Meirihluti fyrir aðild að ESB á meðal kjósenda Vinstri grænna

Ný könnun sýnir að 51 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna séu fylgj­andi aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Meiri­hluti þjóð­ar­innar er þó á móti aðild. Mikil munur er á afstöðu fólks eftir búsetu, menntun, tekjum og því hvaða stjórn­mála­flokk við­kom­andi styður.

Alls segj­ast 51 pró­sent stuðn­ings­manna Vinstri grænna vera fylgj­andi því að ganga í Evr­ópu­sam­bandið í nýlegri könnun sem Gallup gerði fyrir sam­tökin Já Ísland. Samkvæmt þeirri nið­ur­stöður er meiri­hluti fyrir því á meðal stuðn­ings­manna Vinstri grænna, sem mæl­ast með 25,2 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans, að ganga í Evr­ópu­sam­bandið. Það er and­stætt stefnu flokks­ins sem er að Ísland eigi að standa utan sam­bands­ins. For­svars­menn hans hafa hins vegar verið opnir fyrir því að leyfa þjóð­inni að ráða hvort að farið verði á ný í við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið eða ekki.

Meiri­hluti þjóð­ar­innar er þó enn á móti aðild. Alls segj­ast sex af hverjum tíu að þeir vilji standa utan sam­bands­ins. Mikil munur er á afstöðu fólks eftir búsetu, menntun, tekjum og því hvaða stjórn­mála­flokk við­kom­andi styður.

Gjá milli höfuðborgar og landsbyggðar

Alls sögð­ust 40,2 pró­sent aðspurðra vera með aðild að Evr­ópu­sam­band­inu en 59,8 pró­sent á móti. Stuðn­ingur við aðild hefur auk­ist umtals­vert frá því að hann var kann­aður síð­ast í febr­úar 2017, en þá sögð­ust 33,9 pró­sent vera fylgj­andi aðild.

Karlar eru lík­legri til að styðja aðild en konu er og stuðn­ingur við hana er mun meiri hjá yngra fólki en því sem eldra er. Þannig segj­ast 55 pró­sent aðspurðra í ald­urs­hópnum 18-24 ára að þeir myndu örugg­lega eða senni­lega greiða atkvæði með aðild að Evr­ópu­sam­band­inu ef greitt yrði atkvæði í dag. Stuðn­ing­ur­inn er hins vegar minnstur hjá þeim eru 55 ára og eldri. Þar segj­ast ein­ungis 33 pró­sent aðspurðra styðja inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið.

Reyk­vík­ingar vilja mun fremur ganga í sam­bandið en fólk sem býr á öðrum svæðum lands­ins. Í höf­uð­borg­inni segj­ast 50 pró­sent aðspurðra að þeir vilji örugg­lega eða senni­lega inn í það en sama hlut­fall er á móti. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur er stuðn­ing­ur­inn 40 pró­sent en í öðrum sveit­ar­fé­lögum ein­ungis 30 pró­sent. Því er ljóst að gjá er á milli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og lands­byggðar þegar kemur að stuðn­ingi við aðild.

Marktækur munur eftir menntunarstigi

Sá hópur sem er með fjöl­skyldu­tekjur á bil­inu 550 til 799 þús­und krónur á mán­uði og sá sem er með meira en milljón krónur í fjöl­skyldu­tekjur á mán­uði eru lang­lík­leg­astir til að segja já við því að ganga í sam­bandið. Alls segj­ast 48 pró­sent aðspurðra í báðum þessum tekju­hópum að þeir vilji inn. Minnstur er stuðn­ing­ur­inn í þeim sem hópi sem hefur mán­að­ar­legar fjöl­skyldu­tekjur upp á 400 til 599 þús­und krónur á mán­uði. Þar segj­ast ein­ungis 31 pró­sent styðja aðild.

Mark­tækur munur er á stuðn­ingi fólks eftir mennt­un­ar­stigi. Stuðn­ingur við aðild er minnstur hjá þeim sem eru ein­ungis með grunn­skóla­próf. Þar eru 32 pró­sent fylgj­andi aðild en restin á móti. Hjá þeim sem eru með háskóla­próf er hins vegar meiri­hluti fyrir aðild. Á meðal þess hóps segj­ast 53 pró­sent fylgj­andi inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið.

Kjósendur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks helst á móti

Mikill munur er á afstöðu fólks eftir því hvaða flokk við­kom­andi myndi kjósa til Alþingis. Kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar eru mjög ein­arðir stuðn­ings­menn aðildar. Innan þeirra raða segj­ast 93 pró­sent styðja aðild. Stuðn­ings­menn Pírata eru einnig mjög fylgj­andi aðild, en 79 pró­sent þeirra myndu örugg­lega eða senni­lega segja já við aðild ef kosið yrði í dag. Athygli vekur að meiri­hluti kjós­enda Vinstri grænna, þess flokks sem mælist stærstur í skoð­an­ana­könn­unum um þessar mundir, eru fylgj­andi aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Alls segja 51 pró­sent þeirra að þeir vilji inn í sam­bandið en 49 pró­sent eru á móti.

Stuðn­ing­ur­inn er minnstur hjá kjós­endum Flokks fólks­ins (29 pró­sent) Sjálf­stæð­is­flokks (27 pró­sent) og Fram­sókn­ar­flokks­ins (24 pró­sent).

Könnunin var unnin fyrir Já Ísland og var fram­kvæmd 11-24. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Um var að ræða net­könnun og úrtakið var 1.435 manns um allt land. Allir þátt­tak­endur voru 18 ára og eldri og voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup. Þátt­töku­hlut­fall var 59,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár