Tæpur helmingur andvígur aðild að ESB

Stuðn­ings­menn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks skera sig úr miðað við stuðn­ings­menn ann­ara flokka.

Íslendingar eru andvígir aðild Íslands að ESB, miðað við könnun MMR.
Íslend­ingar eru and­vígir aðild Íslands að ESB, miðað við könnun MMR.

Fleiri eru and­vígir inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið en hlynntir því, ef marka má nýlega könnun MMR. 47,9 pró­sent svar­enda sögð­ust vera and­vígir aðild að ESB en 29,0 pró­sent svar­enda könn­un­ar­innar sögð­ust hlynnt inn­göngu.

Flestir þátt­tak­endur í könn­un­inni sögð­ust vera „mjög and­víg(ur)“ aðild að ESB, eða 31,7 pró­sent. Næst flestir sögð­ust hvorki vera hlynnt eða and­víg aðild.

MMR greinir frá nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar á vefnum MMR.is. Þar segir að litlar breyt­ingar hafi orðið á afstöðu almenn­ings gagn­vart inn­göngu Íslands í ESB á und­an­förnum þremur árum. Þær breyt­ingar hafa hins vegar orðið að þeir sem segj­ast vera and­vígir eru færri en á seinni hluta árs­ins 2012, þegar and­staða við aðild Íslands að sam­band­inu var sem mest. Andvígum hefur fækkað um rúm­lega 10 pró­sentu­stig á tíma­bil­inu 2012-2017. Á sama tíma hefur þeim sem hlynntir eru inn­göngu fjölgað um 5 til 10 pró­sentu­stig.

[adspot]

Stjórnmálaflokkarnir pólaðir

Stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins skera sig út ef litið er til afstöðu til aðildar miðað við stuðn­ing við stjórn­mála­flokka. Þeir sem eru hlynntir aðild að ESB eru í meiri­hluta innan allra stjórn­mála­flokka nema í þessum tveimur flokkum. Þar eru lang flestir and­vígir.

Kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar eru hlynnt­astir aðild að ESB. 77,3 pró­sent þeirra sem styðja Sam­fylk­ing­una vilja ganga í ESB. Stuðn­ings­menn Við­reisnar eru næstir; 57,0 pró­sent stuðn­ings­mann­anna vilja aðild að ESB.

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins eru hins vegar alveg hinu megin og vilja lang flestir stuðn­ings­manna þeirra flokka ekki ganga í ESB. 89,2 pró­sent fram­sókn­ar­manna segj­ast vera and­vígir og 78,1 pró­sent sjálf­stæð­is­manna.

Þá eru þau sem styðja ekki rík­is­stjórn­ina lík­legri til þess að vera hlynnt aðild að ESB en þau sem styðja hana.

Könnunin var gerð á dög­unum 15. til 21. júní síð­ast­lið­inn og svör­uðu 1.017 ein­stak­lingar af spurn­inga­vagni MMR. Úrtakið var valið handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR.

Nið­ur­stöð­urnar könn­un­ar­innar má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár