Efling í verkfall á morgun

Fundur samn­inga­nefnda Eflingar og Reykja­vík­ur­borgar hjá rík­is­sátta­semj­ara bar ekki árangur í morgun og því munu félags­menn Eflingar fara í verk­fall á morgun.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Fundur samn­inga­nefnda Eflingar og Reykja­vík­ur­borgar hjá rík­is­sátta­semj­ara bar ekki árangur í morgun og því ljóst að rúm­lega 1.800 félags­menn Eflingar sem starfa hjá borg­inni fara í verk­fall á hádegi á morgun. Næsti fundur í kjara­deil­unni er boð­aður klukkan þrjú á mið­viku­dag­inn. RÚV greinir frá.

Verk­falls­að­gerð­irnar hefj­ast klukkan 12:30 á hádegi og standa til mið­nættis. Verk­fallið mun hafa mest áhrif á leik­skóla- og vel­ferð­ar­þjón­ustu á vegum Reykja­vík­ur­borgar auk sorp­hirðu, vetr­ar­þjón­ustu og umhirðu borg­ar­lands­ins.

Starfs­fólk Eflingar telur um 1.850 af um 9.000 starfs­mönnum borg­ar­innar. Efl­ing­ar­fólk starfar í fjöl­breyttum störfum á 129 starfs­stöðum hjá Reykja­vík­ur­borg. Um 1.000 starfa á skóla- og frí­stunda­sviði, þar af mik­ill meiri­hluti í leik­skól­unum. Þá starfa um 700 úr Eflingu við vel­ferð­ar­þjón­ustu borg­ar­innar.

[links]Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, segir í sam­tali við frétta­stofu RÚV að eng­inn árangur hafi verið á fund­inum í morgun. „Það kom ekk­ert fram af hálfu borg­ar­innar sem að býr til neinn við­ræðu­grund­völl.“

Þá kom fram á kynn­ingu Eflingar í síð­ustu viku að fram­kvæmd launa­hækk­unar næmi um 22 til 52 þús­und krónur á mán­uði fyrir laun undir 445 þús­und á mán­uði. Launa­hækk­unin yrði fram­kvæmt í tveimur áföng­um. Í fyrsta lagi þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi þar sem 56 pró­sent af kostn­að­ar­á­hrifum myndu koma fram og í öðru lagi þann 1. mars á næsta ári þar sem 100 pró­sent af kostn­að­ar­á­hrifum myndu koma fram.

Áætluð með­al­tals­hækkun á mann er reiknuð út frá fjölda í hverjum launa­flokki, starfs­hlut­falli og álögum vegna vakta­vinnu og yfir­vinnu. Gert er ráð fyrir 24 pró­sent við­bót vegna launa­kostn­aðar og 1.850 starfs­mönn­um.

Baráttufundur í Iðnó

Efling hefur efnt til bar­áttufundar í Iðnó. Starfs­menn leggja niður störf, eins og áður segir, klukkan 12:30 og safn­ast saman í Iðnó þar sem boðið verður upp á dag­skrá, kaffi­veit­ingar og skilta­gerð. Húsið opnar klukkan 12:30 og hefst dag­skrá klukkan 13.00, að því er kemur fram í til­kynn­ingu frá Eflingu sem send var út í dag.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, mun ávarpa gesti, Bubbi Morthens taka lagið og félags­menn í Eflingu þar á eftir taka til máls.

Að lokun verður kröfu­ganga en í Iðnó verður opið hús til klukkan 16:00.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár