
Seinni myndaspurning:Hver er konan?
- Hvað hét lag Daða og Gagnamagnsins sem keppti í Eurovision árið 2021?
- Í hvaða sæti lenti lagið?
- Efnahvati sem sér um að brjóta niður prótein í maga mannsins heitir af hreinni tilviljun næstum sama nafni og vinsæll gosdrykkur. Hvað heitir hvatinn?
- En hvaða frumefni er táknað með O?
- Hver er nýr rektor Háskóla Íslands?
- Hvað heitir móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar?
- Hvað heitir konungur Svíþjóðar?
- En hvað heitir væntanlegur arftaki konungsins?
- Mikhail Gorbatsjov, síðasti leiðtogi Sovétríkjanna, hóf umbætur sem hann kallaði glasnost og ... hvað?
- Hvað eiga bresku hljómsveitirnar Oasis, Stone Roses, Smiths, 808 State og Simply Red sérstaklega sameiginlegt?
- Hvaða lið sló Barcelona út í Meistaradeild Evrópu í karlaflokki á dögunum?
- Hver söng lagið As It Was árið 2022?
- Um hvað snerist Maastricht-sáttmálinn?
- Hvaða Evrópuríki er landlukt (hefur ekki landamæri að sjó) og á eingöngu landamæri að löndum sem eru líka landlukt?
- Hann fæddist árið 1972, lærði stjórnmálafræði og sóttist um tíma eftir því að verða borgarstjóri í Reykjavík. Hann dró sig í hlé frá stjórnmálum fyrir 12 árum og tók þá aftur að sér starf sem hann hafði gegnt áður. Hann heitir ... hvað?
Svör við myndaspurningum:
Fyrri myndin sýnir persónur úr myndinni Græna mílan, eða Green Mile. Á þeirri seinni er Guðrún Eva rithöfundur.
Svör við almennum spurningum:
1. Ten Years. — 2. Fjórða. — 3. Pepsín. — 4. Súrefni. — 5. Silja Bára. — 6. Amgen. — 7. Karl Gústaf. Númerið þarf ekki að þessu sinni. — 8. Viktoría. — 9. Perestrojka. — 10. Þær eru frá Manchester. — 11. Inter Mílanó. — 12. Harry Styles. — 13. Evrópusambandið. — 14. Liechtensen er innilokað af Sviss og Austurríki. — 15. Gísli Marteinn.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir (4)