Minnir á rétt lækna til að skorast undan störfum í ljósi nýrra laga um þungunarrof

Dögg Páls­dóttir, lög­fræð­ingur Lækna­fé­lags Íslands og fyrr­ver­andi vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir það mik­il­vægt að læknar og aðrir heil­brigð­is­starfs­menn þekki rétt sinn, gagn­vart fram­kvæmd þung­un­ar­rofs, til fylgja sam­visku sinni og sann­fær­ingu.

Dögg Pálsdóttir, lögmaður Læknafélags Íslands.
Dögg Páls­dóttir, lög­maður Lækna­fé­lags Íslands.

Dögg Páls­dóttir, lög­maður Lækna­fé­lags Íslands og fyrr­ver­andi vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að það sé mik­il­vægt að læknar og aðrir heil­brigð­is­starfs­menn þekki vel rétt sinn þung­urn­ar­rofs til að fylgja sam­visku sinni og sann­fær­ingu þegar kemur að fram­kvæmd þung­un­ar­rofs.

Hún segir að þó að frum­varpið um þung­un­ar­rof hafi verið sam­þykkt á Alþingi þá séu enn skiptar skoð­anir í sam­fé­lag­inu um að lög­festa skil­yrð­is­lausan rétt konu til að rjúfa þungun fram að lokum 22. viku. Þetta kemur fram í pistli Daggar í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins.

Ýmsum þykir þær breytingar hafa þurft meiri almenna umræðu

Í pistl­inum fjallar Dögg um nýlega sam­þykkt lög um þung­un­ar­rof. Helstu nýmæli í lög­unum eru þau að konu er nú veitt fullt ákvörð­un­ar­vald um það hvort hún elur barn fram að lokum 22. viku þung­unar, óháð því hvaða ástæður liggja að baki þeim vilja hennar.

Dögg segir að þó að frum­varpið um þung­un­ar­rof hafi verið sam­þykkt af meiri­hluta Alþingis séu enn skiptar skoð­anir í sam­fé­lag­inu um að lög­festa skil­yrð­is­lausan rétt konu til að rjúfa þungun fram að lokum 22. viku. „Ýmsum þykir að þær breyt­ingar sem í hinum nýju lögum fel­ast hefðu þurft meiri almenna umræðu, ekki síst um það hvenær líta eigi svo á að fóstrið eigi sjálf­stæðan rétt til lífs,“ skrifar Dögg.

Hún bendir á að í umsögn Sið­fræði­stofn­unar þar sem fram kemur að stofnun telji það vara­samt að heim­ilda þung­un­ar­rof allt að 22. viku því þá geti fóstur orðið „líf­væn­legt utan fóstur lík­ama móður“. Auk þess nefnir hún að hvergi á Norð­ur­lönd­unum sé svo rúmur frestur til þung­un­ar­rofs.

Fæðing barns í öllum tilvikum hættulegri en þungunarrof

Þá segir í pistl­inum að við umfjöllun vel­ferð­ar­nefndar um þung­ur­rofs­frum­varpið hafi komið fram sú spurn­ing um hver staða heil­brigð­is­starfs­manns væri þegar kona óskar eftir þung­un­ar­rofi þrátt fyrir ráð­legg­ingar læknis um annað eða þegar fram­kvæmd þung­un­ar­rofs stang­ast á við trú­ar­leg eða sið­ferði­leg við­horf hans.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta vel­ferð­ar­nefndar er bent á 14. grein laga um heil­brigð­is­starfs­menn. Þar segir að að heil­brigð­is­starfs­manni sé heim­ilt að skor­ast undan störfum sem stang­ast á við trú­ar­leg eða sið­ferði­leg við­horf hans, enda sé tryggt að sjúk­lingur fái nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu. Þá segir í álit­inu að í umræðu nefnd­ar­innar hafi verið bent á að fæð­ing barns væri í öllum til­vikum hættu­legri en þung­un­ar­rof og því væru rök heil­brigð­is­starfs­manns fyrir því að víkj­ast undan því að fram­kvæma þung­un­ar­rof með vísan til þess að lífi konu væri stefnt í hættu afar tak­mörkuð.

Meiri hlut­inn tekur undir þetta sjón­ar­mið en bendir þó á að erfitt geti verið að skikka heil­brigð­is­starfs­mann til þess að veita þjón­ustu sem stang­ast á við trú­ar­leg eða sið­ferði­leg við­horf hans. Því ákvað meiri­hlut­inn að leggja fram breyt­ing­ar­til­lögu þess efnis að bætt yrði við nýrri máls­grein við 4. grein lag­anna um það að skorist heil­brigð­is­starfs­maður undan skyldu sinni skuli réttur kon­unnar eigi síður tryggður.

Í grein Daggar segir að ekki sé nánar skýrt hvorki í nefnd­ar­á­liti né fram­sögu­ræðu fram­sögu­manns vel­ferð­ar­nefndar með hvaða hætti það skuli gert. „Líklega er því treyst að á hverjum tíma séu starf­andi heil­brigð­is­starfs­menn sem fyr­ir­vara­laust eru til­búnir til að fram­kvæma þung­un­ar­rof án til­lits til ástæðna fyrir þung­un­ar­rofi og jafn­vel þó komið sé að lokum 22. viku með­göngu.“ segir í grein­inni.

Viðurkennt að læknar geti skorast undan að framkvæma aðgerð af trúarlegum eða siðferðislegum ástæðum

Í pistli Daggar er jafn­framt fjallað um að lækna­lögin frá 1988 en í athuga­semdum með frum­varp­inu, því sem varð að lækna­lög­unum frá 1988, kemur fram að mik­il­vægt sé að velta fyrir sér spurn­ing­unni um það hvort og í hvaða til­vikum lækni sé heim­ilt að skor­ast undan að fram­kvæma aðgerð.

„Fara beri mjög var­lega í skýr­ingar en almennt sé við­ur­kennt, þó það styðj­ist ekki við ótví­ræðan laga­bók­staf, að læknar geti aldrei skor­ast undan að fram­kvæma aðgerð sé um að ræða aðgerð í lækn­inga­skyni. Það sé hins vegar við­ur­kennt að læknar geti skor­ast undan að fram­kvæma aðgerð af trú­ar­legum eða sið­ferð­is­legum ástæðum sé mark­mið aðgerð­ar­innar ekki lækn­ing í þröngri merk­ingu þess orðs, t.d. ófrjó­sem­is­að­gerð eða fóst­ur­eyð­ing af félags­legum ástæðum.“ Þá segir í pistl­inum að frá því að þessi heim­ild hafi verið lög­fest í lækna­lög­unum frá 1988 þá hafi hún verið talin gilda um allar lög­giltar heil­brigð­is­stéttir.

Auk þess segir í grein­inni að í Codex Ethicus Lækna­fé­lags Íslands segir að það sé meg­in­regla að lækni sé frjálst að hlýða sam­visku sinni og sann­fær­ingu. „Hann getur, ef lög og úrskurðir bjóða ekki annað, synjað að fram­kvæma lækn­is­verk, sem hann treystir sér ekki til að gera eða bera ábyrgð á eða hann telur ástæðu­laust eða óþarft.“ Dögg ítrekar að nefnd­ar­á­lit meiri­hluta vel­ferð­ar­nefndar um að fæð­ing sé í öllum til­fellum hættu meiri en þung­un­ar­rof breyti þar engum um.

Að lokum bendir Dögg á að lög um þung­una­rof öðlist gildi 1. sept­em­ber næst­kom­andi og ítrekar því mik­il­vægi þess að heil­brigð­is­starfs­menn þekki rétt sinn gagn­vart fram­kvæmdum þung­un­ar­rofs. „Lög um þung­un­ar­rof öðl­ast gildi 1. sept­em­ber nk. Það er því mik­il­vægt að læknar og aðrir heil­brigð­is­starfs­menn þekki vel rétt sinn gagn­vart fram­kvæmd þung­un­ar­rofs til að fylgja sam­visku sinni og sann­fær­ingu,“ segir Dögg.

Meiri­hluti þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins greiddi atkvæði gegn þung­un­ar­rofs­frum­varp­inu

[links]Þung­un­ar­rofs­frum­varpið var sam­þykkt í maí síð­ast­liðnum með 40 at­kvæðum gegn 18 en þrír greiddu ekki at­kvæði. Meiri­hluti þing­flokks Sjálf­stæðis­flokks­ins greiddi at­kvæði gegn þung­un­ar­rofs­frum­varp­inu, alls átta, tveir sátu hjá og fjórir sögðu já. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra var á meðal þeirra sem greiddi atkvæði gegn frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár