Safna fyrir dreifingarfyrirtæki íslenskrar jaðartónlistar

Karolina Fund verk­efni vik­unnar er Myrk­fælni.

Kinnat Sóley útskrif­að­ist úr list­náms­braut Fjöl­brauta­skól­ans í Breið­holti árið 2013 með kjör­svið í graf­ískri hönnun. Eftir að hafa fengið inn­göngu í graf­íska hönnun í Lista­há­skóla Íslands tók hún að sér ýmis verk­efni en þau sem stóðu upp úr áttu það öll sam­eig­in­legt að tengj­ast tón­list: hönnun á plötu­umslögum, kasettum, plakötum og dreifi­ritum. Á meðan nám­inu stóð fór hún í skipti­nám í tvær annir til Hochschule für Grafik og Buchkunst í Leipzig, Þýska­landi þar sem hún kynnt­ist pönk- og D.I.Y. (do it yourself) sen­unni. Eftir útskrift úr Lista­há­skóla Íslands árið 2016 fékk hún atvinnu­til­boð hjá hönn­un­ar­stof­unni Studio Manuel Raeder í Berlín, sem sér­hæfir sig í bóka- og tíma­rita­hönnun. Með fram vinnu sinni þar starfar hún sem yfir­hönn­uður hljóm­sveit­ar­innar Kælunar Miklu og plötu­út­gáfu­fyr­ir­tækj­anna Sign Bit Zero (Leipzig, Þýska­land) og Hið Myrka Man (Berlín/Reykja­vík).

Sólveig Matt­hildur Krist­jáns­dóttir stofn­aði ljóða­hóp­inn Fríyrkj­una árið 2013 og sá um rit­stjórn og útgáfu tveggja ljóða­bóka hóps­ins. Árið 2013 tók hún þátt í ljóða­slammi Borg­ar­bóka­safns­ins ásamt Laufeyju Soffíu og Margréti Rósu og í kjöl­far þess stofn­uðu þær hljóm­sveit­ina Kæluna Miklu. Kælan Mikla fór á evr­óput­úra árin 2015, 2016 og 2017 og sá þá Sólveig um bók­anir, fjár­mál og skipu­lagn­ingu þeirra. Árið 2015 stofn­aði hún útgáfu- og við­burða­fyr­ir­tækið Hið Myrka Man sem hefur gefið út bæði íslenska og erlenda lista­menn en nýjasta útgáfan, Vafa­samur Lífstíll 2015–2016 með Kulda­bola var til­nefnd til Kraumsverð­launa aðeins nokkrum dögum eftir útgáfu. Ásamt því hefur Hið Myrka Man skipu­lagt reglu­lega tón­leika í Reykja­vík ásamt því að halda utan um tón­leika­há­tíð­ina Myrkramakt. Myrkramakt var haldin um haustið 2016 og hlaut hátíðin shout-out verð­laun Grapevine. Kjarninn hitti Kinnat Sóley og Sólveig Matt­hildur og tók þær tali Kjarnans.

Hvað er MYRKFÆLNI og hver er staða íslenskrar jað­ar­tón­listar þegar við kemur stærri mark­aðs­svæði?

„Þær stofn­uðu MYRKFÆLNI saman í jan­úar 2017 en það er dreif­ing­ar­fyr­ir­tæki íslenskrar jað­ar­tón­listar sem sér einnig um útgáfu sam­nefnds tíma­rits á ensku um íslenska jað­ar­tón­list. MYRKFÆLNI leggur sig alla fram við að koma íslenskum tón­list­ar­mönnum sem falla í skugga Atl­ants­hafs­ins yfir á meg­in­löndin.

Vef- og sam­fé­lags­miðlar hafa ákveðna yfir­burði í dreif­ingu og kynn­ingu á tón­list en prent­miðlar gegna enn mik­il­vægu starfi í jað­ar­tón­list­ar­senum um allan heim, meðal ann­ars í fram­leiðslu tón­leikaplakata, dreifi­blöðum (e. flyer) og heima­til­búnum aðdá­enda­tíma­rita (e. fanzine). Tíma­ritið MYRKFÆLNI starfar því fyrst og fremst sem prent­mið­ill en teygir anga sína einnig til vefs­ins.

Tón­list­ar­senan á Íslandi er mjög sterk og fjöl­breytt og hefur vakið mikla athygli erlendra aðila síð­ustu ár. Íslensku tón­list­ar­fólki er boðið upp á alls konar stuðn­ing og styrki en nær ekki endi­lega yfir jað­ar­inn og MYRKFÆLNI ætlar að byggja brú á milli jað­ar­tón­list­ar­sen­unnar á íslandi og út í heimi. Út í heimi er íslenska jað­ar­tón­list­ar­senan illa upp­lýst en hefur vakið mik­inn áhuga meðal þeirra sem þær hafa talað við um MYRKFÆLNI. MYRKFÆLNI hefur nú þegar hafið starf­semi sína og verið að selja íslenskar jað­ar­tón­list­arplötur á tón­list­ar­há­tíðum og tón­leika­ferða­lögum víðs vegar um Evrópu og vakið mikla lukku meðal tón­leika­gesta og þeirra sem koma að tón­list­ar­brans­anum út í heimi.“

Hvernig sjáið þið fyrir ykkur efn­isvalið í MYRKFÆLNI?

„Efn­isvalið í MYRKFÆLNI verður fjöl­breytt og mun fylgja því sem er að ger­ast í jað­ar­tón­list­ar­sen­unni á Íslandi hverju sinni. Í hverju blaði verður heil síða fyrir hvert jað­ar­út­gáfu­fyr­ir­tæki með upp­lýs­ingum og yfir­liti yfir því helsta sem gerst hefur verið frá síð­asta tölu­blaði. MYRKFÆLNI finnst stór kostur að vinna með íslenskum jað­ar­út­gáfu­fyr­ir­tækjum og er helsta mark­mið blaðs­ins að koma útgáfum þeirra á fram­færi. Blaðið mun einnig inni­halda við­töl við tón­list­ar­menn með áherslur á nýlegar hljóm­sveitir, greinar frá hljóm­sveitum á tón­leika­ferða­lögum, umfjall­anir um kom­andi tón­list­ar­há­tíðir, umsagnir á nýút­gefnum plötum, umsagnir um tón­leika og almennar vanga­veltur. Ásamt útgáfu tíma­rits­ins sér MYRKFÆLNI um útgáfu á safn­plötu með hverju tölu­blaði, með lögum frá íslenskum jað­ar­tón­list­ar­mönnum sem tengj­ast efni blaðs­ins.“

Hvað getur fólk fengið fyrir að heita á verk­efnið ykkar?

„Á Karolina fund síðu MYRKFÆLNI er hægt að heita á tíma­ritið með því að kaupa nið­ur­hal af raf­rænni safn­plötu MYRKFÆLNI 1 sem kom út á páska­dag, en einnig er hægt að hlusta á hana ókeypis á Bandcamp síðu okkar, http://myrkfaelni.bandcamp.com. Safn­platan inni­heldur 20 lög eftir íslenska jað­ar­tólist­ar­menn og eru lang­flest lögin að koma út í fyrsta sinn á safn­plöt­unni. Einnig er hægt að forp­anta ein­tak af fyrsta tölu­blað­inu og kaupa aug­lýs­ingar í því en fyrsta tölu­blað MYRKFÆLNI kemur út í 1000 ein­tökum og verður dreift til 50 borga í gegnum tengsla­net þeirra, ásamt því að vera selt á net­inu. Frjáls fram­lög eru að sjálf­sögðu líka vel­komin.“

Eitthvað sem þið viljið segja að lokum?

„Já, styrkið jað­ar­tón­list­ar­sen­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár