Páli Magnússyni vikið úr fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í Eyjum

Sjálf­stæð­is­menn eru æfir út í Pál Magn­ús­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Suð­ur­kjör­dæmi.

„Vegna for­dæma­lausr­ar fram­göngu odd­vita Sjálf­stæðis­flokks­ins í Suður­kjör­dæmi í nýliðnum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um lýs­ir auka­aðal­fund­ur full­trúa­ráðs Sjálf­stæðis­fé­lag­anna í Vest­manna­eyj­um fullu van­trausti á 1. þing­mann Suður­kjör­dæm­is, Pál Magnús­son. Full­trúa­ráðið get­ur ekki litið á þing­mann­inn sem trún­að­ar­mann Sjálf­stæðis­flokks­ins og ósk­ar eft­ir fundi með for­ystu flokks­ins vegna þeirr­ar al­var­legu stöðu sem upp er kom­in.“

Þannig hljómar ályktun Sjálf­stæð­is­fé­lags­ins í Vest­manna­eyjum frá því í gær­kvöld, en þar var van­trausti lýst á Pál Magn­ús­son. Mikil reiði er í röðum Sjálf­stæð­is­manna í Eyjum vegna sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna í vor, en Páll studdi ekki opin­ber­lega fram­boð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Eyjum.

Klofn­ings­fram­boð úr Sjálf­stæð­is­flokknum, Fyrir Heimaey, vann mik­inn sigur í kosn­ing­unum og mynd­aði meiri­hluta í bæj­ar­stjórn með Eyja­list­anum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór þar með í minni­hluta.

Jarl Sig­ur­geirs­son, for­maður full­trúa­ráðs­ins, segir í við­tali við mbl.is að fund­ur­inn hafi verið hald­inn til að taka til í ráð­inu. „Við kjós­um í full­trúa­ráðið en hann var ekki á þeim lista sem var nú bor­inn upp til at­kvæða. Það sam­þykktu all­ir fund­ar­menn að hafa hann ekki á list­an­um. Ég held að þetta sé í fyrsta skipti í sög­unni sem þing­maður úr heima­bæn­um er ekki í full­trúa­ráði, enda er þetta ef­laust í eina skipti í sögu stjórn­mála sem odd­viti flokks­ins styður ekki sinn flokk í sveit­ar­fé­lag­inu,“ seg­ir Jarl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár