Samfylkingin í tveggja stafa tölu

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist nú 10 pró­sent í nýrri könnun MMR. Þetta er í fyrsta sinn síðan í júlí í fyrra sem flokk­ur­inn nær tveggja stafa tölu. Ekki eru miklar breyt­ingar á fylgi ann­arra flokka.

Tveir af þremur þingmönnum Samfylkingarinnar, Oddný Harðardóttir og Logi Einarsson.
Tveir af þremur þing­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar, Oddný Harð­ar­dóttir og Logi Ein­ars­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist nú 10 pró­sent, sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Í síð­ustu könnun mæld­ist fylgið 7,8 pró­sent, en flokk­ur­inn fékk 5,7 pró­senta fylgi í kosn­ing­unum í októ­ber síð­ast­liðnum. Þetta er í fyrsta skipti frá því um mitt síð­asta ár sem Sam­fylk­ingin mælist með fylgi sem nær tveimur tölu­stöfum.

Litlar breyt­ingar eru á fylgi við aðra stjórn­mála­flokka. Vinstri græn mæl­ast stærsti flokkur lands­ins líkt og í síð­ustu könnun, með 27 pró­sent fylgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 24,4 pró­sent fylgi, sem er hækkun um 0,6 pró­sentu­stig frá síð­ustu mæl­ingu. Fylgi Pírata mælist 11,9%, sem er 1,7% minna en í síð­ustu könnun. Fylgi við Fram­sókn­ar­flokk­inn er 10,7% en var 9,7 í síð­ustu könnun.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir Viðreisn og Björt fram­tíð mæl­ast með 6,2 og 6,4 pró­sent, en mæld­ust með 5,6 og 5,3 pró­sent í síð­ustu könnun. Flokkur fólks­ins mælist með 2,6 pró­senta fylgi, en aðrir flokkar með minna en eitt pró­sent.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist 2,3 pró­sentu­stigum meiri nú en í síð­ustu könnun, og er 34,9 pró­sent.

Könnun MMR var gerð dag­ana 1. til 5. febr­úar og svar­fjöldi var 904 ein­stak­lingar. Vikmörk eru allt að 3,1 pró­sent, sem þýðir að lík­lega sé raun­veru­legt fylgi ein­hvers staðar á bili sem er 3,1% hærra eða lægra en fram kemur í könn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár