Valdamesta embætti heims – Forseti eða einvaldskeisari?

Þegar Banda­ríkja­menn kjósa sér þjóð­ar­leið­toga fylgist heims­byggðin með. Forseti Banda­ríkj­anna er lík­lega valda­mesti maður heims, m.a. sem yfir­maður langöflug­asta her­afl­ans. Stór­yrtar og öfga­fullar yfir­lýs­ingar mögu­legra fram­bjóð­enda um utan­rík­is­mál, sér í lagi Donalds Trump og Teds Cruise, vekja því upp ýmsar spurn­ingar. Þar er eðli­legt að velta fyrir sér hvort fólk sem þannig talar sé hrein­lega hæft til að gegna svo valda­miklu emb­ætti.

Stóra spurn­ingin er hvernig fram­bjóð­end­unum með slíkar hug­myndir reiðir af þegar þeir hafa tekið við emb­ætti. Getur nýkjör­inn for­seti komið eins og storm­sveipur og gjör­breytt utan­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna eftir eigin geð­þótta? Getur sitj­andi for­seti aukið völd emb­ætt­is­ins, eins og t.d. núver­andi for­seti Íslands hefur mótað sitt emb­ætti?

Staðan er ekki svo ein­föld að Banda­ríkja­for­seti, valda­mik­ill sem hann er, sé ein­ráður um banda­ríska utan­rík­is­stefnu. Stjórn­kerfið er tals­vert flókið og for­set­inn þarf að hafa ríkt sam­ráð við ýmsa aðila, mál þurfa t.d. að fara í gegnum tvær þing­deildir sem flokkur hans hefur ekk­ert endi­lega meiri­hluta í. Staða for­set­ans snýst því að ein­hverju leiti um stöðuga valda­bar­áttu og samn­inga við þingið. Stefna og ákvarð­anir ráð­ast af því enda er emb­ættið og stjórn­kerfið í raun hugsað þannig í sam­ræmi við stjórn­ar­skrána.

Forsetinn sem einvaldskeisari

Þó virð­ist það vera til­hneig­ing hjá sitj­andi for­setum að safna að sér völdum. Það á einnig við um Barack Obama sem hafði uppi yfir­lýs­ingar um mik­il­vægi hins gagn­stæða þegar hann sótt­ist eftir emb­ætti. Hefur hug­takið Imperial Presidency verið notað þegar vald for­set­ans er farið að ógna því jafn­vægi sem stjórn­ar­skráin til­greinir.

Banda­ríkja­for­seti getur t.a.m. styrkt veru­lega stöðu sína tak­ist honum að selja almenn­ingi þá hug­mynd að ógnir séu yfir­vof­andi – ef ekki hrein og klár inn­rás, þá alla vega ógnir gagn­vart vest­rænum eða banda­rískum gildum. Því má halda því fram að for­seti sem situr á stríðs­tímum geti aukið vald sitt umtals­vert.

Dæmi um for­seta sem ein­valdskeis­ara eru frá valda­tíð Lyndons B. Johnsons og Richards Nixons sem stóðu einmitt í ströngu í Víetnam­stríð­inu. Þá má segja að þingið hafi í raun ein­ungis verið þeim til stuðn­ings og aðstoðar við að fram­fylgja stefnu for­seta­emb­ætt­is­ins í utan­rík­is­málum. Þessu var ekki snúið við fyrr en í kjöl­far afsagnar Nixons árið 1974.

Sagan end­ur­tók sig að ein­hverju leyti í valda­tíð Georges W. Bush í kjöl­far atburð­anna þann 11. sept­em­ber 2001. Þá færði hann ýmis mál í hendur for­seta­emb­ætt­is­ins á kostnað þings­ins í krafti þjóðar­ör­yggis. Hins vegar hefur verið bent á að Bush-stjórnin hafi bæði gefið út yfir­lýs­ingar og haft til­burði í þá átt að færa til sín meira vald tals­vert fyrir atburð­ina þann 11. sept­em­ber.

Væntanlegir frambjóðendur

Hvernig stefna vænt­an­legra fram­bjóð­enda mun í raun líta út, skýrist vænt­an­lega betur þegar úr því fæst skorið hver verður fyrir val­inu sem for­seta­efni flokk­anna. Þá munu fram­bjóð­end­urnir vænt­an­lega þurfa að draga tals­vert í land með yfir­lýs­ing­arnar og leggja til grund­vallar ein­hver hald­bær rök. Slíkt þarf þó ekk­ert endi­lega að verða raunin og vitað mál að það virkar vel til að afla fylgis að ala á ótta og gera sem mest úr meintum óvinum Banda­ríkj­anna. Þetta munu fram­bjóð­end­urnir vænt­an­lega gera, sér­stak­lega for­seta­efni Repúblík­ana.

Auðvelt er að kort­leggja Hillary Clinton, hún var utan­rík­is­ráð­herra í eitt kjör­tíma­bil, auk þess sem hún var for­seta­frú í tvö kjör­tíma­bil. Hún gjör­þekkir því aðstæður frá fyrstu hendi og veit hvað mætir nýkjörnum for­seta. Það kann að draga úr óraun­hæfum yfir­lýs­ingum og um leið gera hana að þeim fram­bjóð­anda sem flestir vita hvað muni standa fyrir.

Það má jafn­framt gera ráð fyrir að Hillary yrði á svip­aðri línu og Barack Obama nema vænt­an­lega tals­vert her­skárri. Hún hefur stutt hern­að­ar­að­gerðir sem Banda­ríkja­menn hafa staðið í und­an­farin ár, eins og inn­rás­ina í Írak og þegar Gaddafí var steypt af stóli í Líbýu. Einnig má gera ráð fyrir að Banda­ríkja­menn væru komnir í meiri ógöngur í Sýrlandi ef hennar ráðum hefði verið fylgt.

Reynsla Hillary Clinton kann þó um leið að vera ákveð­inn galli því hún er lík­leg til að fylgja eftir hefð­bundnum leiðum í utan­rík­is­málum, sem Banda­ríkja­menn eiga erfitt með að koma sér frá og sem hefur leitt þá í öng­stræti. Þær leiðir byggja á því að Banda­ríkin leiki for­ystu­hlut­verk í heim­inum og séu ómissandi þegar leysa eigi úr þeim alþjóð­legu vanda­málum sem upp komi.

Þegar kemur að utan­rík­is­málum er Bernie Sanders hins vegar að mörgu leyti óskrifað blað. Kosn­inga­bar­átta hans hefur að mestu snú­ist um bar­áttu gegn ofur­valdi fjár­mála­kerf­is­ins sem koma þurfi böndum á. Til að reyna að fá ein­hverja mynd af Sanders má benda á að hann var mót­fall­inn inn­rásinni í Írak á sínum tíma, en hefur hins vegar stutt stór­verk­efni í víg­bún­aði Banda­ríkj­anna eins og hina umfangs­miklu og jafn­framt umdeildu F-35 áætlun.

Repúblíkanar

Fram­bjóð­endur í for­vali Repúblíkana­flokks­ins eiga það flestir sam­eig­in­legt að nýta sér hina þekktu ótta­að­ferð í bar­áttu sinni. Þeir reyna að telja fólki trú um að Banda­ríkin séu búin að missa for­ystu­sætið í alþjóða­sam­fé­lag­inu vegna veiklu­legra stjórn­ar­hátta Baracks Obama, sem hafi bein­línis eyði­lagt Banda­ríkin, m.a. með því að draga úr fram­lögum til hers­ins. Klifað er á allri þeirri hættu sem að Banda­ríkj­unum steðji, hvort sem það eru hryðju­verka­menn frá Mið-Aust­ur­löndum, ógn­andi ríki eins og Íran eða N-Kórea, eða bara nágrannar í Mexíkó.

Óhætt er að full­yrða að flest af því sem sagt er í þeirri umræðu er stór­lega ýkt ef ekki bein­línis logið. Vissu­lega eru þar ákveðin vanda­mál í spil­inu, Banda­ríkin hafa orðið fyrir hryðju­verka­árásum og það er ekki sjálf­gefið hvernig takast á við ógn­vald eins og ÍSIS. Þær lausnir sem boð­aðar eru af fram­bjóð­endum Repúblík­ana eru þó sjaldn­ast í neinu sam­ræmi við raun­veru­leik­ann. Þær öfga­fyllstu ógna stöðu Banda­ríkj­anna jafn­vel enn meira, fyrir utan að ganga jafn­vel í ber­högg við stjórn­ar­skrána.

Á það ber að líta að ekki er hægt að leggja að jöfnu yfir­lýs­ingar fram­bjóð­enda í kosn­inga­bar­áttu, þar sem talað er til fólks innan flokk­anna í kjöri til útnefn­ingar, og það hvernig stefnan verður þegar á hólm­inn er komið. Það er t.d. ekki hægt að taka yfir­lýs­ingar Donalds Trumps um bygg­ingu múrs milli Banda­ríkj­anna og Mexíkó, eða að múslimum verði bannað að koma til lands­ins, alvar­lega.

Keppni í djörfung og hug

Það virð­ist eins og það sé und­ir­liggj­andi krafa að for­set­inn sýni ákveðni og styrk sem yfir­maður her­afl­ans og því er þeim for­seta vandi á höndum sem vill gæta hóf­semi í utan­rík­is­málum. Repúblík­anar gagn­rýna Demókrata gjarnan fyrir að sýna lin­kind í utan­rík­is­málum, sem verður til þess að til verður ákveðin sam­keppni þar sem Demókratar sýna kjós­endum sem ann­ars myndu halla sér að Repúblík­önum að þeir geti nú líka verið her­skáir. Þegar þessi víga­móður kemur saman við þá til­hneig­ingu for­seta í emb­ætti að auka völd sín, m.a. með til­vísun til þjóðar­ör­yggis, er hætta á að útkoman verði slæm, ekki bara fyrir banda­rísku þjóð­ina heldur heim­inn allan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár