Hvorki forseti né ráðherrar geta afsalað sér launum frá ríkinu

Hvorki ráð­herrar né for­seti Íslands geta afsalað sér launum fyrir vinnu sína. Skrif­stofu­stjóri Kjara- og mannauðs­sýslu rík­is­ins segir að rík­inu beri að greiða emb­ætt­is­mönnum laun. Ögmundur Jónasson seg­ist hafa afsalað sér ráð­herra­launum í fjögur ár.

Davíð Oddsson getur ekki afsalað sér launum sem forseti Íslands. Hann ræður hins vegar hvað hann gerir við launin sín, nái hann kjöri.
Davíð Oddsson getur ekki afsalað sér launum sem for­seti Íslands. Hann ræður hins vegar hvað hann gerir við launin sín, nái hann kjöri.

Emb­ætt­is­menn á vegum rík­is­ins og eru á launa­skrá þess, þar með taldir ráð­herrar í rík­is­stjórn og for­seti Íslands, geta ekki afsalað sér launum frá rík­inu. Þetta stað­festir Fjár­sýsla rík­is­ins. Það sama segir Gunnar Björns­son, skrif­stofu­stjóri Kjara- og mannauðs­sýslu rík­is­ins. Gunnar segir að laun emb­ætt­is­manna á vegum rík­is­ins séu lög­á­kveðin og rík­inu beri að greiða þau til við­kom­andi. Það sé bundið í lög og stjórn­ar­skrá.

„Starfs­menn þurfa að standa skil á sköttum og skyldum og telja fram launin,” segir Gunnar í sam­tali við Kjarnann. „En hvað starfs­menn ákveða svo að gera við þau, er þeim algjör­lega frjálst.”

Davíð Oddsson, for­seta­fram­bjóð­andi og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, hefur sagst ætla að afsala sér for­seta­launum nái hann kjöri. Hann ætli að halda sig við eft­ir­launa­greiðslur sínar, sem séu um það bil 40 pró­sent af launum for­seta.

Ögmundur afsalaði sér samt launum

Ögmundur Jónasson, frá­far­andi þing­maður Vinstri grænna, seg­ist hafa afsalað sér ráð­herra­launum þegar hann varð heil­brigð­is­ráð­herra árið 2009 og einnig þegar hann tók við emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra árið 2010 og fram til árs­ins 2013. Hann þáði á þeim tíma ein­ungis þing­far­ar­kaup fyrir störf sín.

Hins vegar, eins og áður segir, mega emb­ætt­is­menn rík­is­ins ekki afsala sér launum og eiga í raun ekki að geta það. Lögum sam­kvæmt ber rík­inu að greiða þeim sem sinnir starfi á vegum þess laun. Við­kom­andi hefur ekki val hvort hann þiggi þau laun eða ekki, því á launa­greiðsl­unum eru aðrar kvaðir.

Launaleysi geti haft áhrif á skattlagningu

Emb­ætt­is­menn rík­is­ins þurfa að telja tekjur sínar fram til skatts og greiða í líf­eyr­is­sjóð, sem og aðrir. Gunnar segir það geta haft áhrif á heild­ar­skatt­lagn­ingu þegar metið er hvort við­kom­andi emb­ætt­is­menn hafi aðrar tekjur. Eðli máls­ins sam­kvæmt séu það rétt­indi og skyldur launa­greið­anda og laun­þega að fólk þiggi laun sam­kvæmt kjara­samn­ingum.

„Það er ekki alveg svona ein­falt að menn geti bara afsalað sér launum,” segir hann. „Laun eru end­ur­gjald fyrir vinnu. Þegar þú færð greidd laun verður þú að vinna á móti og öfugt.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár