Rannsóknum hætt á hluta Drekasvæðisins

Ekki þykir ástæða til þess að halda áfram rann­sóknum á hluta Dreka­svæð­is­ins, og hafa sér­leyf­is­hafar þar því gefið eftir sér­leyfi sitt til rann­sókna á svæð­inu. Orku­stofnun hefur sam­þykkt að leyfið sé gefið eftir.

Um er að ræða minna sér­leyfið til rann­sókna á olíu og gasi á Dreka­svæð­inu, sem er í íslenskri lög­sögu. Það var kanadíska fyr­ir­tækið Ithaca Petr­o­leum ehf. sem fékk sér­leyfið ásamt sam­starfs­að­il­unum Kolvetni ehf og Petoro Iceland ehf. Leyfið var gefið út fyrir fjórum árum síðan. Ákvörðun um fram­hald leyf­is­ins varð að taka nú í jan­úar sam­kvæmt samn­ingum.

Í til­kynn­ingu frá Orku­stofnun kemur fram að safnað hafi verið 1.000 kíló­metrum af end­ur­kasts­gögnum á svæð­inu síð­ast­liðið sumar, en túlkun gagn­anna hafi leitt í ljós að ekki væri ástæða til að halda áfram rann­sóknum. „Jarð­fræði­rann­sóknir byggðar á nýju end­ur­kasts­gögn­unum benda til þess að líkur á að finna olíu og/eða gas á afmörk­uðu svæði sér­leyf­is­svæðis sem rann­sakað var, gefi ekki til­efni til að takast á við næsta áfanga rann­sókn­ar­á­ætl­unar sér­leyf­is­ins. Nið­ur­stöður túlk­unar Ithaca Petr­o­leum á gögn­unum leiðir líkur að því að á svæði sem leyf­is­haf­arnir töldu fýsi­legt, væri móð­ur­berg kol­vetna á dýpri jarð­lögum en fyrstu vís­bend­ingar gáfu til kynna,“ segir í til­kynn­ingu Orku­stofn­unar.

Orku­stofnun segir að jarð­fræði­að­stæður á þessu leyf­is­svæði séu gjör­ó­líkar aðstæð­unum á hinu leyf­is­svæð­inu sem enn er rann­sakað. Það er stærra svæði og er CNOOC International rekstr­ar­að­il­inn þar. Rann­sóknir á því svæði halda að minnsta kosti áfram í ár í við­bót.

Orku­stofnun veitti þrjú sér­leyfi til að rann­saka og vinna kol­vetni á Dreka­svæð­inu árin 2013 og 2014. Nú hefur tveimur af þremur sér­leyfum verið skilað inn til Orku­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár