Geir Haarde spurði Davis um EFTA-aðild eftir Brexit

EFTA-aðild Bret­lands hefur komið til tals, en hún er ekki efst á óska­list­anum. David Davis, Brexit-ráð­herra Bret­lands, ræddi við Geir Haarde í Washington.

David Davis er Brexit-ráðherra Bretlands. Hann hefur nú sagt aðild að EFTA vera einn kostinn sem kannaður sé.
David Davis er Brexit-ráð­herra Bret­lands. Hann hefur nú sagt aðild að EFTA vera einn kost­inn sem kann­aður sé. Mynd: EPA

Bresk stjórn­völd kanna mögu­leik­ann á því að ganga til liðs við Frí­versl­un­ar­sam­tök Evrópu (EFTA) til þess að forða hug­an­legu efna­hags­hruni í kjöl­far þess að Bretland gengur úr Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) í mars 2019.

Þetta sagði Brexit-ráð­herr­ann David Davis í gær, en hann er staddur í Washington í Banda­ríkj­unum og sótti fund við­skipta­ráðs Banda­ríkj­anna. Þar hitti hann Geir Haarde, sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum, sem spurði hann hvort það hafi komið til greina að feta sömu leið og Ísland, Noregur, Sviss og Liechtenstein hafa gert í Evr­ópu­sam­vinn­unni.

Frá þessu er greint á vef Politico.

Bretland á nú í samn­inga­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið um skilnað þeirra sem mun taka form­lega gildi í mars 2019. Bretland má þá búast við að tollar og aðrar við­skipta­hindr­anir rísi á landa­mærum Evrópu gagn­vart Bret­landi, enda felur úrsögn úr ESB í sér úrsögn úr sam­eig­in­legum mark­aði Evrópu og tolla­banda­lag­inu.

Bretar leita þess vegna leiða til þess að tak­marka nei­kvæð áhrif þessa á breskt efna­hags­líf. Ein þeirra leiða sem hefur nefnd er að Bretland gangi til liðs við EFTA og sæk­ist eftir aðild að Evrópska efna­hags­svæð­inu. Þá yrði aðgangur Bret­lands svip­aður og aðgangur Íslands og Noregs er nú.

[links]„Þetta hefur komið til tals en er ekki efst á óska­list­anum,“ sagði Davis þegar Geir hafði spurt hann um íslensku leið­ina. EFTA-aðild yrði alltaf tíma­bundin í augum Bret­lands.

Í við­ræð­unum við ESB hefur Bretland sóst eftir að gerður verði eins konar umbreyt­ing­ar­samn­ingur, tíma­bundið plagg sem myndi lengja þann tíma sem Bretland hefði til þess að ganga úr ESB. Bresk stjórn­völd hafa lagt áherslu á að sækja samn­ing sem snið­inn væri að þörfum Bret­lands, en ráða­menn í ESB telja EFTA-mód­elið vera ákjós­an­lega leið fyrir Bretland.

Bretar telja hins vegar að aðild­ar­við­ræður við EFTA þurfi að ger­ast á sama tíma og við­ræður um umbreyt­ing­ar­tíma­bil. Það sé ekki ákjós­an­leg staða og þess vegna sækj­ast Bretar fyrst eftir umbreyt­ing­ar­tíma­bil­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár