Oddný: „Skattaskjól eru nýtt af fólki sem vill fela peningana sína“

Í sér­stakri umræðu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum benti fjár­mála­ráð­herra á að aflands­fé­lög sem slík væru ekki ólög­leg. Margt hafi verið gert á nýliðnum árum til að koma í veg fyrir skattaund­an­skot.

Oddný G. Harðardóttir og Bjarni Benediktsson ræddu um aflandseignir Íslendinga í dag.
Oddný G. Harð­ar­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son ræddu um aflandseignir Íslend­inga í dag. Mynd: Kjarninn/Samsett

Margt hefur breyst til hins betra á und­an­förnum árum í mál­efnum sem tengj­ast eignum Íslend­inga á aflands­svæðum og umhverfið í mála­flokknum gjör­breyst að mati Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Þetta kom fram í sér­stakri umræðu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum sem fram fór í þing­inu í dag.

Bjarni sagði að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Skatt­inum virt­ust bæði skattaund­an­skot og -snið­ganga hafa minnkað á und­an­förnum árum. „Það er að ger­ast meðal ann­ars vegna upp­lýs­inga­skipta­samn­inga sem við höfum und­ir­ritað síð­ustu ár. Það gætir meira gagn­sæis í öðrum ríkjum, sömu­leiðis. Breyttar reglur hér á landi. Ný lög skipta máli. Hér má nefna lög um skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda og síð­ast í gær vorum við að sam­þykkja lög um upp­töku sekt­ar­á­kvæða vegna milli­verð­lagn­ing­ar­mála,“ sagði Bjarni.

Hann sagði það skipta máli að hóf­legar og sann­gjarnar álögur væri til staðar og hvat­arnir til skattaund­an­skota þar með teknir í burtu. Undir lok ræðu sinnar benti Bjarni á að aflands­fé­lög sem slík væru ekki ólög­leg.

„Hér vil ég að lokum segja að aflands­fé­lögin sem slík eru ekki ólög­leg að íslenskum lögum. Við segjum hins vegar í skatta­lög­unum að við skil­greinum það sem lág­skatta­ríki þar sem tekju­skattur er tveimur þriðju lægri en á Íslandi og við sam­þykkjum ekki slíka skatt­lagn­ingu og skatt­leggjum slíka starf­semi á Íslandi sam­kvæmt íslenskum skatta­reglum. Það er lyk­il­at­riði. Þessu höfum við verið að breyta á und­an­förnum árum og þess vegna stendur dálítið upp úr spurn­ingin hvort máls­hefj­andi hér telji að í skatta­regl­unum sé eitt­hvað ábóta­vant eða ekki.“

Koma þurfi í veg fyrir aflandsvæðinu Íslands

Mál­hefj­andi umræð­unnar var Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og sagði hún í upp­hafs­ræðu sinni meðal ann­ars að eftir útkomu skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum hefði verið kallað eftir frek­ari rann­sóknum á umsvifum eigna Íslend­inga á aflands­svæðum til að fyr­ir­byggja skatt­svik. Oddný sagði núver­andi rík­is­stjórn hafa svarað því kalli með því að leggja niður emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Hún sagði að í skýrsl­unni hefði mörgum mik­il­vægum spurn­ingum verið varpað fram sem vert væri að fá svör við.

Í kjöl­farið beindi Oddný spurn­ingum til fjár­mála­ráð­herra, meðal ann­ars um hlut­deild aflands­fé­laga í eign­ar­haldi í félögum í úrvals­vísi­tölu kaup­hall­ar­innar og um rann­sóknir á milli­verð­lagn­ingu í vöru­við­skiptum.

Þá sagði Oddný að alþjóð­leg sam­vinna hefði auk­ist á und­an­förnum árum um aðgerðir gegn skatta­skjólum og að þátt­taka Íslend­inga í slíku sam­starfi þyrfti að vera mark­viss. „Til að koma í veg fyrir að skað­inn sem átti sér stað við afland­svæð­ingu Íslands á árunum fyrir banka­hrun end­ur­taki sig Í ein­hverri mynd verður að rann­saka, kort­leggja, vinna að vand­aðri laga­setn­ingu og vinna með öðrum þjóðum með notkun skatta­skjóla. Skatta­skjól eru nýtt af fólki sem vill fela pen­ing­ana sína fyrir skatt­inum og láta aðra bera uppi sinn hlut í vel­ferð­ar­kerf­inu.“

Þingmenn ósammála um mikilvægi embættis skattrannsóknarstjóra

Fjár­mála­ráð­herra rakti í seinni ræðu sinni, undir lok umræð­unnar, nokkrar af þeim breyt­ingum sem ráð­ist hafði verið í til þess að koma í veg fyrir skattaund­an­skot. Hann klykkti út með orð­unum: „Ég þakka fyrir gagn­lega umræðu og að lokum þetta: Við vorum ekki að leggja niður emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra heldur sam­eina það skatt­inum.“

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafði verið tölu­vert til umræðu í þess­ari sér­stöku umræðu. Líkt og áður segir gagn­rýndi Oddný að emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hefði verið lagt niður.

Smári McCarthy sagði í ræðu sinni að sú ákvörðun að leggja emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra og fjár­mála­eft­ir­lit niður og „fela öðrum van­fjár­mögnuð stofn­unum þau verk­efni er á vissan hátt rót vand­ans.“ Þá sagði hann að sú stað­reynd að stofn­anir sem þurfa að sinna rann­sóknum á skattaund­anskotum þurfi jafn­vel að reiða sig á gagna­leka sýna að víða sé pottur brot­inn. Þá gagn­rýndi hann Brynjar Níelsson fyrir að vera þing­maður sem hefur „sér­hæft sig í því að stækka gráa svæðið og gera útlínur þess loðn­ari.“

Brynjar sagði í sinni ræðu að nýlegar breyt­ingar á emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra myndu gera eft­ir­lit með skattaund­anskotum betra. „Ég vil líka and­mæla því sér­stak­lega sem kemur alltaf hér fram að það sé verið að reyna að draga úr skatt­eft­ir­liti í nýlegum lögum. Þar sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri var sam­ein­aður skatt­inum, hann var ekk­ert lagður niður. Það er ekk­ert verið að hugsa um að draga úr skatt­eft­ir­liti nema síður sé, það er verið að gera það betra.“

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um gerði emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra athuga­semdir við þá breyt­ingu sem gerð var á emb­ætt­inu þegar það var lagt af sem sjálf­stæð stofnun og varð að ein­ingu innan Skatts­ins. Í athuga­semd­unum kom fram að hætta yrði á að sér­fræði­þekk­ing myndi glat­ast. Þá var breyt­ingin einnig sögð ganga gegn til­gangi sínum um að koma í veg fyrir tvö­falda refs­ingu og tvö­falda máls­með­ferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár