Drottning heimsveldis kvaddi án uppgjörs

Í sjö­tíu ár, sjö mán­uði og tvo daga var hún drottn­ing Bret­lands og á þeim tíma einnig þjóð­höfð­ingi margra ann­arra ríkja vítt og breitt um jarð­ar­kringl­una.

Elskuð, dýrkuð og dáð. Illa þokkuð og fyr­ir­litin. Tákn sam­stöðu og stöð­ug­leika. Tákn rang­lætis og vald­níðslu.

Öll þessi orð eiga við um til­finn­ingar fólks í garð Elísa­betar II drottn­ingar sem féll frá í vik­unni, 96 ára að aldri. En hið nei­kvæða til­finn­ing­a­rót sem and­lát hennar hefur valdið bein­ist þó minnst að mann­eskj­unni Elísa­betu. Hana þekktu aðeins fáir í raun. Heldur að stofn­un­inni sem hún stóð fyrir: Bresku krún­unni, breska heims­veld­inu sem síðar varð breska sam­veldið. Veldi sem byggði auð sinn og vel­megun á þján­ingum ann­arra.

Elísabet fædd­ist inn í þessar aðstæður árið 1926. Var hund­elskt lítið stelpu­skott sem dáði litlu systur sína og kall­aði afa sinn „afa England“. Þegar afi dó, Georg 5. kon­ungur, tók föð­ur­bróðir hennar við krún­unni en kærði sig að end­ingu ekki meira um það hlut­verk en svo að hann lagði hana á hill­una – tók ást­ina fram yfir kon­ungs­ríkið.

Og allt líf Elísa­betar breytt­ist. Albert pabbi hennar, sem hún eyddi jafnan löngum stundum með, varð Georg sjötti og hún krón­prinsessa.

Elísabet ásamt yngri systur sinni, Margréti.
Elísabet ásamt yngri systur sinni, Margréti.

Elísabet fædd­ist á tíma þegar breska heims­veldið stóð í sem mestum blóma, myndu ein­hverjir segja, en aðrir orða það öðru­vísi: Á tíma þar sem fólk í svoköll­uðum nýlendum var kúgað sem aldrei fyrr.

Asía, Afríka, Kar­ab­íska­hafið. Sextánda öldin var tími mik­illa land­vinn­inga Evr­ópu­ríkja. Heims­valda­stefnan var hafin í öllu sínu veldi. Eng­lend­ingar, síðar Bretar, sölsuðu undir sig hvert land­svæðið á fætur öðru í þessu kapp­hlaupi um yfir­ráð og völd. Til að standa undir auk­inni vel­megun heima fyrir var verslað með fólk, nátt­úru­auð­lindir og afurðir sem frjó­samur jarð­vegur hinna „nýfundnu“ landa gaf af sér með blóði, svita og tárum fólks í ánauð. Hagnaður af kaffi, sykri, tóbaki og málmum flæddi bók­staf­lega frá nýlend­unum í vasa nýlendu­herr­anna.

Breska heimsveldið var stærra en nokkru sinni áður um það leyti sem Elísabet fæddist.
Breska heims­veldið var stærra en nokkru sinni áður um það leyti sem Elísabet fædd­ist.

Á þriðja ára­tug síð­ustu aldar, er Elísabet fædd­ist, var breska heims­veldið stærra en nokkru sinni, náði yfir um fjórð­ung af öllu land­svæði jarðar og drottn­aði því yfir tæp­lega 460 millj­ónum manna. Land­vinn­ingar Evr­ópu­ríkja í Afríku voru settir á odd­inn um alda­mótin 1900 og Bretar hrifsuðu völd yfir Egypta­landi, Kenía, Nígeríu og stórum land­svæðum í sunn­an­verðri álf­unni. Þar högn­uð­ust þeir á gulli, salti og fíla­beini – eftir að hafa neyðst til að banna það sem getur ekki talist annað en mesti skammar­blettur mann­kyns­sög­unnar: Þræla­hald.

Ómögu­legt er að færa í orð – hvað þá meta í fjölda fólks eða til fjár – allar þær þján­ingar sem heims­valda­stefnan olli. Fólkið í nýlend­unum var ekki aðeins rænt auð­lindum sínum og frelsi heldur menn­ingu, siðum og sögu. Og sárin eru ekki enn gróin.

Elísabet í heimsókn á karabísku eyjunni Granada árið 1966. Eyjan tilheyrði þá samveldi hennar.
Elísabet í heim­sókn á kar­ab­ísku eyj­unni Granada árið 1966. Eyjan til­heyrði þá sam­veldi hennar.

Eftir síð­ari heims­styrj­öld­ina fór að molna veru­lega undan breska heims­veld­inu. Árið 1947 náði Indland t.d. loks að öðl­ast sjálf­stæði. Þegar Elísabet varð drottn­ing, sem gerð­ist einmitt þegar hún var á ferða­lagi um nýlend­una Kenía, var því sjálf­stæð­is­bar­átta margra ríkja hafin fyrir alvöru. Á sjö­unda og átt­unda ára­tug síð­ustu aldar los­uðu meira en tutt­ugu ríki í Afríku og Kar­ab­íska­haf­inu sig úr fjötrum Breta.

Ríki Elísa­betar drottn­ingar var því allt annað en það sem hún fædd­ist í. Hætt var að tala um breska heims­veldið. Nú var það nefnt sam­veldið. Elísabet var þó áfram þjóð­höfð­ingi hinna nýfrjálsu ríkja, af ýmsum ástæðum.

Millj­ónir manna syrgja Elísa­betu drottn­ingu en því er þó alls ekki eins farið með alla. Margir tengja hana við blóð­uga for­tíð breska heims­veld­is­ins sem hefur enn í dag áhrif á líf og kjör fólks fyrrum nýlend­anna. „Hin ólíku við­brögð benda til þess flókna sam­bands og þeirra blendnu til­finn­inga sem fólk hefur til bresku krún­unnar,“ segir Matthew Smith, breskur pró­fessor í sagn­fræði, sem hefur rann­sakað þræla­hald Breta ítar­lega.

Forfeður og -mæður Elísa­betar II höfðu bein­línis beitt sér fyrir þræla­haldi, arðráni og í land­vinn­ingum og nýtt til þess sín kon­ung­legu tengsl. Eitt dæmi um það er stofnun Royal African Company árið 1660. Stofn­and­inn var Karl II kóngur og sá sem fór fyrir félag­inu var bróðir hans, her­tog­inn af York, síðar Jakob kon­ungur II. Þetta félag gróf eftir gulli og ger­semum í Afríku, keypti fíla­bein í stórum stíl og flutti svo að því er talið er að minnsta kosti 3.000 Afr­íku­búa til eyj­unnar Barbados í þræl­dóm. Fólkið var margt hvert brenni­merkt með stöf­unum DY, fanga­marki her­tog­ans af York (Duke of York). Bæði Jakob og Karl II fjár­festu per­sónu­lega í þessu alræmda félagi.

Filippus og Elísabet í opinberri heimsókn á Barbados árið 1966.
Filippus og Elísabet í opin­berri heim­sókn á Barbados árið 1966.

Í söfnum, inni á heim­ilum og í höllum í Bret­landi er enn að finna áþreif­an­leg ummerki heims­valda­stefn­unnar. Lista­verk og forn­gripi frá fjar­lægum löndum – hluti sem eiga heima ann­ars staðar en hefur ekki verið skilað, jafn­vel þótt um það hafi verið beðið.

Gripum sem sagðir eru í eigu kon­ungs­dæm­is­ins, svo sem Koh-i-Noor dem­ant­ur­inn í sjálfum krúnu­djásn­unum, sem stolið var á tímum nýlendu­stefn­unnar. Bæði yfir­völd í Pakistan og á Indlandi hafa ítrekað beðið um að dem­ant­inum verði skilað. Dómsmál hafa verið höfðuð vegna máls­ins. Það mál var óút­kljáð er Elísabet lést en ind­versk stjórn­völd hafa frá and­láti hennar ítrekað þær kröfur sínar að fá dem­ant­inn aftur. Dem­ant­ur­inn varð að krúnu­djásni í tíð Viktoríu drottn­ingar en hún bar einnig tit­il­inn keis­ara­ynja yfir þá nýlend­unni Indlandi.

Breskur sagn­fræð­ingur, Lucy Worsley, rann­sak­aði sögu þræla­halds í tengslum við hallir kon­ungs­fjöl­skyld­unnar árið 2020. Hún segir að allar eignir fjöl­skyld­unnar frá því á sautj­ándu öld megi með einum eða öðrum hætti rekja til auðs sem til­kom­inn var vegna versl­unar með fólk. Það eigi t.d. við um hall­irnar í Kens­ington og Hampton Court.

Þarna er hann, í miðju kórónunnar, einn stærsti slípaði demantur veraldar sem Indverjar vilja fá aftur.
Þarna er hann, í miðju kór­ón­unnar, einn stærsti slíp­aði dem­antur ver­aldar sem Ind­verjar vilja fá aftur.

Árið 1947 ávarp­aði Elísabet, þá krón­prinsessa, sam­veldið í útvarpi. Í því hét hún því að helga líf sitt þjón­ustu við „okkar stór­kost­legu heims­veld­is­fjöl­skyldu sem við öll til­heyrum.“ Með heims­veld­is­fjöl­skyldu (imper­ial family) vís­aði hún til ríkj­anna og allra nýlend­anna sem þá voru enn undir oki Breta.

Elísabet helg­aði svo sann­ar­lega líf sitt þegnum kon­ungs­rík­is­ins. Jafnvel er hægt að halda því fram að hún hafi tekið hlut­verk sitt sem slíkt fram yfir sína eigin fjöl­skyldu. Að hún hafi verið drottn­ing fyrst en eig­in­kona og móðir svo. Skyldu­ræknin var henni í blóð borin en hún dró líka að sér það and­rúms­loft sem hún fædd­ist inní og ólst upp í, að hvítir Evr­ópu­búar væru yfir aðra hafnir og ættu að „siða“ fólk af öðrum kyn­þáttum – inn­tak þræla­halds­ins og nýlendu­stefn­unnar í hnot­skurn.

Hægt er að halda því fram að hún hafi verið barn síns tíma að þessu leyti en hins vegar baðst hún aldrei afsök­unar á syndum feðra sinna eða sam­ferða­manna, jafn­vel ekki á því ofbeldi sem aug­ljós­lega átti sér stað er hún hélt á valda­sprot­anum. Hún gaf ein­fald­lega ekk­ert út á það opin­ber­lega.

Völd hennar voru tak­mörkuð, meira en for­vera hennar flestra á valda­stóli. Hún hafði ekki póli­tískt vald í eig­in­legum skiln­ingi. Hún var sam­ein­ing­ar­táknið, þjóð­höfð­ing­inn sem ferð­að­ist um heim­inn, m.a. milli nýlend­anna, lík­lega víð­förl­asti jarð­ar­búi hingað til. Er nýlend­urnar urðu sjálf­stæðar, sumar eftir ára­langa bar­áttu, reyndi hún að halda góðum tengslum við þau ríki. Hún heim­sótti Kína, fyrst breskra þjóð­höfð­ingja, eftir að Bretar slepptu loks tak­inu af Hong Kong, svo dæmi sé tekið.

Hún er sögð hafa tekið afstöðu gegn aðskiln­að­ar­stefn­unni í Suður-Afríku, farið á fund leið­toga sam­veld­is­ríkj­anna í Sambíu árið 1979 – gegn ráðum Marg­ar­etar Thatcher for­sæt­is­ráð­herra. Á sjö­unda ára­tugnum var hún tals­maður þess að allar athafnir á Sam­veld­is­deg­inum, hátíð­ar­degi ríkja sem veldi hennar til­heyrðu, yrðu fjöl­menn­ing­ar­legar og öllum trú­ar­brögðum fagnað.

Feðraveldi eða samveldi? Elísabet, nýkrýnd drottning, ásamt leiðtogum ríkja breska samveldisins um miðjan sjötta áratug síðustu aldar.
Feðra­veldi eða sam­veldi? Elísabet, nýkrýnd drottn­ing, ásamt leið­togum ríkja breska sam­veld­is­ins um miðjan sjötta ára­tug síð­ustu aldar.

Hún var ekki kona margra orða eða stórra yfir­lýs­inga en hún sýndi með fyrr­greindum hætti ákveð­inn vilja í verki; að halda öllum góðum, byggja brýr, lægja öldur. Reyna sitt til að halda fjöl­skyld­unni saman.

„Við vorum barin og brotin niður til að trúa því að okkar til­gangur sem þjóðar væri að þjón­usta ykkur,“ sagði í yfir­lýs­ingu PNP, stjórn­mála­hreyf­ingar á kar­ab­ísku eyj­unni Jamaíka, er Vil­hjálmur (nú krón­prins) og Katrín eig­in­kona hans komu þangað í mars á þessu ári. Götur voru mal­bik­aðar og spít­al­arnir þrifnir hátt og lágt fyrir hina kon­ung­legu heim­sókn slíkt hið sama var ekki gert fyrir blá­fá­tæka íbúa Jamaíka sem þurfa á þessum innviðum að halda á hverjum degi.

Katrín og Vilhjálmur heimsóttu Jamaíka, sem er undir breska samveldinu, í mars. Þá voru þau hertogahjón. Nú eru þau prins og prinsessa.
Katrín og Vil­hjálmur heim­sóttu Jamaíka, sem er undir breska sam­veld­inu, í mars. Þá voru þau her­toga­hjón. Nú eru þau prins og prinsessa.

Heimsókn Vil­hjálms og Katrínar var alls ekki tekið af fullum sam­hug eyja­skeggja. Bretar gerðu Jamaíka að nýlendu sinni árið 1866 (hún var áður undir yfir­ráðum Spán­verja) og sjálf­stæði fékkst ekki fyrr en tæpri öld síðar. Elísabet var þó allar götur síðan þjóð­höfð­ingi.

Vil­hjálmur ávarp­aði Jamaíka­búa og lýsti yfir „djúp­stæðri sorg“ vegna þræla­halds­ins sem yrði „að eilífu blettur á sögu okkar“. Hann minnt­ist hins vegar ekki einu orði á hlut­verk fjöl­skyldu sinnar í þeirri hryggð­ar­sögu. Ekki frekar en amma hans gerði, að minnsta kosti opin­ber­lega, í heim­sóknum á þessar slóðir og aðrar sem eru drifnar blóði heims­valda­stefn­unnar.

Við frá­fall drottn­ing­ar­innar skap­að­ist því umræða á sam­fé­lags­miðlum um hina óupp­gerðu for­tíð. „Hún varð drottn­ing er hún var á ferða­lagi um Kenía. Afr­íku­búar bjuggu þá við aðskiln­að­ar­stefnu, voru frels­is­sviptir, pynt­aðir og drepnir,“ skrif­aði Twitter-not­andi sem gagn­rýndi harð­lega það orða­lag Breska rík­is­út­varps­ins að drottn­ingin hefði átt í „lang­vinnu sam­bandi“ við Kenía og aðrar Afr­íku­þjóðir.

Elísabet í heimsókn á eyjunni Nevis í Karabískahafinu á sjöunda áratugnum.
Elísabet í heim­sókn á eyj­unni Nevis í Kar­ab­íska­haf­inu á sjö­unda ára­tugnum.

Karen Attiah, blaða­maður á Washington Post, segir að það ætti engum að koma á óvart að ekki allir lýstu yfir sorg vegna dauða drottn­ing­ar­innar. „Svart og brúnt fólk um allan heim var beitt ólýs­an­legri grimmd og arðráni á nýlendu­tím­anum og þetta fólk hefur rétt til þess að hafa ákveðnar til­finn­ingar í garð Elísa­betar drottn­ingar,“ skrifar hún. „Þegar öllu er á botn­inn hvolft voru þeir þegnar hennar líka.“

Þótt Elísabet hafi ekki haft póli­tísk völd hafi voða­verk verið framin af rík­is­stjórnum hennar hátignar – í hennar valda­tíð. Bent hefur t.d. verið á að breskir her­menn hafi drepið og pyntað þús­undir Ken­ía­manna á árunum 1952-1960.

Einnig hefur verið minnt á borg­ara­stríðið í Nígeríu sem upp­hófst er Bretar við­ur­kenndu loks sjálf­stæði lands­ins árið 1960. Þá útveg­uðu Bretar hinni nýju níger­ísku stjórn mikið magn vopna, opin­ber­lega til að tryggja „frið“ en að margra mati til þess að geta áfram keypt olíu.

Árið 1961 fór Elísabet drottning í heimsókn til Gana. Sú ferð var táknræn fyrir vilja hennar að halda góðum tengslum við fyrrverandi nýlendur. Gana hafði orðið sjálfstætt ríki nokkrum árum fyrr.
Árið 1961 fór Elísabet drottn­ing í heim­sókn til Gana. Sú ferð var tákn­ræn fyrir vilja hennar að halda góðum tengslum við fyrr­ver­andi nýlendur. Gana hafði orðið sjálf­stætt ríki nokkrum árum fyrr.

Þá hefur verið rifjað upp að breski nýlendu­stjór­inn á Kýpur lýsti yfir neyð­ar­á­standi árið 1955 og það sama gerðu þeir sem fóru með yfir­ráð nýlend­unnar Jemen árið 1963. Fólkið var að rísa upp, vildi undan Bretum, og við því var brugð­ist með hörku. Valdi.

Óöld hefur oft og tíðum ein­kennt ástand í fleiri fyrr­ver­andi nýlendum og yfir­ráða­svæðum breska heims­veld­is­ins. Þótt ekki sé hægt að full­yrða að vald­níðslu nýlendu­herr­anna sé einni um að kenna er óhætt að segja að sá yfir­gangur hafi orðið olía á öll þau ófrið­ar­bál. Þjóðir fengu ekki að þró­ast, þroskast og dafna á eigin for­sendum. Þeim var haldið niðri og þær rændar sinni menn­ingu og sínum auð­lindum. Og sjálf­stæðis- og valda­bar­áttan sem við tók, innan rúðu­strik­aðra landamæra sem Evr­ópu­ríki teikn­uðu upp, hefur kostað millj­ónir manns­lífa.

„Sam­veldið er ekk­ert í lík­ingu við heims­veldi for­tíð­ar­innar,“ sagði Elísabet í jóla­ávarpi sínu, ári eftir að hún varð drottn­ing. Sam­veldið hafði verið stofnað form­lega árið 1949, á tíma þar sem nýlendur Breta í Asíu voru hver af annarri að brjót­ast til sjálf­stæðis. En það byggði á grunni heims­veld­is­ins, sama hvað orðum ungrar Elísa­betar drottn­ingar líður. Sam­veldið hafði þá yfir­lýstu stefnu að mennta og leiða nýlend­urnar í átt að sjálf­stjórn þótt það ætti einnig, leynt eða ljóst, að tryggja ítök og völd Breta um heims­byggð­ina. En það sem byggt var á yfir­gangi og ofbeldi gat ef til vill ekki endað öðru­vísi en í blóð­baði.

Á síð­ustu árum hefur vax­andi þrýst­ingur verið á bresk stjórn­völd að við­ur­kenna og bæta fyrir voða­verk þau sem unnin voru á tímum heims­veld­is­ins. Hænu­skref hafa verið stigin í þá átt en með aðstoð dóms­stóla.

Breska ríkið féllst árið 2013 á að greiða fórn­ar­lömbum pynt­inga í valda­tíð sinni í Kenía bætur. Þær námu sam­an­lagt 20 millj­ónum sterl­ingspunda. Árið 2019 voru sam­bæri­legar bætur greiddar eft­ir­lif­endum ofbeld­is­verk­anna á Kýpur.

Breskir hermenn frömdu mikil voðaverk í hinni svokölluðu maumau uppreisn í Kenía eftir að Elísabet tók við völdum.
Breskir her­menn frömdu mikil voða­verk í hinni svoköll­uðu maumau upp­reisn í Kenía eftir að Elísabet tók við völdum.

Elísabet II drottn­ing var horn­steinn í lífi margra á oft ólgu­tímum í sam­fé­lagi manna. Hún var fast­inn í glund­roða hraðra breyt­inga. Einhvern veg­inn að því er virt­ist óhagg­an­leg.

Nýleg skoð­ana­könnun sýndi að hún naut hylli um 75 pró­senta Breta. „Stærsta vanda­mál okkar er drottn­ingin! Allir elska hana,“ sagði for­maður ástr­alska Verka­manna­flokks­ins eitt sinn er gagn­rýni á sam­veldið sem land hans til­heyrir enn fór vax­andi. Hún var límið sem hélt þessu öllu saman.

Elísabet var lokuð bók allt sitt líf, skrif­aði Tina Brown, sem starf­aði eitt sinn sem ráð­gjafi við hirð drottn­ingar, í bók sinni The Palace Papers. Og af því að hún sýndi sjaldan til­finn­ingar sínar, tjáði sig ekki um eld­fim póli­tísk mál­efni, þá bjó fólk til sína eigin hug­mynd um hvaða mann­eskju hún hafði að geyma. Þannig varð hún allra. Sam­ein­aði fólk, skipti því ekki í póli­tískar fylk­ingar, tók ekki – að minnsta kosti opin­ber­lega – eina hlið fram yfir aðra. „Og það hlýtur að hafa verið lýj­andi fyrir hana,“ skrifar Brown.

Hún var drottn­ing í kjöl­far heims­styrj­aldar. Drottn­ing þegar heims­far­aldur COVID-19 gekk yfir. Hún var drottn­ing á tímum þar sem heims­veldi Bret­lands leyst­ist upp eða tók á sig aðra mynd eftir því hvernig á það er litið. „Heim­ur­inn eins og hann var við krýn­ingu hennar er ein­fald­lega ekki til lengur,“ segir Helen Lewis, blaða­maður The Atlantic.

Þeir urðu rúmlega sjö áratugirnir sem Elísabet sat á valdastóli.
Þeir urðu rúm­lega sjö ára­tugirnir sem Elísabet sat á valda­stóli.

Í fyrra ákvað Barbados að stofna lýð­veldi og gera for­seta þess að þjóð­höfð­ingja í stað Elísa­betar drottn­ingar. Það til­heyrir þó enn sam­veld­inu sem henni var svo annt um. Eyjan var nýlenda Breta í 300 ár. Þar hófst þræla­hald þeirra fyrir alvöru. Fólki var rænt í Afríku, það brenni­merkt með fanga­marki her­tog­ans af York og því svo þrælað út, kyn­slóð fram af kyn­slóð, á syk­ur­plantekr­unum.

Margar þess­ara plantekra eru enn í eigu Breta.

Mun fólkið sem enn til­heyrir breska sam­veld­inu, íbúar eyj­anna í Kar­ab­íska­haf­inu til dæmis, vilja Karl III sem kon­ung sinn? Eða mun það fylgja for­dæmi Bar­badosa?

Tíminn einn mun leiða það í ljós. Síðasti kóngur sem bar nafnið Karl átti stóran þátt í harm­sögu margra þess­ara þjóða. Og hann hélt þræla við hirð sína.

Eina mann­eskju keypti hann per­sónu­lega fyrir 50 pund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kóngafólk

Mest lesið undanfarið ár