Benedikt um ráðherradóm: Er ég í vitlausu leikriti?

Benedikt Jóhann­es­son rekur hug­leið­ingar sínar í kringum form­legar athafnir í fæð­ingu rík­is­stjórn­ar­innar í pistli á vef­síðu sinni.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Mér varð hugsað til þess hvort maður væri ekki lentur í vit­lausu leik­riti,“ skrifar Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, í pistli á vef­síð­una heimur.is. Í pistl­inum rekur Benedikt hug­leið­ingar sínar í kringum form­legar athafnir í fæð­ingu rík­is­stjórn­ar­innar sem hann mynd­aði með Bjarna Bene­dikts­syni og Óttari Proppé.

„Nú sátum við þarna við end­ann, Guðni Th. og ég, rúm­lega átta mán­uðum eftir að ég spjall­aði við hann og hvatti til for­seta­fram­boðs með til­heyr­andi plotti,“ skrifar Benedikt um upp­haf rík­is­ráðs­fund­ar­ins þegar Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, stofn­aði ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar 11. jan­úar síð­ast­lið­inn. „Þá hafði hvor­ugur okkar nokkru sinni boðið sig fram til opin­bers emb­ættis. Svona er þetta líf skrítið.“

„Það sama og síðast og þar áður.“

Áður en blaða­manna­fundur þeirra Bene­dikts, Bjarna og Óttars hófst í Gerð­ar­safni í Kópavogi fengu verð­andi leið­togar nýrrar rík­is­stjórnar farða fyrir kvik­mynda­vél­arnar í einum sal safns­ins. Benedikt segir að þar hafi verið allt á rúi og stúi og að Svan­hildur Hólm, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar til nokk­urra ára, hafi strang­lega bannað þeim að veita fjöl­miðlum við­töl í þessum sal. „Það fannst mér skilj­an­legt, allt á rúi og stúi og ekki skemmti­legt við­talslókal,“ skrifar Benedikt.

Og það mátti alls ekki taka af þeim myndir við vegg­ina í salnum. Þar var búið að hengja upp lista­verk fyrir sýn­ingu ein­hvers konar og á einum veggnum var „sér­kenni­legt verk“, skrifar Benedikt. „Það var röð af ljós­myndum sem allar voru eins. Tvær raðir reyndar. Á mynd­unum voru stafir, einn á hverri. Textinn var eitt­hvað á þessa leið:

„Það sama og síð­ast og þar áður.“

Ég varð að við­ur­kenna að þetta hefði ekki verið heppi­legur bak­grunnur fyrir blaða­manna­fund nýrrar rík­is­stjórnar.“

Þorði ekkert að segja

Rík­is­ráðs­fundir eru alltaf mjög form­legir við­burðir og það sem fram fer á þeim fundum eru iðu­lega trún­að­ar­mál þeirra sem fund­inn sitja. Fund­ur­inn 11. jan­úar var fyrsti rík­is­ráðs­fundur Bene­dikts sem seg­ist hafa fund­ist það „skrítið“ að þurfa að skrifa undir yfir­lýs­ingu um að hann myndi gegna emb­ætti fjár­mála­ráð­herra með „guðs hjálp og hinnar helgu bókar“. „[E]n þetta trufl­aði mig svosem ekk­ert.“

Sem fjár­mála­ráð­herra hefur Benedikt lyklana að rík­is­kass­anum (í óeig­in­legri merk­ingu), eins og hann benti sjálfur á þegar hann tók við lyklunum að skrif­stofu fjár­mála­ráð­herra úr hendi Bjarna Bene­dikts­sonar. Í pistli sínum við­ur­kennir Benedikt að hafa velt fyrir sér hvort það væri ekki kom­inn tími á að lappa aðeins upp á gamla, lasna rík­is­stjórn­ar­borðið. „Er ekki rétt að for­seta­emb­ættið fái auka­fjár­veit­ingu til þess að lappa upp á þetta borð­skrifli? hugs­aði ég, en þorði auð­vitað ekk­ert að segja.“

Benedikt þurfti ann­ars ekk­ert að segja á fund­inum. Guðni for­seti og Bjarni for­sæt­is­ráð­herra sáu um það og voru þau orða­skipti að mestu form­fastar línur „úr kans­ellí­inu“, skrifar Benedikt.

Eftir þennan fyrsta rík­is­ráðs­fund hafði ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar form­lega tekið við stjórn­ar­taumunum og nýir ráð­herrar stefndu á nýja vinnu­staði sína til þess að taka við lyklum úr hendi for­vera þeirra. „Betra gat það ekki orðið,“ skrifar Benedikt að lokum. „Nú er hægt að byrja að vinna.“

Pistil­inn má lesa á vefnum heimur.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár