May ávarpaði blaðamenn í hinsta sinn sem forsætisráðherra

May segir mik­inn heiður að hafa þjónað Bret­landi sem for­sæt­is­ráð­herra. Hún telur að Brexit samn­ingur verði helsta við­fangs­efni næstu rík­is­stjórnar.

May ávarp­aði blaða­menn í hinsta sinn sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands í dag. Hún telur Brexit samn­ing munu verða helsta við­fangs­efni næstu rík­is­stjórnar. Hún óskaði Boris Johnson einnig til ham­ingju með nýja emb­ættið og óskaði honum vel­farn­aðar í sínum störfum. Jafn­framt segir hún að hún muni ráð­leggja drottn­ingu að til­nefna Boris Johnson sem næsta for­sæt­is­ráð­herra.

Í dag mun Boris John­son taka við kefl­inu sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og mynda nýja rík­is­stjórn. May hélt í kjöl­farið á fund drottn­ingar þar sem hún baðst lausnar frá emb­ætti sínu. Hún verður þó áfram þing­maður á breska þing­inu.

[adspot]Í ræðu sinni sagði May efna­hag Bret­lands hafa batnað og að Brexit samn­ingur væri helsta við­fangs­efni næstu rík­is­stjórnar. Hún sagði að henni væri mik­ill heiður að hafa verið for­sæt­is­ráð­herra og að hún væri full þakk­lætis fyrir tæki­færið sem henni hefði verið veitt.

Hún sagð­ist vona að allar ungar stúlkur, haf­andi séð hana sem for­sæt­is­ráð­herra, viti að þeim væru engin tak­mörk sett um hverju þær gætu áorkað.

Orðaskak Corbyn og May í morgun

Ther­esa May svar­aði í síð­asta skipti fyr­ir­spurnum frá þing­mönnum sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands í morgun. Til harðra orða­skipta kom á milli May og Jer­emy Cor­byn, ­for­manns Verka­manna­flokks­ins. May sagði að Cor­byn ætti að skamm­ast sín fyrir að hafa kosið gegn Brexit samn­ingi hennar og að hann ætti að segja af sér­. „­Sem ein­hver sem veit hvenær sé hennar tími til að gef­ast upp, sting ég upp á að Cor­byn átti sig á því að nú sé hans tími til að hætta runn­inn upp,“ sagði May.

Cor­byn þakk­aði May fyrir þjón­ustu hennar fyrir almenn­ing. Síðan sótti hann hart að May og spurði hvort hún harm­aði ástand almenn­ings í Bret­landi, þar sem barna­fá­tækt hefði auk­ist, glæpum fjölgað sem og heim­il­is­laus­um. May svar­aði að nú væru börn í betri skól­um, meiri atvinnu­þátt­taka væri í Bret­landi auk þess sem aðstæður almenn­ings hefðu batn­að.

Corbyn vill að kosið verði á þing að nýju svo breskur almenn­ingur geti kosið sinn eig­inn for­sæt­is­ráð­herra, ekki að keflið um for­sætið fari ein­ungis á milli leið­toga Íhalds­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár