Fá merki um kólnun en framboð að aukast

Fast­eigna­mark­að­ur­inn hefur gengið í gegnum ótrú­legt tíma­bil und­an­farna tólf mán­uði. Íbúðir hafa hækkað hratt og mikið.

Fátt bendir til þess að fast­eigna­verð muni halda áfram að hækka á næstu mán­uðum, en nokkur merki eru þó komin fram um að mark­að­ur­inn sé að „kólna“ frá því sem verið hefur á und­an­förnu ári

Eins og greint var frá á vef Kjarnans 3. júlí, þá hefur með­al­fjöldi aug­lýstra íbúða á vef mbl.is auk­ist nokkuð á síð­ustu mán­uðum eftir að hafa minnkað nær stöðugt í þrjú ár. Sam­hliða því hefur með­al­tími íbúð­ar­hús­næðis á sölu lengst lít­il­lega í apríl og maí síð­ast­liðn­um.

Auglýsingum fjölgar

Í nýbirt­um hag­vísum Seðla­banka Íslands er mán­að­ar­legt með­al­tal aug­lýs­inga á fast­eigna­vef mbl.is tekið sam­an. Sam­kvæmt þeim tölum hefur fjöldi fast­eigna á sölu lækkað nær jafnt og þétt í takti við aukna spennu á hús­næð­is­mark­aði auk þess sem með­al­sölu­tími íbúð­ar­hús­næðis hefur lækkað veru­lega frá 2010.

Tölur sem Þjóðskrá tekur saman, og vinnur upp úr þing­lýstum kaup­samn­ingum, sýna að fast­eigna­verð er enn að hækka hratt. Samkvæmt nýj­ustu tölum, frá því í júní, hækk­aði verð um 1,8 pró­sent frá fyrra mán­uði.

Þar af hækk­aði fjöl­býli um 2,1% og sér­býli um 0,8%. Samkvæmt tölum Þjóð­skrár hefur fjöl­býli hækkað um 24,4% á und­an­förnu ári, sér­býli um 20,6% og er heild­ar­hækk­unin 23,5%. Hækkanir síð­ustu 12 mán­aða eru enn miklar og þarf að fara allt aftur til upp­hafs árs­ins 2006 til að sjá álíka tölur.

Margar íbúðir að koma á markað

Framboð hús­næðis til sölu er tekið að aukast, eins og áður segir, og útlit fyrir að þús­undir nýrra íbúða muni koma út á markað á næstu tveimur árum. Þörfin á mark­aðnum á næstu þremur árum hefur verið skil­greind í kringum níu þús­und, en að mati flestra grein­enda á fast­eigna­mark­aði, er of lítið fram­boð, á tímum þar sem eft­ir­spurn hefur verið mikil, mik­il­væg ástæða þess að verðið hefur hækkað jafn skarp­lega og raun ber vitni.

Til marks um hvað hækk­unin á fast­eigna­verði hefur verið hröð, þá má taka mið af dæmi­gerðum kaupum ungs fólks. Íbúð sem keypt var á 30 millj­ónir fyrir 18 mán­uðum kostar nú 40,5 millj­ónir og hefur því hækkað um 10 millj­ónir, eða sem nemur um 550 þús­und krónur á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár