erum enn þá að ræða stóru lín­urnar,“ sagði hún. Eftir þing­flokks­fund­inn sagði hún ekki ljóst hvenær hlut­irnir yrðu komnir á hreint.

Á meðan bíða Benedikt Jóhann­es­son og Óttarr Proppé á hlið­ar­lín­unni en eins og Kjarninn hefur greint frá höfðu Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Björt fram­tíð kom­ist að sam­komu­lagi um meg­in­at­riði í myndun nýrrar rík­is­stjórnar áður en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn snéri sér alfarið að Vinstri grænum.

Aðrir kostir höfðu einnig staðið til boða; til dæmis rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Við­reisnar. Benedikt hafn­aði hins vegar boði um aðild Við­reisnar að því rík­is­stjórn­ar­sam­starfi.

Flokk­arnir hafa und­an­farna daga slegið af kröfum sínum í hugs­an­legum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Píratar sam­þykktu til dæmis á sunnu­dags­kvöld að gera ekki lengur kröfu um að ráð­herrar ann­arra flokka sem þeir myndu fara í stjórn­ar­sam­starf með segðu af sér þing­mennsku.

Annars staðar biðja þing­menn aðra flokka um að hafa opn­ari hug gagn­vart þeim flokkum sem sátu í rík­is­stjórn á síð­asta kjör­tíma­bili. Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, skrif­aði á Facebook-síðu sína í dag um „vit­leys­isum­ræð­una í íslenskum stjórn­málum“ sem ætlar engan enda að taka.

„Nú er erfitt að mynda rík­is­stjórn því eng­inn vill vera 3ja hljól undir vagni síð­ustu rík­is­stjórnar. Af sömu ástæðu gætu sjálf­stæð­is­menn ákveðið að fara ekki í stjórn með Vg og Sam­fylk­ing­unni því hann vill ekki vera 3ja hjól undir vagni Jóhönnu­stjórn­ar­innar frá 2009-2013,“ skrifar Brynjar. „Hættum þess­ari 3ju hjóls umræðu enda ekki um að ræða vagna eða hjól heldur nýja rík­is­stjórn með nýjum og öðru­vísi stjórn­ar­sátt­mála.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár