Rannsókn gegn Assange felld niður

Samkvæmt WikiLeaks hefur rann­sókn á hendur Julian Assange verið felld niður. Rit­stjóri mið­ils­ins, Kristinn Hrafns­son, segir að um rétt­ar­farsskandal sé að ræða.

Julian Assange
Julian Assange Mynd: EPA

Rannsókn á hendur stofn­anda WikiLeaks, Julian Assange, hefur verið felld niður í Svíþjóð. Frá þessu er greint á Twitter-síðu WikiLeaks í dag.

Assange var dæmdur í fimm­tíu vikna fang­elsi fyrir að brjóta gegn skil­málum lausnar sem hann hlaut gegn trygg­ingu árið 2012. Þá leit­aði hann hælis í sendi­ráði Ekvadors í London þar sem hann dvaldi þar til í apríl á þessu ári. Á þeim tíma fjöll­uðu breskir dóm­stólar um fram­sals­beiðni Svía vegna kyn­ferð­is­brota­máls gegn Assange þar í landi.

[adspot]

Mesta atlaga að blaðamennsku á Vesturlöndum á síðari tímum

Að sögn Kristins Hrafns­sonar, rit­stjóra WikiLeaks, dvelur Assange nú í mesta örygg­is­fang­elsi Bret­lands á meðan beðið er rétt­ar­halds í febr­úar þar sem fram­sal­skrafa Trump stjórn­ar­innar verður tekin fyrir. Hann lauk form­legri afplánun þann 22. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en því var hafnað að hann færi í skap­legra úrræði, sam­kvæmt Kristni.

„Samkvæmt orðum sænska sak­sókn­ar­ans rétt í þessu telst vitn­is­burður hins meinta fórn­ar­lambs veikur og ónógar sann­anir fyrir hendi til að byggja undir málið. Það hefur tekið níu ár að kom­ast að þess­ari nið­ur­stöðu. Þetta getur ekki talist annað en rétt­ar­farsskandall,“ segir Kristinn í sam­tali við Kjarnann.

Hann segir það þó létti að koma þessu máli frá svo hægt sé að ein­beita sér að alvöru­mál­inu sem sé fram­sal­skrafa Julian Assange til Banda­ríkj­anna sem feli í sér eina mestu atlögu að blaða­mennsku á Vest­ur­löndum á síð­ari tímum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár