Stjórn VÍS segir gagnrýni byggja á ágiskunum

Stjórn VÍS hefur sent frá sér til­kynn­ingu til að svara orðrómi um félagið. Stjórnin segir gagn­rýni fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns um stjórn­ar­hætti þar vera byggða á ágisk­unum og hún komi á óvart.

Stjórn VÍS segir gagn­rýni fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns félags­ins, Herdísar D. Fjeld­sted, byggja á ágisk­unum. Rík áhersla sé lögð á að öllum lögum, sam­þykktum, starfs­reglum og leið­bein­ingum um góða stjórn­ar­hætti sé fylgt til hins ítrasta við rekst­ur­inn.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá stjórn félags­ins. Þar kemur fram að stjórnin hafi ekki gert það að venju sinni að svara fyrir orðróm sem skap­ast um félagið, en hún telji sig knúna til að koma þessu á fram­færi vegna ummæla um stjórn­ar­hætti og frétta af sölu stórra hlut­hafa á hlutum í félag­inu.

Herdís sagði sig úr stjórn félags­ins og var það meðal ann­ars vegna óánægju með stjórn­ar­hætti. Hún sagði í við­tali í apríl að hún og núver­andi stjórn­ar­maður, Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir, hefðu ólíka sýn á stjórn­ar­hætti skráðra og eft­ir­lits­skyldra fél­gaa. Greint var frá því í Morg­un­blað­inu í gær að þrír líf­eyr­is­sjóðir hefðu ákveðið að losa um hluti í félag­inu vegna óánægju með stjórn­ar­hætti.

Í til­kynn­ingu frá stjórn VÍS segir að gagn­rýni Herdísar komi stjórn­inni á óvart. „Stjórnin bendir á, að stjórn­ar­for­mað­ur­inn fyrr­ver­andi sat aldrei stjórn­ar­fund í félag­inu eftir að ný stjórn skipti með sér verkum í kjöl­far aðal­fundar í mars sl. Því verður ekki betur séð en að gagn­rýnin byggi á ágisk­unum.“

Og í ljósi nýlegra breyt­inga á yfir­stjórn VÍS og kaupa á hlut í fjár­fest­inga­bank­anum Kviku hf. fyrr á árinu vilji stjórnin líka árétta að fjár­fest­ing félags­ins í Kviku sé skil­greind sem eign í fjár­fest­ing­ar­bók og svo verði áfram. „Núver­andi stjórn áformar heldur ekki að skipta sér af ein­stökum fjár­fest­ingum í fjár­fest­ing­ar­bók félags­ins. Slíkt hefur aldrei komið til tals.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár