Það helsta hingað til: Samið um vopnahlé í stéttastríði

Kjarninn tók saman helstu frétta­mál íslensks sam­fé­lags á fyrstu mán­uðum árs­ins 2019. Ein stærsta frétt árs­ins voru harðar kjara­deilur og for­dæma­lausir samn­ingar sem und­ir­rit­aðir voru 3. apríl.

Ritað undir kjarasamninganna 3. apríl 2019.
Ritað undir kjara­samn­ing­anna 3. apríl 2019. Mynd: ASÍ

Hvað?

Síðustu mán­uði stóðu yfir ein­hverjar við­kvæm­ustu kjara­við­ræður sem átt hafa sér stað í ára­tugi á Íslandi. Í kröfu­gerðum, sem félags­menn stærstu verka­lýðs­fé­laga lands­ins sam­þykktu, var til að mynda farið fram á að lág­marks­laun yrði hækkuð úr 300 þús­und krónum í 425 þús­und krónur á nokkrum árum.

[links]Ef verka­lýðs­hreyf­ingin átti að víkja frá þessum kröfum þá þyrftu stjórn­völd að koma að borð­inu með til­lögur sem myndu skila skjól­stæð­ingum hennar nægi­legum kjara­bótum.

Með öðrum orðum yrði ríkið að borga fyrir uppi­stöðu kjara­bóta launa­fólks, ekki atvinnu­lífið. Það þyrfti ríkið að gera með skatt­kerf­is­breyt­ingum sem áttu að færa skatt­byrði af lág- og milli­tekju­hópum og auka jöfn­un­ar­hlut­verk skatt­kerf­is­ins, meðal ann­ars með auknum milli­færslum í gegnum bóta­kerfi. Að end­ingu var farið fram á sér­tækar aðgerðir til að rétta hlut þeirra sem hafa farið hall­oka á hús­næð­is­mark­aði á síð­ustu árum.

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, ræddi þessa stöðu meðal ann­ars í þætt­inum 21 á Hring­braut í byrjun febr­úar, þegar við­ræð­urnar voru á mjög við­kvæmum tíma­punkti.

Ný for­ysta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar var mun her­skárri í yfir­lýs­ingum en margir fyr­ir­renn­arar hennar. Það átti sér­stak­lega við for­menn tveggja stærstu stétt­ar­fé­laga lands­ins, Ragnar Þór Ing­ólfs­son hjá VR og Sólveigu Önnu Jóns­dóttur hjá Eflingu. Verkföll lágu í loft­inu, sér­stak­lega eftir að stjórn­völd kynntu aðgerð­ar­pakka í skatta­málum sem mælt­ist ekki vel fyrir fyrr á þessu ári. Þá lá fyrir að ótrú­legar launa­hækk­anir æðstu emb­ætt­is­manna og kjör­inna full­trúa, ásamt hækk­unum hjá for­stjórum rík­is­fyr­ir­tækja, voru sem hand­sprengjur inn í þegar flóknar við­ræður.

Það var stuðn­ingur við verk­föll í sam­fé­lag­inu. Í könnun sem gerð var í nóv­em­ber 2018 kom fram að nærri þrír af hverjum fjórum Íslend­ing­um, 74 pró­sent, sögðu það rétt­læt­an­legt að ákveðn­ar ­starfs­stétt­ir myndu beita verk­falli næstu miss­erin til að ýta eftir bættum starfs­kjör­um.

Verkföll, sem aðal­lega var beint gegn völdum greinum innan ferða­þjón­ustu, hófust svo í mars. Frekari aðgerðum var frestað undir lok þess mán­aðar, aðal­lega vegna þess að WOW air varð gjald­þrota. Það breytti takt­inum í kjara­við­ræðum.

Af hverju?

Þrátt fyrir efna­hags­legt góð­æri á Íslandi á und­an­förnum árum eru stórir hópar í sam­fé­lag­inu sem telja sig hafa verið skilda eftir, og þeir gátu vísað í hag­tölur því til stuðn­ings.

[adspot]Það er til að mynda stað­reynd að skatt­byrði tekju­lægstu hópa íslensks sam­fé­lags hefur auk­ist meira en ann­arra hópa frá árinu 1998. Það er stað­reynd að fjöl­skyldum sem fengu barna­bætur á Íslandi fækk­­­aði um tæp­­­lega tólf þús­und milli áranna 2013 og 2016. Það er því stað­reynd að dregið hefur úr tekju­jöfn­un­ar­hlut­verki skatt­kerf­is­ins og rík­is­sjóðs sem hefur gert það að verkum að hin mikla kaup­mátt­ar­aukn­ing sem átt hefur sér stað á und­an­förnum árum hefur síður skilað sér til lægri tekju­hópa.

Til við­bótar hefur þróun hús­næð­is­mark­aðar gert þessu sama fólki lífið mun erf­ið­ara fyrir, meðal ann­ars vegna póli­tískra ákvarð­ana, t.d. um fram­kvæmd Leið­rétt­ing­ar­innar, sem ákváðu að færa fjár­muni í hendur eig­enda fast­eigna í stað þess að hjálpa þeim sem voru við­kvæm­astir á hús­næð­is­mark­aði.

Sam­hliða því að rík­is­sjóður var að gefa þessum hópi pen­inga bötn­uðu vaxta­kjör gríð­ar­lega, verð­bólga var sögu­lega lág í mörg ár og ruðn­ings­á­hrif af ferða­þjón­ustu tvö­fald­aði fast­eigna­verð. Eigna­fólk­ið, bæði stór­eigna­fólkið í fjár­magns­eigna­stétt­inni sem á millj­arða, og stór hluti milli­stétt­ar­inn­ar, hagn­að­ist mjög á þessu ástandi. Kaup­máttur þessa fólks jókst og lífs­kjör þess bötn­uðu.

að sama var ekki uppi á ten­ingnum hjá stórum lág­tekju­hópum eða þeim sem höfðu ekki aðgengi að fé fyrir útborgun til að kom­ast inn á eigna­markað. Birt­ing­ar­myndir þess ástands voru nokkr­ar. Til dæmis hafði leig­u­verð íbúð­­­ar­hús­næðis á höf­uð­­­borg­­­ar­­­svæð­inu tvö­­fald­­ast á rúm­lega átta árum. Á síð­­­­­ustu tveimur árum hafði það hækkað um meira en 30 pró­­­sent. Í könnun sem gerð var fyrir Íbúða­lána­­­sjóð í fyrra kom fram að þriðji hver leigj­andi borgi meira en helm­ing af ráð­­­stöf­un­­­ar­­­tekjum sínum í leigu og fáir þeirra geta safnað sér sparifé vegna hás leigu­kostn­aðar. Ein­ungis 14 pró­­­sent þeirra sem eru á leig­u­­­mark­aði vilja vera þar.

Afleið­ingin varð eitt skýrasta stétta­stríð sem geysað hefur á Íslandi lengi.

Hver var niðurstaðan?

WOW air fór á haus­inn, um 1.500 manns misstu vinn­una og ákveðið var að sýna ábyrgð og semja fyrir rúm­lega helm­ing íslensks vinnu­mark­aðar, um 110 þús­und manns, á for­sendum hinna svoköll­uðu lífs­kjara­samn­inga. Til þess að hægt yrði að semja um hóf­legar launa­hækk­anir þurfti þó til stór­aukna aðkomu stjórn­valda. Aðgerðir þeirra voru lyk­il­at­riði í því að hægt var að ganga frá samn­ingum til þriggja ára og átta mán­aða sem í fel­ast þau tíð­indi krónu­tölu­launa­hækk­anir sem þar sem flestar krónur fara til lægst laun­að­asta fólks­ins. Með því að hafa launa­hækk­anir í krónu­tölum en ekki hlut­falls­tölum er tryggt að þeir sem hafi hæstu launin hækki ekki um fleiri krónur en þeir sem eru með þau lægstu.

[adspot]Á árunum 2020 til 2023 getur auk þess komið til fram­kvæmda launa­auki ef hag­vöxtur verður hér­lend­is. Þetta er gert til að tryggja launa­fólki hlut­deild í verð­mæta­sköpun sam­fé­lags­ins.

Þrjár meg­in­for­sendur eru fyrir því að kjara­samn­ing­arnir haldi. Í fyrsta lagi að það verði hag­vöxtur, í öðru lagi að Seðla­banki Íslands lækki vexti (hann þarf m.a. að lækka stýri­vexti um 0,75 pró­sentu­stig fyrir haustið 2020 til að halda samn­ing­unum við) og í þriðja lagi verða stjórn­völd að standa við að fram­kvæma þann pakka sem þau komu með að borð­inu til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga.

Stjórn­völd lof­uðu því að ráð­ast í alls 42 aðgerðir til að liðka fyrir kjara­samn­ing­um. Ríkið metur heild­ar­um­fang aðgerð­anna á 80 millj­arða króna.

Sumar aðgerð­irnar voru þegar fram komn­ar, eins og leng­ing fæð­ing­ar­or­lofs í 12 mán­uði, aðrar höfðu verið lagðar fram áður, eins og upp­bygg­ing í Keldna­landi, heim­ildir til að ráð­stafa 3,5 pró­sent líf­eyr­is­ið­gjalds skatt­frjálst til hús­næð­is­kaupa og áfram­hald­andi nýt­ing sér­eign­ar­sparn­aðar til að greiða skatt­frjálst niður íbúða­lán, en það úrræði verður fram­lengt fram á mitt ár 2021.

Það var einnig margt nýtt í pakka stjórn­valda. Það á að gera breyt­ingar á tekju­skatts­kerf­inu með því að bæta við þriðja skatt­þrep­inu sem tryggja m.a. lægstu launa­hóp­unum tíu þús­und króna skatta­lækkun á mán­uði. Þá verða barna­bætur hækk­aðar og skerð­ing­ar­mörk þeirra fara úr 242 þús­und krónum í 325 þús­und krónur á mán­uði. Ráð­ast á í fjöl­margar aðgerðir í hús­næð­is­mál­um, halda aftur af öllum gjald­skrár­hækk­unum og ráð­ast í mark­vissar aðgerðir til að draga úr félags­legum und­ir­boð­um.

Á meðal þess sem stjórn­völd hafa skuld­bundið sig til að gera er að banna 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán frá byrjun næsta árs. Þá á að grund­valla verð­trygg­ingu við vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næð­isliðar frá og með árinu 2020. Í stað­inn er verið að skoða nýjar teg­undir lána fyrir þá sem eiga erf­ið­ast með að finna sér fjár­mögnun fyrir hús­næð­is­kaupum. Helstu mögu­leik­arnir þar eru svokölluð „start­lán“ eða „eig­in­fjár­lán“, en þau síð­ar­nefndu fela í sér að ríkið fjár­festi í íbúðum með fólki sem upp­fyllir skil­yrði fyrir töku þeirra.

Sem stendur er verið að kjósa um kjara­samn­ing­anna og nið­ur­stöður þeirra kosn­inga munu liggja fyrir á næstu dögum. Nýleg ákvörðun nokk­urra fram­leiðslu- og inn­flutn­ings­fyr­ir­tækja að til­kynna um hækk­anir á vöru­verði hafa þó vakið upp úlfúð á meðal verka­lýðs­for­yst­unnar, sem telur að þar sé verið að velta kjara­bót­unum sem hún sótti út í verð­lagið. Þar með sé verka­lýð­ur­inn að greiða fyrir eigin kjara­bætur með hærra vöru­verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár