Heiða Björg skipuð í embætti forstjóra Barnaverndarstofu

Heiða Björg Pálma­dóttir hér­aðs­dóms­lög­maður hefur verið skipuð í emb­ætti for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu en hún hefur starfað sem settur for­stjóri stof­unnar í rúmt ár.

Heiða Björg Pálmadóttir, nýr forstjóri Barnaverndarstofu.
Heiða Björg Pálma­dóttir, nýr for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu. Mynd: Stjórnarráðið

Heiða Björg Pálma­dóttir hefur verið skipuð í emb­ætti for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Hún hefur starfað sem settur for­stjóri frá 1. mars 2018 eftir að Bragi Guð­brands­son fór í leyfi.

Í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu segir að Heiða Björg hafi víð­tæka reynslu á sviði barna­verndar. Hún hefur starfað sem yfir­lög­fræð­ingur Barna­vernd­ar­stofu frá árs­byrjun 2009 og verið settur for­stjóri stof­unnar í rúmt ár. Auk þess sat hún í barna­vernd­ar­nefnd Reykja­víkur frá 2006 til 2009.

Sex sóttu um starfið

Sex sóttu um að verða næsti for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu en umsókn­ar­frestur rann út í byrjun febr­úar. Auk Heiðu Björgu sóttu um starfið Birna Guð­munds­dótt­ir, Guð­laug María Júl­í­us­dótt­ir, Katrín Jóns­dótt­ir, Róbert Ragn­ars­son og Svala Ísfeld Ólafs­dótt­ir.

Bragi Guð­brands­­son, sem hafði gegnt starf­inu árum sam­an, lét af starfi for­­stjóra í febr­­úar í fyrra eftir að hafa tekið sæti í Barna­rétt­­­ar­­­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna fyr­ir Íslands hönd og tekið að sér sér­­verk­efni á vegum vel­­ferð­­ar­ráðu­­neyt­is­ins.

Ásmundur Einar Daða­son, félags- og barna­­mála­ráð­herra, skip­ar for­­­stjóra ­­Barna­vernd­­ar­­stofu til fimm ára í senn að und­an­gengnu mat­i ­sér­stakrar hæfn­is­nefndar sem ráð­herra setur á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins.

Heildarendurskoðun barnaverndarlaga

Hlut­verk Barna­vernd­­ar­­stofu er að vinna að sam­hæf­ingu og efl­ingu barna­vernd­­ar­­starfs í land­inu og er félags­­­mála­ráð­herra til ráð­gjafar um stefn­u­­mótun í mála­­flokkn­um, sam­­kvæmt vef félags­­­mála­ráðu­­neyt­is­ins. Jafn­­framt fer Barna­vernd­­ar­­stofa með leið­bein­ingar um túlkun og fram­­kvæmd barna­vernd­­ar­laga og fræðslu og ráð­­gjöf fyrir barna­vernd­­ar­­nefndir í land­inu. Enn fremur hefur Barna­vernd­­ar­­stofa eft­ir­lit með störfum barna­vernd­­ar­­nefnda.

Í lok febr­­úar á síð­­asta ári til­­kynnti ráðu­­neytið að eft­ir­lit með öllu barna­vernd­­­ar­­­starfi í land­inu yrði end­­­ur­­­skoðað og ráð­ist yrði í heild­­­ar­end­­­ur­­­skoðun barna­vernd­­­ar­laga. Þá verði settar skýrar for­m­­­kröfur um sam­­­skipta­hætti stjórn­­­­­valda sem gegna hlut­verki á sviði barna­vernd­­­ar.

Í til­­kynn­ing­unni um frum­varpið kom fram að fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á sviði barna­verndar séu að hluta til liður í við­brögðum ráðu­­­neyt­is­ins til að end­­­ur­heimta traust í kjöl­far kvart­ana frá for­­­menn ­­barna­vernd­­ar­­nefnd­anna ­­vegna sam­­­skipta við Barna­vernd­­­ar­­­stofu og for­­­stjóra hennar en þeim sé einnig ætlað að bæta stjórn­­­sýslu mála­­flokks­ins og stuðla að þróun nýrra úrræða í barna­vernd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár