Fyrirtækjum sem fá brúarlán verði bannað að greiða út arð eða kaupa eigin bréf

Skipuð verður sér­stök eft­ir­lits­nefnd sem gefur ráð­herra og Alþingi skýrslu um fram­kvæmd brú­ar­lána sem fara í gegnum banka, að því er fram kemur í máli for­sæt­is­ráð­herra í dag.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra bendir á í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag að tölu­vert hafi verið rætt um arð­greiðslur til fyr­ir­tækja sem muni njóta rík­is­á­byrgðar í aðgerðum stjórn­valda en gagn­rýnt hefur verið í sam­fé­lag­inu að ekki hafi verið sett skil­yrði fyrir svoköll­uðum brú­ar­lánum.

„Þetta mál hefur verið rætt í efna­hags- og við­skipta­nefnd og mun nefndin gera til­lögur sem tryggja að fyr­ir­tæki sem fá rík­is­á­byrgð á hluta lána sinna verður bannað að greiða út arð eða kaupa eigin hluta­bréf á meðan rík­is­á­byrgðar nýtur,“ skrifar hún.

Brú­ar­lánin fela í sér að hið opin­bera gengur í ábyrgð fyrir helm­ing lána sem geta í heild numið allt að 70 millj­örðum króna. Með því að Seðla­bank­inn, fyrir hönd rík­is­ins, gangi í ábyrgð fyrir lán­unum þá er þess vænst að kjörin á þeim verði lægri en áður hafi sést í Íslands­sög­unni.

Í fjár­auka­laga­frum­varp­inu segir um þessi lán: „Samn­ingur ráð­herra við Seðla­bank­ann skal eftir föngum tryggja end­ur­greiðslu slíkra við­bót­ar­lán­veit­inga og miða við að heild­ar­á­hætta rík­is­sjóðs vegna þeirra geti að hámarki numið 35 ma.kr.“

Katrín segir enn fremur að skipuð verði sér­stök eft­ir­lits­nefnd sem gefi ráð­herra og Alþingi skýrslu um fram­kvæmd brú­ar­lána sem fara í gegnum banka. Það sé mik­il­vægt að lög­gjaf­inn sýni þennan skýra vilja. Nefnd­ar­á­liti efna­hags- og við­skipta­nefndar verði dreift síðar í dag.

Brú­ar­lána­að­gerðin er ein helsta aðgerðin í pakk­anum sem rík­is­stjórnin kynnti í Hörpu um síð­ustu helgi. Í henni felst að auð­velda við­bót­ar­lán lána­stofn­ana til fyr­ir­tækja. Þetta verður gert þannig að ríkið semur við Seðla­banka Íslands um að færa lána­stofn­unum aukin úrræði til að veita við­bót­ar­fyr­ir­greiðslu til fyr­ir­tækja, í formi brú­ar­lána, sem orðið hafa fyrir veru­legu tekju­tapi vegna yfir­stand­andi aðstæðna.

[links]Seðla­bank­inn mun því veita ábyrgðir til lána­stofn­ana sem þær nýta til að veita við­bót­ar­lán upp að um 70 millj­arða króna. Aðal­við­skipta­bankar fyr­ir­tækja munu veita þessa fyr­ir­greiðslu og aðgerðin er í heild metin á um 80 millj­arða króna að teknu til­liti til auk­innar útlána­getu banka vegna lækk­unar á banka­skatti, sem mun aukast um tæp­lega 11 millj­arða króna. Hún kemur til við­bótar við svig­rúmið sem Seðla­bank­inn hefur þegar gefið, sem nemur um 350 millj­örðum með lækkum sveiflu­jöfn­un­ar­aukans síð­ast­lið­inn mið­viku­dag.

Til að fá bru­ár­lán þarf fyr­ir­tæki að hafa upp­lifað 40 pró­sent tekju­fall. Þessi skil­yrði hafa verið umdeild. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ræddi skil­yrðin í morg­un­út­varp­inu RÚV í vik­unni. „Þetta er allt saman mats­at­riði. Það má alltaf spyrja sig: hvað með fyr­ir­tæki sem hefur séð 37 pró­sent tekju­fall. Það kemst ekki yfir þrösk­uld­inn. Það er ein­fald­lega um mjög vöndu að ráða.“ Stjórn­völd búast við því að allt af helm­ingur af þeim lánum sem þau muni gang­ast í ábyrgðir fyrir muni ekki end­ur­greið­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár