Reikna með 1.000 greindum smitum fyrir lok maí

Spálíkan vís­inda­manna frá Háskóla Íslands, emb­ætti land­læknis og Land­spít­ala hefur verið birt opin­ber­lega. Reiknað er með því að 1.000 smit verði greind hér á landi fyrir lok maí, en svart­sýn­asta spá gerir þó ráð fyrir tvö­falt fleiri smitum.

Landspítali. Reikna má með því að álagið á heilbrigðiskerfið verði mest um eða eftir miðjan apríl.
Land­spít­ali. Reikna má með því að álagið á heil­brigð­is­kerfið verði mest um eða eftir miðjan apríl. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Samkvæmt spálík­ani sem vís­inda­menn frá Háskóla Íslands, emb­ætti land­læknis og Land­spít­ala hafa gert, um lík­lega þróun COVID-19 far­ald­urs­ins á Íslandi, má búast við því að fyrir lok maí­mán­aðar hafi um 1.000 manns á Íslandi greinst með COVID-19. Svart­sýn­ustu spár gera ráð fyrir því að fjöldi greindra smita gæti þó orðið yfir 2.000 tals­ins á þeim tíma­punkti.

Sótt­varna­læknir kall­aði vís­inda­menn­ina saman til þess að vinna spálíkanið, en því er ætlað að nýt­ast við ákvarð­ana­töku um við­brögð og skipu­lag heil­brigð­is­þjón­ustu. Fyrstu nið­ur­stöður þess voru kynntar á upp­lýs­inga­fundi með yfir­völdum í gær, en líkanið hefur nú verið birt opin­ber­lega á vefnum covid.hi.is og verður upp­fært reglu­lega.

Alma Möller land­læknir sagði í sér­stökum umræðu­þætti um far­ald­ur­inn á RÚV í gær­kvöldi að far­ald­ur­inn myndi senni­lega ná hámarki í kringum 10. apríl næst­kom­andi. Á þeim tíma, verður fjöldi greindra ein­stak­linga með virkan sjúk­dóm senni­lega um 600 manns, en gæti þó náð 1.200 manns miðað við svart­sýn­ustu spá.

Þá er búist við því að á meðan far­ald­ur­inn gengur yfir hér­lendis þurfi að leggja um 60 sjúk­linga inn á spít­ala, en svart­sýn­asta spá gerir þó ráð fyrir að sá fjöldi verði meira en þrefalt hærri, eða rúm­lega 200 manns. Búist er við að álag á heil­brigð­is­kerfið verði mest um eða eftir miðjan apríl.

Samkvæmt spálík­an­inu er búist við því að um 11 manns veik­ist alvar­lega og þarfn­ist aðhlynn­ingar á gjör­gæslu, en svart­sýn­asta spá gerir þó ráð fyrir því að 50 manns gætu þurft að leggj­ast inn á gjör­gæslu.

„Grein­ing­ar­vinnan mun halda áfram og spálíkanið verður upp­fært reglu­lega með nýjum upp­lýs­ingum. Hafa ber í huga að vegna fámennis geta töl­urnar um fjölda greindra til­fella breyst mikið frá degi til dags sem hefur áhrif á nið­ur­stöður spálík­ans­ins. Líkanið verður þó stöðugra eftir því sem á líður,“ segir í þessum fyrstu nið­ur­stöðum vís­inda­mann­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár