Samgönguráðherra gagnrýnir lífeyrissjóði

Jón Gunn­ars­son sam­göngu­ráð­herra ýjar að því að líf­eyr­is­sjóðir vilji helst ná völdum en ekki ávaxta fé lands­manna, vegna frétta af sölu þriggja líf­eyr­is­sjóða á hlutum í VÍS í kjöl­far deilna.

Jón Gunnarsson er samgönguráðherra.
Jón Gunn­ars­son er sam­göngu­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jón Gunn­ars­son sam­göngu­ráð­herra lætur að því liggja á Facebook-síðu sinni að fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða í trygg­inga­fé­lag­inu VÍS snú­ist um að ná völdum en ekki að ávaxta fé lands­manna með sem bestum hætti.

[links]„Viðbrögð líf­eyr­is­sjóða vegna stjórn­ar­kjörs í VÍS hljóta að vekja upp spurn­ingar. Eftir að full­trúi sem þeir styðja náði ekki kjöri til stjórn­ar­for­manns hafa þeir ákveðið að draga veru­lega hluta­fjár­eign sinni í VÍS. Má skilja þetta svo að fjár­fest­ingar þess­ara líf­eyr­is­sjóða snú­ist um að ná völdum en ekki að ávaxta, með sem bestum hætti, fé okkar lands­manna sem þeim er treyst fyrir,“ segir Jón á Facebook-síðu sinni.

Mikið umrót hefur verið hjá trygg­inga­fé­lag­inu und­an­farið og miklar deilur í hlut­hafa­hópnum og stjórn. Ný stjórn er tekin við, með Svan­hildi Nönnu Vig­fús­dóttur fjár­festi í far­ar­broddi. Herdís D. Fjeld­sted sagði sig úr stjórn­inni en hún hafði talið sig hafa stuðn­ing sem stjórn­ar­for­mann. Henni var teflt fram í stjórn­ina af Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna, sem var þá einn stærsti eig­and­inn.

Herdís sagði í við­tali við Morg­un­blaðið í apríl að hún og Svan­hildur Nanna hefðu ólíka sýn á stjórn­ar­hætti skráðra og eft­ir­lits­skyldra félaga, og vís­aði sér­stak­lega til þeirra vald­marka sem hún teldi að væru til staðar á vett­vangi stjórna skráðra og eft­ir­lits­skyldra fyr­ir­tækja.

Morg­un­blaðið greindi frá því í gær að þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hefðu ákveðið að minnka veru­lega stöðu sína í VÍS í kjöl­far þess að Herdís sagði sig úr stjórn­inni. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins og Gildi líf­eyr­is­sjóður hafa allir minnkað hluti sína að und­an­förnu.

Í morgun sendi stjórnin frá sér yfir­lýs­ingu til þess að svara fyrir orðróm sem hafi skap­ast um félagið. Það leggi hún ekki í vana sinn, en telji sig knúna til að koma þessu á fram­færi vegna ummæla um stjórn­ar­hætti og frétta af sölu stórra hlut­hafa á hlutum í félag­in­u. Þar kom fram að gagn­rýni Herdísar væri byggð á ágisk­unum, og að farið væri eftir öllum lögum og reglum og leið­bein­ingum um góða stjórn­ar­hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár