Trúa að rödd þeirra geti haft áhrif

Tveir full­trúar frá ung­menna­ráði heims­marksmið­anna munu ávarpa ráð­herra­fund um heims­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York á morgun.

Kristbjörg Mekkín Helgadóttir og Sigurður Einarsson Mäntylä flytja ávörp á ráðherrafundi um heimsmarkmiðin á morgun.
Krist­björg Mekkín Helga­dóttir og Sigurður Ein­ars­son Mäntylä flytja ávörp á ráð­herra­fundi um heims­mark­miðin á morgun. Mynd: Stjórnarráð Íslands

Ísland kynnir á morgun stöðu inn­leið­ingar heims­mark­miða Sam­ein­uðu þjóð­anna um sjálf­bæra þróun á árlegum ráð­herra­fundi í New York. Auk for­sæt­is­ráð­herra ávarpa tveir full­trúar frá ung­menna­ráði heims­marksmið­anna fund­inn, þau Krist­björg Mekkín Helga­dóttir og Sigurður Einn­ar­son Mäntylä. Ung­menna­ráð heims­mark­mið­anna var sett á fót af stjórn­völdum til að virkja ung­menni lands­ins og vekja athygli á heims­mark­mið­unum og sjálfbærri þróun,

Ráðafólki ber skylda að hlusta á það sem þau hafa að segja

Í júní skil­uðu stjórn­völd Sam­ein­uðu þjóð­unum fyrstu land­rýn­is­skýrsl­unni um stöðu Íslands gagn­vart heims­mark­mið­unum. Í skýrsl­unni er fjallað um inn­leið­ingu íslenskra stjórn­valda á heims­mark­mið­unum á inn­lendum og erlendum vett­vangi.

„Samþykkt heims­mark­mið­anna árið 2015 mark­aði mikil tímamót en ríki heims hafa aldrei áður sett sér jafn víðtæk, sam­eig­in­leg mark­mið. Ísland tók virkan þátt í samn­inga­við­ræð­unum um heims­mark­miðin og lagði áherslu á end­urnýjan­lega orku, stöðvun land­eyð­ingar, sjálfbæra nýtingu og verndun hafs­ins, jafnrétti kynj­anna og fram­farir í lækn­ingu sjúkdóma og skaða á tauga­kerf­inu,“ segir í skýrsl­unni

Í skýrsl­unni er lögð sérstök áhersla á börn, kynslóðina sem mun taka við eftir að gild­istími heims­mark­mið­anna hefur runnið sitt skeið. „Víða um heim, þar á meðal á Íslandi, hafa börn og ung­menni und­an­farið mótmælt aðgerða­leysi stjórnvalda í lofts­lagsmálum. Þessi sam­staða er sterk vísbend­ing um að börn beri ugg í brjósti yfir þeim veru­leika sem fyrri kynslóðir hafa skapað framtíðinni og ráðafólki ber skylda til að hlusta á það sem þau hafa að segja,“ segir í skýrsl­unni.

Tólf fulltrúar á aldrinum 13 til 18 ára

Í ljósi þess að í barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóðanna sé kveðið skýrt á um rétt barna til að láta skoð­anir sínar í ljós og til að hafa áhrif á málefni er þau varða þá ákváðu stjórn­völd að virkja þátttöku ung­menna á Íslandi í gegnum ung­menn­aráð heims­mark­miða Sam­ein­uðu þjóðanna. Í skýrsl­unni segir að meg­in­mark­mið ung­menna­ráðs­ins sé að vekja athygli á heims­mark­mið­unum og sjálf­bærri þróun, bæði á meðal ung­menna og innan sam­fé­lags­ins í heild.

Ung­menna­ráðið sam­anstendur af tólf full­trúum, víðs vegar af land­inu, á ald­urs­bil­inu 13 til 18 ára. Ung­menna­ráðið fundar árlega með rík­is­stjórn­inni en ung­menna­ráðið afhenti rík­is­stjórn­inni fyrstu yfir­lýs­ingu ráðs­ins í mars síð­ast­liðnum.

Vilja að framgang frekari stóriðju verði stöðvað tafarlaust

Í yfir­lýs­ing­unni er vitnað í skýrslu milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna sem kom út í októ­ber 2018 en þar kemur fram að heim­ur­inn hafi til árs­ins 2030 til að fram­kvæma „for­dæma­lausar aðgerðir“ til að halda með­al­hita jarðar í skefjum. Auk þess segir í skýrsl­unni að ung­menni séu stór hluti af lausn­inni enda þurfi að virkja allt sam­fé­lagið.

„Við erum mjög þakklát fyrir þau tæki­færi sem við höfum fengið en okkur finnst þó að fleiri ættu að fá tæki­færi sem þessi að eiga í beinum sam­skiptum við stjórnvöld. Það verður verk­efni okkar að takast á við afleið­ingar þeirra ákvarð­ana sem teknar eru í dag. Þess vegna er mik­il­vægt að við fáum rödd meðal þeirra sem eru að móta samfélög okkar og löggjöfina sem okkur er gert að búa við. Nauð­syn­legt er þó að gleyma ekki að þið hafið valdið og von­andi vilj­ann til breyt­inga því næstu tíu árin eru lyk­ilár í að ráða örlögum kom­andi kynslóða. Við þekkjum öll frest­un­aráráttu í okkar dag­lega lífi og hvernig dagar, mánuðir, jafn­vel ár geta liðið án nokk­urs árang­urs. Klukkan tifar, tíminn heldur áfram en spurn­ingin er, hvenær mun sein­asta sand­kornið falla?,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Ung­menna­ráðið vekur meðal ann­ars athygli á að það þurfi að fylla upp í skurði þar sem vot­lendi gefi frá sér ónauð­syn­lega mikið magn koltví­oxíðs. Auk telur ráðið að sam­ræma þurfi flokk­un­ar­kerfi þvert yfir sveit­ar­fé­lög.

Enn fremur vill ung­menna­ráðið að fram­gang frek­ari stór­iðju verði stöðvað taf­ar­laust og að afsláttum auk und­an­þágu í hag stór­iðj­unnar veðri afleitt. „Stóriðja stendur fyrir miklum raf­orku­kaupum á Íslandi og sífellt er verið að auka fram­leiðslu raf­orku til að upp­fylla þeirra kröfur. Margar virkj­ana­fram­kvæmdir hefðu verið ónauð­syn­legar ef ekki hefði verið fyrir umfang stóriðju.“

Ákvarðanir sem teknar eru í dag munu hafa áhrif á framtíð þeirra

Á morgun munu tveir full­trúar úr ung­menna ráðunni ávarpa ráð­herra­fundi í New York um heims­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í til­kynn­ingu Stjórna­ráðs­ins um fund­inn er haft eftir Krist­björgu Mekkín Helga­dóttur, öðrum full­trú­anna, að svo lengi sem ein­hver sé til­bú­inn að hlusta af alvöru þá telji hún að rödd unga fólks­ins geti haft áhrif. 

„Það er samt svo mik­il­vægt að halda áfram að nýta rödd sína þó manni finn­ist maður á tímum vera að kalla inn í tómið. Við von­umst til þess að með þessu erindi okkar munum við koma röddum ung­menna á Íslandi eins vel til skila og við getum, það er svo bara að krossa putta að ein­hver sé til­bú­inn að hlusta,“ segir Krist­björg .

Sigurður Ein­ars­son Mäntylä, hinn full­trú­inn, tekur í sama streng og spyr af hverju ung­menni ættu ekki að fá að taka þátt í þeim ákvörð­unum sem teknar eru í dag og munu fyrst og fremst hafa áhrif á fram­tíð þeirra. „Vald­hafar þurfa að eiga sam­ráð við öll ung­menni, líka þau sem hafa ekk­ert endi­lega áhuga á stjórn­málum og lofts­lags­breyt­ingum því aðeins þá getum við tryggt sanna sam­vinnu,“ segir Sigurður.

Ísland skipu­leggur þar að auki tvo hlið­ar­við­burði sem fara fram á morgun og fjalla þeir báðir um ung­menni. Hægt verður að fylgj­ast með full­trúum ung­menna­ráðs­ins á Instagram síðu UngRÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár