Einn af hluthöfum einkarekna heilbrigðisfyrirtækisins Klíníkurinnar, Aðalsteinn Arnarson, hefur verið með tekjur upp á tæplega 900 milljónir til rúmlega einn milljarð króna síðastliðin tvö ár. Þetta eru tekjur vegna efnaskiptaaðgerða, aðgerðum eins og magaermum og hjáveituaðgerðum, sem Aðalsteinn er sérfræðingur í. Tekjurnar eru byggðar á greiðslum einstaklinga sem fara í slíkar aðgerðir hjá Aðalsteini en þær kosta á milli 1250 og 1350 samkvæmt verðskrá Klíníkurinnar. Þessar upplýsingar koma fram í ársreikningi eignarhaldsfélags Aðalsteins sem heitir Pegá ehf. Félagið er stærsti einstaki hluthafi Klíníkurinnar með rúmlega 15 prósenta hlut.
Fjallað er um þetta fyrirtæki Aðalsteins í forsíðuumfjöllun Heimildarinnar þar sem rætt er um aukna einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu á Íslandi í tíð Willums Þórs Þórssonar í heilbrigðisráðuneytinu. Hann hefur látið byrja að gera aðgerðir eins og liðskipti með kostnaðarþátttöku Sjúkratrygginga Íslands hjá einkafyrirtækjum og hefur gefið út að fleiri aðgerðaform verði einkavædd með kostnaðarþátttöku íslenska ríkisins með sams konar …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

















































Látið er að því liggja að einkavæðingin hafi þann tilgang að létta á opinbera kerfinu. Sannleikurinn er hins vegar sá að sjúkrahúsin eru fjársvelt til að opna leið fyrir einkavæðingu. Þetta mun veikja sjúkrahúsin enn frekar og hafa í för með sér gífurlega kostnaðaraukningu sem almenningur þarf að standa undir eins og reynslan erlendis sýnir.
Þessa þróun verður að stöðva