Fjöldi rafbíla á Íslandi hefur fimmfaldast frá byrjum árs 2014

Fjöldi raf­bíla á Íslandi hefur fimm­fald­ast frá því í jan­úar 2014. Bílar sem not­ast ein­vörð­ungu við raf­magn sem orku­gjafa voru þá um eitt hund­rað en eru í dag yfir fimm hund­ruð. Svo­kall­aðir tvinn­bílar (e. hybrid), þar sem stuðst er við raf­magn og bensín til skiptis sem orku­gjafa, eru enn tölu­vert vin­sælli á meðal Íslend­inga en raf­bíl­arnir. Þeir eru um 1.500 tals­ins og því þrisvar sinnum fleiri en raf­bíl­arnir. Þetta kemur fram í frétt á heima­síðu Climate Action programme, sem vinnur með Umhverf­is­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna, við að búa til sam­band milli fyr­ir­tækja stjorn­valda og stofn­ana með það fyrir augum að hraða alþjóð­legri sjálf­bærni og til­urð „græna hag­kerf­is­ins“.

Þar sem nán­ast öll orka á Íslandi sé unnin úr end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum – vatns­afli eða jarð­varma – þá sé landið talið sér­stak­lega hent­ugt fyrir því að bylta sam­göngu­máta sínum. Þar er fyrst og fremst horft til þess að skipta út elds­neyti unnið úr olíu fyrir raf­magn til að knýja áfram helstu sam­göngu­tæki þeirra 329 þús­und manna sem hér búa, bæði einka­bíla og almenn­ings­sam­göngur.

Í frétt­inni er sagt frá því að Orka Nátt­úr­unnar (ON), syst­ur­fé­lag Orku­veitu Reykja­víkur, hafi tekið að sér leið­andi hlut­verk í þessu átaki með því að leggja til toll­frjálsar hrað­hleðslu­stöðvar víða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í byrjun árs 2014 voru engar slíkar stöðvar á vegum fyr­ir­tæk­is­ins, en í dag eru þær tíu. Að sögn ON eru stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins í meiri notkun að með­al­tali en sam­bæri­legar stöðvar í Noregi,en Norðmenn hafa gengið lengst allra í að inn­leiða hvata til að hraða raf­væð­ingu sam­göngu­tækja hjá sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár