Vilja að betrun fanga hefjist strax frá dómsuppkvaðningu

Starfs­hópur félags­mála­ráð­herra hefur lagt til unnið sé að bata­ferli ein­stak­linga sem hlotið hafa refsi­dóm strax frá upp­kvaðn­ingu dóms, á tíma­bil­inu áður en afplánun refs­ingar hefst, á meðan afplánun varir og einnig eftir að afplánun lýkur.

Litla hraun
Litla hraun Mynd: Birgir Þór Harðarson

Starfs­hópur um mál­efni fanga leggur til tekin verði upp heild­ræn nálgun á betrun fanga sem byggir á virð­ingu og kær­leik sem leiði af sér lægri end­ur­komu­tíðni í fang­elsi. Hópurinn leggur meðal ann­ars til að við upp­haf fanga­vistar verði föngum gert kleift að velja um tvær leiðir, ann­ars vegar bata­leið og hins vegar refsi­leið.

Hópurinn leggur jafn­framt til að þeir sem svo kjósa fái að dvelj­ast allt að tvö ár eftir að afplánun lýkur í svoköll­uðu bata­húsi. Rík­is­stjórnin hefur nú þegar sam­þykkt að til­lögum hóps­ins verði fylgt eftir.

Há endurkomutíðni fanga

Aðstæður fanga í fang­elsum á Íslandi hafa verið mikið í umræð­unni upp á síðkastið, líkt og oft áður, og ýmsar breyt­ingar verið boð­aðar í betr­un­ar­málum af stjórn­völdum. Dómsmála- og heil­brigð­is­ráð­herra sam­þykktu nýlega aðgerð­ar­á­ætlun um aðgerðir í heil­brigð­is­málum í fang­elsum og úræðum vegna vímu­efna­vanda fanga og auknir fjár­munir.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, skrif­aði um þessa ný aðgerða­á­ætlun og betrun fagna í grein Morg­un­blað­inu fyrr í vik­unni. Þar vís­aði hún í rann­sókn sem sýnir að tæp­lega 60 pró­sent fanga í íslenskum fang­elsum glími við vímu­efna­vanda og um sjö­tíu pró­sent eiga sögu um slíkan vanda en sam­kvæmt henni eru lang­flestir glæpir eru framdir undir áhrifum fíkni­efna.

„Ef unnt væri að grípa inn í og koma fólki á beinu braut­ina væri hægt að fækka afbrotum og þar af leið­andi end­ur­komum í fang­elsin,“ skrifar Áslaug Arna og bendir á að um helm­ingur fanga sem afplána í fang­elsum lands­ins hefur áður mátt sæta fang­els­is­vist. [adspot]

Hún segir að end­ur­komur fanga sem í flestum til­vikum ungir karl­menn sé ekki bara vanda­mál þess sem dæmdur er til refsi­vistar heldur sam­fé­lags­ins alls.

„Frels­is­svipt­ing er afar íþyngj­andi aðgerð og henni fylgir mikil ábyrgð. Stjórn­völdum ber að standa undir þeirri ábyrgð og gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að tryggja að raun­veru­leg betrun eigi sér stað í fang­elsum lands­ins. Með aðstoð fag­manna fáum við betra fólk út úr fang­els­unum en gekk þangað inn,“ segir Áslaug Arna.

Heildstæð nálgun nauðsynleg

Félags- og barna­mála­ráð­herra skip­aði starfs­hóp í júní 2018 sem hafði það hlut­verk að koma með til­lögur um hvernig unnt væri að styðja fanga og fyrrum fanga betur til þátt­töku í sam­fé­lag­inu að lok­inni afplánun og draga þar með úr end­ur­komu­tíðni í fang­elsi

Ráðherra skip­aði Þorlák „Tolla“ Morthens, mynd­list­ar­mann for­mann starfs­hóps­ins og hefur hóp­ur­inn nú skilað skýrslu með til­lögum. Í skýrsl­unni segir við grein­ingu starfs­hóps­ins á verk­efnum þeim er honum voru falin kom í ljós að nauð­syn­legt væri að huga að heild­ar­mynd­inni ef árangur ætti að nást.

Hópurinn leggur því til að tekið verði upp sam­fellt verk­lag að bata­ferli frá því að dómur fellur, meðan við­kom­andi ein­stak­lingur bíður afplán­unar, á meðan á afplánun stendur og að lok­inni afplánun. Þá muni einn aðili halda utan um mál ein­stak­lings í gegnum allt ferlið, til að mynda full­trúi frá félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga.

Fjölbreyttari úrræði í boði strax frá dómskvaðningu

Í skýrsl­unni er fjallað um hve stór hluti fanga glími við geð­heil­brigð­is­vanda og/eða fíkni­vanda. Starfs­hóp­ur­inn bendir á að hætta sé á því að föngum, sem glíma við geð­ræna erf­ið­leika, versni á meðan á fang­els­is­vist stendur sé ekk­ert að gert og litlar líkur eru á því að þeim gangi vel að aðlag­ast sam­fé­lag­inu að lok­inni afplánun.

Í ljósi þess sé því til mik­ils að vinna fyrir sam­fé­lagið í heild að unnið verði mark­visst með geð­heil­brigði ein­stak­lings­ins strax frá fyrstu stigum. Jafn­framt hafi rann­sóknir bent til þess að með­ferð við fíkni­vanda, sem hefst á meðan refsi­vist stendur og er fylgt eftir að afplánun lok­inni dragi úr fíkni­efna­neyslu og líkum á því að við­kom­andi brjóti aftur af sér.

Því leggur starfs­hóp­ur­inn til ein­stak­linga sem hljóta refsi­dóma hér á landi verði orðin fjöl­breytt­ari og ein­stak­lings­mið­aðri úrræði en nú standa til boða. Meg­in­á­hersla verði lögð á menntun, starfsend­ur­hæf­ingu, sál­fræði­þjón­ustu, félags­ráð­gjöf og í þeim til­vikum sem það á við, fíkni­ráð­gjöf. Sérstök áhersla er lögð á sveigj­an­leika og að boðið sé upp á að ganga inn í úrræði á hvaða stigi sem er. Auk þess sem þeim sem hætti ástundun ætti ávallt að standa til boða að hefja ástundun að nýju.

Batahús verði sett á fót

Hvað varðar eft­ir­fylgd að fang­els­is­vist lok­inni hefur starfs­hóp­ur­inn horft til sam­bæri­legs úrræðis í Englandi, þar sem sjálfs­eign­ar­stofn­unin „Forward Trust“ hefur náð góðum árangri og náð að draga úr end­ur­komum í fang­elsi og styrkja félags­lega stöðu þeirra sem lokið hafa refsi­vist.

Byggir skipu­lag úrræð­is­ins á því að þeir sem svo kjósa fái að dvelj­ast allt að tvö ár eftir að afplánun lýkur í svoköll­uðu bata­húsi, þar sem áfram verði unnið með sjálfs­efl­ingu ein­stak­lings­ins og aðlögun hans að sam­fé­lag­inu að nýju. Starfs­hóp­ur­inn telur að heppi­legt væri ef rekstur slíks bata­húss hér á landi væri í höndum sjálfs­eign­ar­stofn­unar eða líkn­ar­fé­lags og að það væri stað­sett í íbúð­ar­hverfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna nálægðar við þjón­ustu, menntun og vinnu.

Líkt og áður segir þá hefur rík­is­stjórnin sam­þykkt að settur verði á fót stýri­hópur undir for­mennsku félags­mála­ráðu­neyt­is­ins með breiða skírskotun sem falið verði að fylgja eftir til­lögum skýrsl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár