Friðargæsluliði enn í baráttu við bandorm

Davíð Örn Guð­jóns­son veikt­ist alvar­lega eftir að hafa verið frið­ar­gæslu­liði í Sri Lanka. Segist sjá eftir því að hafa orðið friða­gæslu­liði.

Davíð Örn Guð­jóns­son, sem veikt­ist alvar­lega eftir að hafa verið frið­ar­gæslu­liði í Sri Lanka, er enn að leita sér hjálpar vegna veik­inda sinna. Davíð sagði frá því í við­tali við Stundina í febr­úar að hann hefði smit­ast af band­ormi. Hann fann fyrir hreyf­ingum innan í sér, en taldi það ímyndun, þar til maga­verkir, nið­ur­gangur og ofsa­kláði, ásamt öðrum ein­kennum, gerðu líf hans nán­ast óbæri­legt. Eftir að hafa tekið orma­lyf varð Davíð fyrir þeirri reynslu að eins og hálfs til tveggja metra langur ormur gekk niður úr honum, en honum varð svo hverft við að hann tók ekki sýni áður en hann sturt­aði honum niður.

Bandormur
Band­ormur

Davíð seg­ist í sam­tali við Stundina enn finna fyrir veik­indum. „Ég finn fyrir eins konar hnút í þörm­unum og það veit ekki á gott, hvort sem það er ormur eða eitt­hvað annað. Ég fór nýlega í röntgen, sem ég taldi að gæti gengið úr skugga um hvort það væri hugs­an­lega band­ormur. Það reynd­ist ekki vera, en ég fer næst í ristils­speglun og vænt­an­lega sneið­mynda­töku eftir það. Ég er enn ekki 100 pró­sent og er að reyna að leita mér hjálpar til að svo megi verða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár