Stærsta verkefnið hafið – Sjóliðar draga vagn með kistu drottningar

Lögregla og slökkvi­lið munu þurfa að dreifa kröftum sínum milli þess að vernda hátt­setta gesti í jarð­ar­för Elísa­betar drottn­ingar og almenn­ing. Umfangið er gríð­ar­legt og Ólymp­íu­leik­arnir í London árið 2012 blikna í sam­an­burð­inum.

Kóróna liggur á kistu Elísabetar drottningar. Í henni eru demantar sem teknir voru frá Afríku á nýlendutímanum.
Kóróna liggur á kistu Elísa­betar drottn­ingar. Í henni eru dem­antar sem teknir voru frá Afríku á nýlendu­tím­anum. Mynd: EPA

Fátt ætti að koma á óvart við jarð­ar­för Elísa­betar II drottn­ingar. Hún var orðin 96 ára gömul og ára­tugum saman hafa legið fyrir áætl­anir um hvernig skuli staðið að málum, hvort sem lítur að hefðum, siðum og venjum við kon­ung­legar útfarir eða örygg­is­gæsl­una. Lög­reglu­yf­ir­völd, sjúkra- og slökkvi­lið búa sig undir sitt stærsta verk­efni hingað til. Búist er við um 2.000 gestum til athafn­ar­innar í Westminster Abbey, gestum sem þurfa mikla örygg­is­gæslu vegna starfa sinna og stöðu. Þar má nefna for­seta, for­sæt­is­ráð­herra, keis­ara og kónga­fólk. Fólk sem þarf fylgd­ar­lið – og að kom­ast hratt ferða sinna ólíkt almúg­anum. En lög­reglan þarf einnig að gæta almúg­ans og nú er ljóst að hund­ruð þús­unda manna ætla að votta drottn­ing­unni virð­ingu sína við útför­ina í dag.

[adspot]

Opinber útför, með öllum þeim heið­ursverði og öðru sem slíku fylgir, hefur ekki farið fram í Bret­landi síðan Winston Churchill lést árið 1965, fyrir hart­nær hálfri öld. Vissu­lega hafa mörg fyr­ir­mennin lát­ist síðan þá – drottn­ing­ar­maður, drottn­ing­ar­móðir og þar fram eftir göt­unum – en útfarir þeirra fengu ekki hinn „opin­bera“ stimpil. Það gerði ekki heldur útför Díönu prinsessu.

Þar sem um opin­bera útför er að ræða munu t.d. 142 sjóliðar úr kon­ung­lega sjó­hernum draga vagn með kistu Elísa­betar frá Westminster Hall, þar sem kistan hefur staðið und­an­farna daga, til Westminster Abbey, þar sem útförin fer fram, en ekki hestar. Þetta er hefð sem komið var á er Viktoría drottn­ing lést árið 1901.

[links]Filippus drottn­ing­ar­maður lést á meðan heims­far­aldur COVID-19 stóð yfir. Hans útför var því sögu­lega lág­stemmd. Svo hafa verið haldin veg­leg og mikil brúð­kaup í kon­ungs­fjöl­skyld­unni, það stærsta síð­ari ár vit­an­lega brúð­kaup Vil­hjálms prins og Katrínar. Hátíð­ar­höld á sjö­tíu ára krýn­ing­araf­mæli drottn­ingar voru einnig mjög umfangs­mikil. Allt eru þetta stór­við­burðir sem var sjón­varpað um víða ver­öld.

Helsti við­burður sem hægt er að bera útför Elísa­betar saman við þegar kemur að örygg­is­gæslu eru Ólymp­íu­leik­arnir í London árið 2012. Það er hins vegar ljóst að þeir blikna í sam­an­burði við umfang aðgerða sem gripið er til vegna útfarar drottn­ingar Bret­lands til rúm­lega sjö ára­tuga.

„Ef þú hugsar um Lundúna-mara­þonið, kon­ung­leg brúð­kaup og ólymp­íu­leik­ana – þá er [jarð­ar­förin] allt þetta sam­an­lagt,“ sagði Sadiq Khan, borg­ar­stjóri Lundúna fyrir helgi.

„Lund­ún­ar­brúin“ er heitið sem yfir­völd hafa í fleiri ár kallað áætl­anir sínar um við­burði í kjöl­far and­láts drottn­ingar. Þær voru fyrst útfærðar á sjötta ára­tugnum, er hún tók við völdum, en hafa síðan þá verið upp­færðar þrisvar á ári. Í þeim er tekið til­lit til aðstæðna í heim­inum hverju sinni og mat lagt á helstu ógnir. Fjöl­margar stofn­anir rík­is­ins koma að málum. Elísabet vissi hvernig málum yrði hagað og kvitt­aði upp á það áður en hún lést.

Leyni­þjón­ustu­stofn­anir, m.a. í Bret­landi og Banda­ríkj­unum, munu vinna saman og deila upp­lýs­ingum. Það eru ekki aðeins ógnir frá hryðju­verka­sam­tökum sem taka þarf með í reikn­ing­inn heldur einnig frá ein­stak­lingum. „Góð­kunn­ingjar“ lög­regl­unnar í þeim efnum verða m.a. undir sér­stakri smá­sjá.

Hver sá sem þykir ógna kon­ungs­fjöl­skyld­unni, hvort sem er með orðum eða öðru, gæti verið tek­inn umsvifa­laust úr umferð. Symon Hill, karl­maður frá Oxford, hefur þegar fengið að finna fyrir því. „Ekki minn kóngur““ hróp­aði hann er hann stóð í mann­fjölda sem safn­ast hafði saman er til­kynnt var form­lega að Karl væri orð­inn kóngur Bret­lands. Lög­reglu­menn viku sér þegar í stað að honum, gripu í hann, hand­járn­uðu og settu inn í lög­reglu­bíl. Hann segir í við­tali við CNN að hann telji slík við­brögð ekki eiga heima í lýð­ræð­is­ríki.

Lög­reglan hefur haft í nógu að snú­ast síð­ustu daga enda gríð­ar­legur áhugi á því að sjá kistu drottn­ingar. Fólk hefur staðið í allt að sól­ar­hring í röð í þeim til­gangi. En í dag er stóri dag­ur­inn: Útfar­ar­dag­ur­inn sjálfur.

Jarð­ar­förin verður „stærsti ein­staki við­burður“ sem lög­reglan í London hefur þurft að sinna, segir vara­lög­reglu­stjór­inn Stuart Cundy. Lög- og örygg­is­gæslu þarf að sinna jafn­hendis, valda­fólkið þarf sína vernd en almenn­ingur að sjálf­sögðu einnig. Það eitt hvernig fyr­ir­mennin koma til athafn­ar­innar er hern­að­ar­leynd­ar­mál en ljóst er að loka þarf götum og greiða far­ar­tækjum þeirra leið um borg­ina að Westminster Abbey. „Aðgerð­irnar eru sann­ar­lega geysi­miklar,“ sagði Cundy á blaða­manna­fundi á föstu­dag.

Lög­reglan hefur fátt látið uppi um hvernig örygg­is­gæslu hefð­ar­fólks og fyr­ir­menna verði háttað en sér­fræð­inga í örygg­is­málum hafa bent á að álagið verði svo mikið að ljóst sé að ein­hver verði að sætta sig við minni fylgd, t.d. færri bíla í lest, en þau myndu fá undir öðrum kring­um­stæðum. Fregnir hafa meira að segja borist af því að gestir verði ferjaðir í rútum til Westminster Abbey en margir hafa lýst efa­semdum um slíkt. Að minnsta kosti er talið ólík­legt að Joe Biden Banda­ríkja­for­seti verði um borð í rút­unni.

En það eru miklu fleiri en lög­reglu­menn þús­unda­vís, bæði frá emb­ættum í London sem og ann­ars staðar frá, sem koma að aðgerðum í dag. Tryggja þarf aðgengi fólks sem safn­ast saman á götum úti að sal­ern­is­að­stöðu, sjúkra­flutn­inga­menn og annað heil­brigð­is­starfs­fólk þarf að vera í við­bragðs­stöðu og ein­hver þarf svo að hreinsa til eftir her­leg­heitin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kóngafólk

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár