Íslensk stjórnvöld hafa gert athugasemd við mat AGS á aðgerðum hérlendis

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn segir beinan stuðn­ing rík­is­fjár­mála til að takast á við efna­hags­leg áhrif kór­ónu­veirunnar einna minnst í Evrópu á Íslandi. For­sæt­is­ráð­herra segir að útgjöld rík­is­ins til aðgerða séu ekki ein og sér mæli­kvarði á eitt eða neitt.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Íslensk stjórn­völd hafa gert athuga­semd við mat Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins á aðgerðum Íslands til að takast á við efna­hags­legar afleið­ingar kóronu­veiru­far­ald­urs­ins. Í nýbirtu mati sjóðs­ins kom fram að beinn stuðn­ingur rík­is­fjár­mála, án til­lits til sjálf­virkra sveiflu­jafn­ara, til að takast á við efna­hags­á­hrif far­ald­urs­ins hér á landi væri einna minnstur í Evrópu.

Í umfjöllun Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins sagði að stuðn­ingur hér­lendis væri undir 2,5 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Önnur lönd sem voru í þeim flokki eru Tyrkland, Albanía, Hvíta-Rússland, Svart­fjalla­land, Bosnía og Her­segóvína og Moldóva. Mestur hefur beini stuðn­ing­ur­inn verið í Bret­landi, Þýska­landi, Aust­ur­ríki og Grikk­landi, þar sem hann er yfir tíu pró­sentum af lands­fram­leiðslu.

Katrín sagði í svari við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, á þingi í gær að hún teldi að útgjöld rík­is­ins til aðgerða væru ein og sér ekki raun­hæfur mæli­kvarði á eitt né neitt nema þau væru sett í sam­hengi við árang­ur­inn af þeim aðgerðum. „En við höfum gert athuga­semd við þetta mat Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og þau hafa til að mynda ekki tekið með í reikn­ing­inn fjár­fest­ing­ar­á­tak, fram­lög til námstæki­færa, við­bót­ar­hækkun atvinnu­leys­is­bóta, styrki til rann­sókna og þró­unar og svo fram­vegis. Þannig að þessi mæli­kvarði Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins virð­ist byggður á mjög þröngri afmörkun sem er reyndar því miður allt of algengt þegar um er að ræða til að mynda eðli fjár­fest­inga og við áttum ágætis sam­tal um einmitt í umræðum um fjár­mála­á­ætlun.“

Mun minni halli í fyrra en reiknað var með

Þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2021 var að finna í því áætlun um rekstur rík­is­sjóðs í fyrra, á árinu 2020. Tekjur rík­is­sjóðs voru áætl­aðar 769 millj­arðar króna en útgjöld 1.038 millj­arðar króna. Það þýddi að fjár­laga­hall­inn átti að verða 269,2 millj­arðar króna, sem yrði mesti halli frá því að byrjað var að mæla slíka í íslenska rík­is­rekstr­in­um. Meiri en á hru­nár­unum 2008 og 2009.

[adspot]Fyrir mán­uði síðan birti Hag­stofa Íslands bráða­birgða­tölur um afkomu hins opin­bera á síð­asta ári. Í þeim tölum kom fram að tekjur íslenska rík­is­ins hafi verið mun hærri en áætlað var, eða 890,4 millj­arðar króna. Tekjur sem skil­uðu sér til íslenska rík­is­ins voru því, á end­an­um, 121,4 millj­örðum krónum meiri en reiknað var með við fram­lagn­ingu fjár­laga en 45 millj­örðum krónum minni en þær voru árið 2019. Útgjöld voru líka hærri en reiknað hafði verið með, eða 1.091 millj­arður króna, en þar skeik­aði minna en á tekju­hlið­inn­i.

Nið­ur­staðan var sú að hall­inn á rík­is­sjóð var mun minni en áætlað var við fram­lagn­ingu fjár­laga­frum­varps­ins, eða 201 millj­arðar króna. Fjár­laga­hall­inn 2020 var því 68,2 millj­örðum krónum minni en rík­is­stjórnin reikn­aði með, eða fjórð­ungi minn­i.

Opinber fjárfesting dróst saman á Íslandi

Í útgáfu Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins um rík­is­fjár­mál, sem birt var í fyrra­haust, voru þróuð ríki hvött til að stór­auka opin­berar fjár­­­fest­ingar til að kom­­ast fljótar upp úr kór­ónu­veiru­kreppu. Í útgáf­unni stóð að hag­­kvæmt sé að taka lán fyrir slíkri fjár­­­fest­ingu út af lágum vöxtum og upp­­safn­aðri þörf.

Fjár­fest­ing hins opin­ber á Íslandi, sem sam­anstendur að uppi­stöðu af rík­is­sjóði og sveit­ar­fé­lög­um, dróst hins vegar saman milli áranna 2019 og 2020. Sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar voru áætluð fjár­fest­ing­ar­út­gjöld 104,4 millj­arðar króna í fyrra og dróg­ust saman um sex millj­arða króna milli ára.

Hinir svoköll­uðu sjálf­virku sveiflu­jafn­arar virk­uðu líka til hækk­unar á ákveðnum útgjöldum og lækk­unar á skatt­tekj­um. Helsti útgjalda­lið­ur­inn sem þeir hækka eru kostn­aður við rekstur Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs vegna útgreiðslu almennra atvinnu­leys­is­bóta. Sá kostn­aður fór úr 23 millj­örðum króna árið 2019 í 54 millj­arða króna í fyrra sem er aukn­ing um 136 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár